Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 53
5.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53 Erla Þórarinsdóttir myndlistarmaður tekur á sunnudag klukkan 15 þátt í leiðsögn og ræðir við gesti í Hafnarborg á sýningunni Tilraun til að beisla ljósið. Sýningin hverfist um myndlistina sem farveg fyrir andlega leit og upplifanir. 2 Nú um helgina eru síðustu forvöð að sjá nokkrar áhugaverðar sýningar á List án landamæra. Þar á meðal er sýning Helga Þorgils og Snorra Ásgeirssonar, Lóðréttar öldur, í Listasal Mosfellsbæjar. Þá lýkur einnig Meisturum í Gallerí Listamenn við Skúlagötu og Listrófi í Ráðhúsinu. 4 Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, á 6. hæð Tryggvagötu 15, verður Guðmundur Ing- ólfsson á laugardag klukkan 14 með leiðsögn um stórmerka sýn- ingu sína. Kvosin 1986 & 2011. Sýn- ingin er til 12. maí. 5 Sjöttu og síðustu tónleikarn- ir þar sem Hlíf Sigurjóns- dóttir minnist hálfrar aldar fiðlumenningar í Mývatns- sveit, verða í Skútustaðakirkju í Mý- vatnssveit á sunnudag klukkan 17. Hlíf flytur verk eftir J.S. Bach, Eugène Ysafe og Paganini. Einnig frumflytur hún Kurìe – stúdíu fyrir einleiksfiðlu eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. 3 Möguleikhúsið sýnir hina bráðskemmtilegu Ástarsögu úr fjöllunum, tónleik fyrir börn, í Gerðubergi á sunnu- dag klukkan 17. Leikritið byggist á sögu Guðrúnar Helgadóttur um skessu og er fyrir börn á öllum aldri. MÆLT MEÐ 1 Fyrstu vortónleikar Karlakórs Reykjavíkur af fernum verða í Langholtskirkju á mánu- dagskvöldið kemur, 6. maí, og hefjast klukk- an 20. Dagskráin verður endurtekin á tón- leikum á þriðjudags- og miðvikudagskvöld og loka- tónleikarnir verða laug- ardaginn 11. maí kl. 16. Á tónleikunum flytur kór- inn mörg af þekktustu ís- lensku karlakórslögunum, lög sem félagarnir hafa sungið oft á löngum starfs- tíma kórsins. Má þar nefna lög eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Bjarna Þorsteinsson og Helga Helgason, auk úrvals erlendra laga. Eins og rúma síðustu tvo áratugi stjórnar Friðrik S. Kristinsson kórnum og Anna Guðný Guðmundsdóttir leikur á flygilinn af kunnum fimleika. Hin ástsæla sópran- söngkona Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, er einsöngvari með kórnum og segir það af- skaplega skemmtilegt. „Mér finnst það alltaf jafn unaðslegar stundir þegar ég fæ tækifæri til að syngja með karlakór. Það er magnað fyrir eina kvenrödd að vera á móti svona raddvegg karla,“ segir hún og bætir við að svo séu þeir svo skemmtilegir – „og sumir mynd- arlegir“, bætir hún við og hlær dátt. „Ég hef nokkrum sinnum sungið með Karlakór Reykjavíkur og farið í utanlands- ferðir með þeim, til Evrópu og Kanada. Það er alltaf góður andi í kórnum.“ Diddú segist ætla að syngja með þeim lög eftir Atla Heimi Sveinsson, sem hann hefur útsett fyrir kóloratúrsópran og karlakór, Vorvísu og Vísur Íslendinga. „Atli er snill- ingur og útsetti þetta frábærlega fyrir okk- ur. Svo syngjum við Vínarvalsa og „Vorið“ eftir Grieg. Það er viðeigandi; við ætlum að reyna að syngja vorið til okkar.“ KARLAKÓR REYKJAVÍKUR KEMUR FRAM Á FERNUM VORTÓNLEIKUM „Alltaf jafn unaðslegar stundir“ DIDDÚ KEMUR FRAM MEÐ KARLA- KÓR REYKJAVÍKUR. HÚN SEGIR MAGNAÐ AÐ SYNGJA EIN Á MÓTI RADDVEGG KARLANNA. Friðrik S. Kristinsson stjórnar Karlakór Reykjavíkur á æfingu í Langholtskirkju. Kórinn kemur fram á fernum tónleikum í kirkjunni í vikunni og syngur meðal annars sívinsæl karlakóralög. Morgunblaðið/Kristinn Sigrún Hjálmtýs- dóttir – Diddú fara gegnum gömul málskjöl og „þá rákumst við aftur og aftur á mál kvenna sem höfðu verið dæmdar grimmilega, og eflaust oft saklausar, fyrir að hafa laumast út í útihús og fætt barn, og að hafa drepið barnið,“ segir hún þar sem við skoðum verkið þar sem orð og lýsingar úr yfirheyrslum og dómum yfir þessum ólánsömu konum eru í þæfðri ullinni. Nærri því er verk frá 2002, Skjól, sem Kristín sýndi fyrst í aflagðri kirkju í Santiago de Compostela á Spáni. Það eru einskonar legsteinar úr plexígleri með nöfnum kvenna sem voru dæmdar fyrir að drepa börn sín, og undir nafninu er ár- talið þegar atburðurinn gerðist. Glerið hvílir á ull sem aftur er á ofanristum úr kirkju- garði. „Ég reyni að halda minningu þessara ólánsömu kvenna á lofti,“ segir Kristín. „Hvernig gat annað gerst en að ég ynni verk út frá þessu efni?“ Einni konunni var drekkt, önnur dæmd til að verða háls- höggvin en dó í varðhaldinu. „Varla var að sjá í málskjölunum að nokkur tæki afstöðu með þessum veslings konum. Kristín Bjart- marsdóttir var dæmd til að fá tvisvar sinn- um 27 vandarhögg. Rannveig á hinum end- anum,“ segir hún og bendir á eitt nafnið, „fékk þrisvar sinnum 27 högg. Svo var æran farin. En nú er ég alveg komin yfir í vatnslit- inn, það er auðveldara en að glíma við text- ílinn, og ég get málað heima við stofu- borðið,“ segir Kristín að lokum. „Ég valdi örnefni sem lýsa staðnum um leið og maður les þau. Mynd kemur í hugann,“ segir Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá um þetta verk, Landslag. Morgunblaðið/Einar Falur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.