Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Page 32
1 pakki kex (t.d. Graham‘s hafra-
kex)
1 stór dós af ananas + safi (550 g)
½ bolli ananassafi
½ bolli kasjúhnetur
½ tsk. salt
? bolli hunang
rifinn börkur af hálfri sítrónu
1 pakki silken tofu
3 tsk. agar agar-duft
Aðferð
Raðið kexi í mót en blandið öllu öðru mjög vel í blandara nema agar agar og ananassafanum.
Setjið næst ½ bolla ananassafa og agar agar í pott og látið suðu koma hægt upp, hrærið stöðugt á
meðan agar agarið er að þykkna. Því næst er mikilvægt að hafa hraðar hendur því agar agar má
ekki kólna. Bætið heitri agar agar-blöndunni saman við og blandið öllu saman í 30 sek. Hellið
blöndunni yfir kexið og látið kólna og stífna. Skreytið með ávöxtum eða góðri berjasósu. Þessi
ostakaka er ótrúlega góð og létt í maga.
Vegan-tófúostakaka
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2013
Matur og drykkir
E
lísa Elíasdóttir stundar nám við Háskóla Ís-
lands og Tónlistarskólann í Reykjavík. El-
ísa, sem er tvítug, er alin upp á
grænmetisfæði og hefur aldrei smakkað
kjöt á ævi sinni. Elísa og móðir hennar, Ester
Ólafsdóttir, buðu nágrannahjónum sínum og börn-
um auk tveggja nágrannakrakka til viðbótar í mat
til sín en á borðum voru grænmetisborgarar með
tófúmajónesi og vegan-tófúostakaka í eftirrétt.
„Foreldrar mínir ákváðu að þau vildu ala börnin
sín upp á hollum mat og sleppa því að gefa okkur
nammi. Meðan við vorum lítil gerðu þau grænmet-
ismatinn meira spennandi með því að segja okkur
t.d. að kartafla gæfi okkur orku og þá gætum við
hlaupið hraðar. Það snerist mikið um mat á heim-
ilinu og mamma hváði þegar bróðir minn, þá
þriggja ára, kvartaði yfir of miklu hvítlauksbragði
af matnum. Hún ætlaði ekki að trúa því að hann
þekkti hvítlauksbragðið svona ungur,“ segir Elísa.
Elísa segir fjölskylduna helst nota tófú í sósur,
t.d. til að nota ofan á samlokur, en borði annars
mikið af baunum, kartöflum og grænmeti.
„Við notum silken-tófú sem er mun mýkra en
hið hefðbundna og maður finnur í raun ekkert
tófúbragð af sósunni. Í henni kemur tófúið í stað
eggja og olíu í venjulegu majónesi og hún hentar
því vel fyrir fólk með eggjaóþol,“ segir Elísa.
Grænmetisborgana segir Elísa tilvalið að taka með
í grillboð í stað hefðbundinna kjöthamborgara en
þá megi líka frysta og hita síðan upp og setja í
pítubrauð eða samlokur. Elísa segir ostakökuna í
eftirrétt vera sína uppáhaldsköku og sé hún borin
fram í öllum afmælum.
„Mig hefur aldrei langað til að borða kjöt enda
venst maður bara á það sem maður er alinn upp
við. Mamma hefur alltaf eldað mikið frá grunni
og höfum við bróðir minn lært af henni þannig
að við getum bjargað okkur ágætlega í dag,“ seg-
ir Elísa sem býr í foreldrahúsum en eldar reglu-
lega og býr sér til snarl og nesti í skólann.
„Okkur systkinunum fannst aldrei óþægilegt að
borða ekki það sama og krakkarnir í kringum
okkur en þar hafði uppeldið mikið að segja.
Þannig urðu rúsínur í poka Elísunammi og þannig
átti ég mitt eigið nammi og var alsæl,“ segir El-
ísa.
Elísa heldur úti vefsíðunni www.elisae.blog.is
þar sem hún deilir ýmsum greinum um mataræði
og hollustu og segir hún það hafa komið sér á
óvart hve margir lesi síðuna.
GRÆNMETISBORGARAR Á GRILLIÐ
Hollusta
fyrir krakka
* Elísa segir osta-kökuna í eftir-rétt vera sína uppá-
haldsköku og sé hún
borin fram í öllum
afmælum. Í kökuna
er notað silken-tófú,
kasjúhnetur og
hafrakex.
GESTGJAFINN AÐ ÞESSU SINNI, ELÍSA ELÍASDÓTTIR, HEFUR VERIÐ GRÆNMETISÆTA ALLA
SÍNA ÆVI OG ER UMHUGAÐ UM AÐ BORÐA HOLLA FÆÐU.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Thomas Quist Mortensen
með Jónatan í fanginu, þá Tea
Sofia, María Ericsdóttir, gest-
gjafinn Elísa og nágrannabörn-
in tvö Nadía Margrét og Mar-
inó Frank við veisluborðið, en
Elísa og fjölskylda hennar býr í
Ölfusinu, í grennd við Þor-
lákshöfn.
Það lá vel á matargestum Elísu sem hér skenkir þeim á diskana.
Grænmetisborgari getur vel komið í stað