Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Side 34
*Græjur og tækniÞess kann að vera skammt að bíða að netið verði komið í öll helstu heimilistæki »36
Á símanum er Android 4.2.2 og einnig ýmislegar
viðbætur sem Samsung-bændur hafa hannað og
smíðað, misgagnlegar eins og gengur. Margt er þó
sérdeilis skemmtilegt, eins og til að mynda að
hægt er að fletta myndum eða vefsíðum án þess
að koma við skjáinn, hægt er að kíkja á hluti með
því einu að halda fingrinum ofan við þá, til að
mynda sjá stærri myndir í lista, nota símann sem
fjarstýringu fyrir sjónvarp, skjóta myndum af
manni inn á myndir sem verið er að taka eða
kippa einhverjum út sem maður vill ekki að sé á
myndinni, tengja hljóðskrá við mynd auk veðurupp-
lýsinga og staðsetningar (GPS), myndband stoppar
ef maður er ekki að horfa á skjáinn, og svo má
lengi telja, svo lengi reyndar að fylla myndi mun
meira textapláss. Það segir sitt að hægt er að
velja sérstaka stillingu sem felur fjöldann allan af
nýjungum fyrir þá sem vilja hafa hlutina einfalda.
Sumar viðbæturnar eru snjallar, eins og til að
mynda að kíkja á póst eða stækka myndir án þess
að velja þær, en annað er ekki eins spennandi – af
hverju vil ég fletta vefsíðum án þess að snerta
skjáinn?
Samsung Galaxy S4 ber óneitanlega svip af litla bróð-ur sínum, Galaxy S3, og við fyrstu sýn eru þeir líkir,nauðalíkir reyndar. Þegar maður er kominn með sím-
ann í hendurnar kemur munurinn þó í ljós, S4 er þynnri
og ekki eins rúnnaður, skjárinn stærri, heldur breiðari og
nokkuð lengri. Þegar maður svo
kveikir á símanum og fer að nota
hann kemur líka vel í ljós að hann
er miklu sprækari í allri vinnslu,
munurinn reyndar ótrúlega mikill,
upplausnin á skjánum talsvert
betri og svo er hann léttari í
þokkabót (munar reyndar aðeins
þremur grömmum, en það eru þó
þrjú grömm).
S4 símarnir eru framleiddir með
tveimur gerðum af örgjörvum,
Qualcomm Snapdragon 600 og Exynos 5 Octa, en fyrr-
nefnda gerðin verður fáanleg hér og víðast í Vestur-
Evrópu og í Bandaríkjunum. Hin gerðin er hraðvirkari á
pappírnum, en menn eru missaga um af hverju hún verð-
ur ekki notuð almennt, nefna þó oftast að það sé vegna
þess að hún gangi ekki með 4G símum sem stendur.
ALLT ER ÞÁ FERNT ER
SAMSUNG ER ORÐIÐ HELSTI SÍMAFRAMLEIÐANDI HEIMS OG SKÆÐASTI KEPPINAUTUR APPLE. NÝJASTI SAMSUNG-
SÍMINN, GALAXY S4, ER BESTI SAMSUNG-SÍMINN TIL ÞESSA OG BESTI SNJALLSÍMINN Á MARKAÐNUM Í DAG.
Græja
vikunnar
* Síminn er 13,6 x 6,9 x 0,7sm og hann er 130 g. Vinnslu-
minni er 2 GB, innbyggt minni 16
GB og svo er hægt að setja mic-
roSDXC minniskort í símann sem
getur verið allt að 64 GB. Raf-
hlaðan er 2.600 mAh og endingin
mjög fín, þó það kosti eðlilega sitt
að keyra svo stóran skjá.
* Myndavélin á bakinu er ekk-ert slor, 13 milljón díla og tekur
1080p Full HD vídeó á 30 ramma
á sek. Hún er með sjálfvirkan fók-
us, hristivörn (stafræna), andlits-
skynjara, brosskynjara og svo má
lengi telja. Hún er einnig með
raddstýringu ef vill. Á framhliðinni
er 2 milljóna díla vél sem tekur
upp 1080p HD vídeó.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Skjárinn er frábær, 4,99" Su-per AMOLED og sá stærsti sinnar
gerðar í nokkrum síma – eini Full
HD AMOLED-skjárinn. Upplausn-
in á honum er 1920 x 1080 dílar
og 441 PPI (til samanburðar er
skjárinn á S3 306 PPI og iPhone 5
326 PPI, en tæknin er ekki fylli-
lega sambærileg).
hygli vakti hve vel hún náði til almennings
með þessum hætti. „Á sumrin birti ég mikið
af upplýsingum um lækningajurtir, hvenær sé
gott að tína ákveðnar plöntur og nota, og yfir
veturinn skrifa ég um vörurnar mínar. Fólk
hefur beinan aðgang að mér til að spyrja, ég
greini engan en gef einföld húsráð og upplýsi
hvert það á að leita.“
Anna Rósa fékk strax mjög mikil viðbrögð
þegar hún byrjaði með Facebook-síðuna. „Ég
var mjög hissa á áhuganum fyrst en nú er
mun yngra fólk farið að koma til mín en áður;
É
g hef verið á Facebook í fjögur ár og
nota síðuna mjög mikið,“ segir Anna
Rósa Róbertsdóttir grasalæknir.
Henni hefur verið boðið að halda er-
indi á alþjóðlegri ráðstefnu í Bandaríkjunum í
sumar, International Herb Symposium, þar
sem fólk í faginu hittist. Erindið er þó ekki
um grasalækningar heldur hvernig hún hefur
komið sér á framfæri á Facebook.
Ráðstefnan er haldin á tveggja ára fresti
rétt við Boston. Anna hefur farið einu sinni,
komist í kynni við fjölda fólks í faginu og at-
krakkar sem hafa rekist á mig á Facebook en
hefðu annars ekki komið fyrr en um fertugt.
Það skiptir því miklu máli að vera sýnilegur.“
Aðdáendur síðu Önnu Rósu eru liðlega
16.000 og stór hópur mjög virkur að hennar
sögn. Oft svarar hún 50 til 100 tölvupóstum á
dag.
„Það er algengt að Facebook sé notað í
mínum geira en aðallega að grasalæknar og
nemendur séu í samskiptum. Við erum þrjár
á Íslandi og væri ekkert gaman ef við værum
bara saman í hóp! Það kom því aldrei annað
til greina en að ná til almennings.“
Anna segir að svo virðist sem margar mið-
aldra konur í þessum bransa – „á mínum
aldri!“ – kunni ekki að markaðssetja sig. Ég
hef hins vegar innsýnina, var því fengin til að
tala og fannst boðið of gott til að neita.“ Hún
segir ekki þurfa sérstaka menntun til þess
arna, „bara að vera duglegur. Þetta er góð
leið til ná til kúnnanna, fræða fólk ókeypis og
markaðssetja lítið fyrirtæki í leiðinni. En það
er mikil vinna. Það verður að sinna kúnn-
unum vel.“
Margra grasa kennir á Facebook
Morgunblaðið/Golli
ANNA RÓSA GRASALÆKNIR ÞÁÐI BOÐ UM AÐ FLYTJA ERINDI Á ÞÚSUND MANNA ALÞJÓÐLEGRI RÁÐSTEFNU Í BANDARÍKJUNUM Í SUMAR. HÚN HEFUR
NÝTT SÉR FACEBOOK MEÐ MJÖG GÓÐUM ÁRANGRI OG SEGIR UNGT FÓLK LEITA MIKLU MEIRA TIL SÍN EN ÁÐUR, VEGNA SAMSKIPTASÍÐUNNAR.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Anna Rósa grasalæknir:
Þetta er góð leið til að
ná til kúnnanna.