Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Page 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2013 Heilsa og hreyfing Þessi hugsun er sannarlega ekki meðfædd, heldur sköpum við hana sjálf, oftast ómeð-vitað. Því kostar það stundum nokkra vinnu að vera jákvæður og uppörvandi.Gott er að gera sér grein fyrir því að líðan okkar á hverri stundu hefur bein áhrif á viðbrögð okkar við umhverfinu og viðhorf okkar til atburða. Það er erfitt að vera þungur í skapi á sama tíma og maður sýnir þakklæti eða lítur björtum augum til framtíðar. Það er líka erfitt að vera hvetjandi og jákvæður gagnvart fólki, ef maður telur almennt að fólk sé fífl. Það þarf ekki mikla mannvitsbrekku til að átta sig á því hvaða viðhorf bæta bæði manneskjuna og nánasta umhverfi henn- ar. Auðvitað er eðlilegt að vera stundum svolítið súr eða leiður. Það er hluti af lífinu. Þá getur verið nauðsynlegt að vera gagnrýninn á samfélag sitt og vilja gera það betra. En hvernig við nálgumst við- fangsefnin er það sem skiptir máli. Niðurrif og uppnefni bætir hvorki samfélagið né manneskjuna sem því beitir. Við getum haft mikil áhrif á eigin líðan og stjórnað í flestum til- fellum. Eina góða aðferð til að draga úr neikvæðum hugs- unum er að finna í bók hvatningarmeistarans Anthony Robb- ins, Awaken the Giant within. Í tíu daga er bannað að hugsa um nokkuð neikvætt eða óuppbyggilegt, lengur en eina mín- útu. Þegar þú stendur þig að slíkum hugsunum verðurðu að þvinga þig til að einbeita þér að einhverju jákvæðu og skemmtilegu. Ef þú hugsar um eitthvað neikvætt lengur en eina mínútu verðurðu að byrja dagana tíu upp á nýtt! Það er ótrúlegt hvað gerist þegar við tökum hugsun okkar í eigin hendur svona meðvitað. Önnur góð leið til að efla jákvæða hugsun er að fara yfir daginn í huganum í lok dags. Að fara yfir t.d. með fjölskyldumeðlimum hvað var skemmtilegast í dag, hvað kom skemmti- lega á óvart, yfir hverju það gladdist og hvað gekk vel. Þessi leið hjálpar manni að vera þakk- látur og sjá að það má gleðjast yfir svo mörgu og litlu í stað þess að rifja upp það sem miður fer. Að vera bjartsýnn þó á móti blási, jákvæður í neikvæðu andrúmslofti, og að hafa trú þó að við upplifum vonbrigði eru eftirsóknarverðir hæfileikar. Hæfileikar sem hafa mikil völd og geta sannarlega skapað betra samfélag fyrir okkur öll. BJARTARI HUGSUN, BJARTARA SAMFÉLAG STUNDUM ER EINS OG ALLT SÉ Á HVOLFI. ALLT GETUR VERIÐ SVO ÓMÖGULEGT OG ALLIR EITTHVAÐ ÖÐRUVÍSI EN VIÐ VILJUM HAFA ÞÁ. STUNDUM ER AUÐVELDAST Í HEIMI AÐ VERA NEIKVÆÐUR OG NIÐURDREPANDI, EINS OG ÞAÐ SÉ OKKUR EÐLISLÆGARA AÐ FINNA AÐ HLUTUNUM HELDUR EN AÐ DRAGA FRAM ÞAÐ JÁKVÆÐA VIÐ FÓLK OG AÐSTÆÐUR. * Gott ráð til að bæta líðansína einmitt núna er að loka augunum í eina mínútu, útiloka ónæði, hreinsa hugann og brosa! BORGHILDUR SVERRISDÓTTIR Heilbrigt líf H andabandið er þétt og ekki fer á milli mála að maðurinn er í varga- formi; hér er engin skrifstofublók á ferð. Kanadamað- urinn Nick Cienski var staddur hér á landi í vikunni til að prófa búnað sem hann hyggst nota þeg- ar hann gerir tilraun til að verða fyrstur manna til að klífa fjórtán hæstu tinda heims á sama árinu. Yfirskrift verkefnisins er Mission 14 enda fjöllin fjórtán og árið sem verður tímaramminn 2014. Það kemur því ekki á óvart að búnaðurinn samanstendur af fjór- tán hlutum, aðallega flíkum en einnig skóm. Cienski hefur hannað það allt sjálfur, nema skóna, en hann starfar sem hönnuður hjá bandaríska íþróttavörufyrirtækinu Under Armour í Baltimore. Skórn- ir eru sérhannaðir á Ítalíu en Ci- enski leggur mikið upp úr þeim enda er hann þegar einni tá fátæk- ari vegna kals. Í starfi sínu horfir hann ekki til tísku heldur notagildis. „Áhugi minn á hönnun er vísindalegur, ég lít á útivistarfatnað eins og verk- færi í verkfærakassa.“ Skjótt skipast veður í lofti Ástæðan fyrir því að Cienski kom hingað til Íslands til að prófa þennan búnað er einföld. „Ég veit að hér skipast veður skjótt í lofti,“ segir hann sposkur á svip. Láttu okkur þekkja það, lagsi! Hann fór upp á Vatnajökul í fjóra sólarhringa ásamt eiginkonu sinni og Guðmundi Einari Hall- dórssyni fjallaleiðsögumanni. Þar beið þeirra allskonar veður, svo sem kafaldsbylur, 10 gráða frost og vindhviður upp á 45 metra á sekúndu. Þá brotnaði öxullinn und- an bílnum. Guðmundur henti sér þá bara á bakið og gerði við það, eins og góðum leiðsögumanni sæmir. „Niðurstöður tilraunarinnar eru mjög góðar. Fyrst ég fann ekki fyrir kulda í hlífðargallanum mín- um við þessar aðstæður er ég fær í flestan sjó,“ segir Cienski en þess má geta að hann var aðeins á nærklæðunum undir. „Það er ekki sjálfgefið að ég komist alltaf milli búða á fjöllunum og ég gæti fyrir vikið þurfti að hafast við undir berum himni einhverjar nætur, í fimbulfrosti.“ Hraðinn skiptir öllu máli í Mis- sion 14-verkefninu og fyrir vikið er kappsmál fyrir Cienski að allur búnaður sé eins léttur og kostur er. Flíkurnar eru til að mynda límdar á samskeytum en ekki saumaðar. Þá er trefjaefnið í flík- unum þess eðlis að það hleypir auðveldlega út öllum raka. Cienski þarf með öðrum orðum ekki að hafa áhyggjur af því að svitna í fötin á göngu sinni og þyngjast þannig við hvert fótmál. Þurfti bara hvatningu Eftir þessa gæðavottun fer bún- aður Cienskis nú í kynningu hjá Under Armour og væntir hann þess að almenningur geti fest kaup á honum í verslunum keðjunnar strax á næsta ári. Fjallabakterían tók sér bólfestu í Cienski meðan hann var táningur og 24 ára gamall var hann farinn að stjórna leiðöngrum í Himalaja- fjöllum. Hann hefur klifið fjöll um allan heim og býr yfir ómældri Kanadíski fjallagarpurinn Nick Cienski á Vatnajökli í vikunni. Veðrið var af öllu tagi, eins og við var að búast. Ljósmynd/Guðmundur Einar Halldórsson Nick Cienski á pólska foreldra og þaðan mun blessuð þrjóskan vera komin. Morgunblaðið/Rósa Braga PRÓFAR FJALLABÚNAÐ Á ÍSLANDI Ég get þetta! KANADAMAÐURINN NICK CIENSKI HEFUR SETT SÉR ÞAÐ MARKMIÐ AÐ VERÐA FYRSTI MAÐURINN TIL AÐ KLÍFA FJÓRTÁN HÆSTU TINDA HEIMS Á SAMA ALMANAKSÁRINU. TILGANGURINN ER AÐ VEKJA ATHYGLI Á MANSALI. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is * Ég geri mérfulla grein fyrirþví að ég er að stofna mér í hættu.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.