Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Qupperneq 27
S
norri er málarameistari og Kristjana hefur einnig
próf á pensil. Þau hafa sérhæft sig í kirkjumálun
og vinna nær eingöngu fyrir Þjóðminjasafnið og
kirkjur víða um land. En þegar færi gafst dunduðu
þau í litla, snotra húsinu sínu og hafa gert það sérlega
glæsilegt.
„Húsið er byggt 1877 og við höfum verið að færa það í
átt að gamla tímanum aftur,“ segir Snorri. Húsið er nefnt
Davíðsbær, eftir syni annars tveggja bræðra sem byggðu
húsið en sá bjó þar.
Húsið var í niðurníðslu þegtar þau eignuðust það fyrir
hálfum öðrum áratug. Þá var hafist handa við að taka allt
í gegn. „Gólfin voru fjarlægð og steypt innan á alla sökkla,
sett nýtt gólf og einangrun og gömlu fjalirnar svo settar
aftur ofan á til að halda lúkkinu.“
Gamlir gólfbitar eru nú notaðir sem stoðir í eldhúsinu og
við stigann. Hann var upphaflega í Aðalstræti 16, sem
byggt var um aldamótin, en handriðið smíðaði Beato
Stormo eldsmiður á Hrafnagili. Snorri er uppalinn í Berlín,
Aðalstræti 10, skammt frá versluninni Brynju. „Það kom
aldrei annað til greina en vera áfram í Innbænum. Hér líð-
ur mér eins og kóngur í miðju eigin ríkis!“ segir Snorri.
Kristjana er úr miðbænum en alsæl í elsta bæjarhlutunum.
Hún býr altjent í sömu hæð yfir sjávarmáli og áður...
Voldugur stigi er í húsinu. Hann fengu þau frá
góðum vinum í öðru gömlu húsi, Aðalstræti 16.
Kóngur í miðju ríki
AÐALSTRÆTI 34 Á AKUREYRI VAR Í NIÐURNÍÐSLU FYRIR 15 ÁRUM ÞEGAR KRISTJANA
AGNARSDÓTTIR OG SNORRI GUÐVARÐSSON EIGNUÐUST ÞAÐ. NÚ ER ÖLDIN ÖNNUR.
Texti og myndir: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
* Húsið er byggt 1877.Snorri og Kristjana hafa verið
að færa það í átt að gamla
tímanum aftur
GAMALT, LÍTIÐ OG FALLEGA UPPGERT HÚS
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sverðið keypti Snorri í Þýskalandi. Trédrumburinn á borðinu eru þau hjón. Vír
heldur þeim saman í blíðu og stríðu. Brúðargjöf frá Þorleifi smið og trommara.
Einhverju sinni héldu Snorri og Kristjana garðsölu. Fyrir ágóðann keyptu þau á
fornsölu þann forláta danska eikarskáp sem er lengst til vinstri á myndinni.
Plötuspilarann keyptu þau í London.
White Christmas með Bing Crosby
er jafnan spilað af lakkplötu um jólin.
Ljósmyndir sínar á rúðum
útidyrahurðarinnar vann
Kristjana í tölvu og lét prenta
á sandblástursfilmu.
5.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða
– fyrir lifandi heimili –
99.990
FULLTVERÐ: 119.990
HAVANA
HÆGINDASTÓLL
Svart leður
149.990
FULLTVERÐ: 169.990
GYRO
HÆGINDASTÓLL
Hvítt, rautt
eða svart leður
119.990
FULLTVERÐ: 139.990
GOHST
HÆGINDASTÓLL
Grátt, blátt,
turkis og
fjólublátt
ákæði
FÁÐU ÞÉRGOTT SÆTI!
Sérlega vandaðir hægindastólar
með snúningi. Leður eða áklæði.
Fjölmargir litir og útfærslur.
Fáguð skandinavísk hönnun
www.husgagnahollin.is