Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 39
5.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39 K onur og klæðaburður er alveg sér kafli í stóru bókinni. Þótt flestar konur sýni mikla hjarðhegðun þegar kemur að fatavali þá eig- um við flestar erfitt með að mæta öðrum konum í nákvæm- lega eins fötum. Það er í raun merkilegt því tískan byggist ein- mitt á þessari hjarðhegðun og á meðan veltir tískuiðnaðurinn milljörðum. Samt sem áður óttast flestar konur að lenda í vandræðalegum fatakrísum eins og að mæta annarri konu í nákvæmlega eins kjól í fínu boði. Þetta gerist ítrekað í hinni sólríku Holly- wood. Þegar stjörnurnar mæta í eins kjólum er þeim nuddað upp úr því í fjölmiðlum með mis- skemmtilegum hætti. Ég hef ekki reynsluna af því að mæta annarri konu í nákvæm- lega eins kjól en ég hef hins- vegar oft séð tvær konur í eins kjólum á árshátíðum. Þetta var töluvert áberandi fyrir hrun. Í öllum tilfellunum var ekki um neinar Kolaportsdulur að ræða heldur fokdýra kjóla eftir þekkta hönnuði sem snobbað var fyrir í Reykjavík City. Ég veit ekki alveg hvað ég myndi gera ef ég væri búin að eyða allt of miklum peningum í sparikjól og svo myndi ég mæta annarri konu í nákvæmlega eins kjól. Mér finnst þó líklegast að ég myndi bara taka húmorinn á þetta (það virkar yfirleitt best í súrum aðstæðum) … Svo myndi ég ráðast á „smekkkonuna í kjólnum“ og heimta að af okkur yrði tekin mynd. Svo myndi ég setja myndina á Instragram með einhverri fáránlega fyndinni fyrirsögn og láta einhvern „Snapchatta“ þetta í bak og fyrir … og senda á alla vini mína! Ég fór að velta þessu fyrir mér þegar ég sá að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, og Bjarni Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson með eins bindi. Ólöglegt samráð? Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, mættu með eins bindi í sjónvarpssal á kjördag. Bindi félaganna eru frá ítalska tískuhúsinu Corneliani (en þó ekki úr nýjustu tískulínu tísku- hússins). Það er því hæpið að formennirnir tveir hafi farið saman í hádegismat, rölt upp Laugaveginn í herrafataversl- unina Calvi, sem selur bindin frá Corneliani, og ákveðið að fá sér bindi í stíl … svona upp á flippið! Nei, þessir menn flippa ekki … allavega ekki opinberlega … ekki strax! Þá vaknaði spurningin hvort þeir hefðu í raun tekið eftir því að þeir væru í stíl? Ef svo er ekki, hvenær tóku þeir eftir því og hvað fannst þeim um það? Hefðu þeir ekki sent aðstoðar- fólki sínum „snapchat“ og beðið það að koma með nýtt bindi í snarhasti? Í vikunni hef ég rætt „stóra bindamál BB og SDG“ við karl- menn sem hafa orðið á vegi mín- um. Það kom á óvart hvað skoð- anir þeirra voru einhliða og vaknaði sú spurning hvort karlar hugsi almennt eins. Þeir menn sem ég ræddi við voru sammála um að BB og SDG hefðu ekki tekið eftir því að þeir væru með eins bindi og einn náði mér alveg með þessum orðum: „Veistu, karlar eru ekkert að spá í öðrum körlum, það er ekki inni í þeirra radíus.“ Hvort það er rétt eða ekki þá hefði það aldrei farið framhjá Birgittu Jónsdóttur og Katrínu Jakobsdóttur ef sú fyrrnefnda hefði líka verið í röndóttum Marc Jacobs-kjól á kjördag. martamaria@mbl.is Það hefðu allir tekið eftir því ef Birgitta Jónsdóttir, kapteinn Pí- rata, hefði líka verið í rönd- óttum Marc Jacobs. Svo má bara Sölustaðir: Apótek Hafnarfjarðar og Garðabæjar, Árbæjarapótek, Austurbæjarapótek, Femin.is, Garðsapótek, Heimkaup.is, Lyfja, Lyfjaval, Rimaapótek og Urðarapótek Þú færð silkimjúka fætur eftir aðeins eitt skipti Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is 3 áraábyrgð Gjöfin sem gleður ár eftir ár
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.