Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Blaðsíða 59
5.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
LÁRÉTT
1. Ó, minnka með símafyrirtæki út af rógi. (10)
5. Hljóð sem táknar bilað, hálfþokkalegt og aftur með kommu.
(9)
8. Haf óhamingju hjá skynsömum. (7)
9. Það sem lemúrinn er á mörkunum að vera? (6)
10. Ég með Frostkonu við gil verð lævís. (10)
11. Íþróttatæki notuð á svæði menntastofnunar. (8)
12. Ennþá Íslendingasaga nær að hamra það. (5)
13. Góða nótt styttist í margt, (5)
15. Stjórna týpu með fyrirætlun. (8)
17. Brjáluð kona spilar með visku. (10)
20. Reikar flókin með kíló frá tryggingarfélagi til borgardætra. (10)
23. Horfi á flúinn og verkaðan. (9)
24. Sjálfseignarstofnanir missa foringjana út af kennd. (10)
26. Metum gras með því að minnka. (7)
29. Girðingarstaurinn er ataður skítnum. (6)
30. Finnur með klafa sem er hálfbyggður. (9)
31. Það þegar kind markar sig sjálf? (10)
32. Múslimi skreppur saman að sögn yfir dýrum. (9)
33. Drykkur fær lit aftur við átta beygðar vegna uppástungna. (13)
LÓÐRÉTT
1. Keyrðir við hjá bensínstöð út af óskemmdum. (9)
2. Seint aki með hefti. (6)
3. A! Pabbi með bók sem þú skrifaðir upp. (9)
4. Lágt í iðn aftur við litla ölduhreyfingu. (8)
6. Lasið yfirgefur aðgerðaleysi til að útrýma. (7)
7. Flan Ólínu út af ullarfeiti. (7)
9. Ruglum í þeim sem við getum fests við. (7)
11. Sauð ekki eftir frásögn á þessum stað. (6)
13. Bergrennan er að minnka. (6)
14. Snyrtu ruglaðan tarf sem var erfiðastur. (10)
16. Einn yfir MÍR er erlendi héraðshöfðinginn. (7)
18. Brjálaðar með erlendan bókstaf en ekki sjáanlegar. (6)
19. Kvenkyn eitt nær að sundra í rugli í bleytu. (10)
20. Hluti heilagfiskis er svar í vökva. (8)
21. Ekki rétt brennsluefni gerir þau brjáluð. (10)
22. Í maí kyrrist einhvern veginn takfastari. (10)
25. Elska guðs og biblía, seinni hluti, birtast í landi. (8)
27. Gaukinn má búa til með fjölgun. (7)
28. Sagt er að óánægja með vísindasögusjónvarpsþætti valdi
blæstri. (7)
30. Slæm út af járni. Það eru mistök. (5)
Hinn 10 ára gamli VignirVatnar Stefánsson gerðigóða ferð á heimsmeist-
aramót áhugamanna sem fram fór í
borginni Ilasi í Rúmeníu undir lok
aprílmánaðar. Af 204 keppendum,
sem samkvæmt reglum voru undir
2000 elo-stigum, var hann fyrirfram
skráður í 132. sæti. Hann hlaut 6
vinninga af níu mögulegum, og
hækkaði um 61 stig fyrir frammi-
stöðuna. Afreksmenn í skákinni eru
alltaf að yngjast og ekki verður
betur séð en að Íslendingar standi
vel að vígi hvað varðar efnivið með-
al pilta og stúlkna. Varðandi skák-
styrk sýnist mér Vignir Vatnar
vera á svipuðu róli nú og Hjörvar
Steinn Grétarsson var fyrir 10 ár-
um, leiktæknin er góð, hæfileik-
arnir til staðar og spennandi tímar
framundan, seinna á árinu fara
fram Evrópu- og heimsmeistaramót
ungmenna. Hættur „skákþorpsins“
eru hinsvegar þær að hlaða of
miklum væntingum á ungar sálir.
Stig Vignis eftir mótið í Rúmeníu
eru upp á 1739 elo, en þau segja
samt ekki neitt og marktækara tel
ég að miða við þann árangur sem
hann náði og var reiknaður upp á
2032 elo-stig. Þarna er kannski
kominn vandi elo-stiganna í hnot-
skurn, þau eru ekki alltaf nægilega
marktæk hvað varðar unga og upp-
rennandi skákmenn. Sennilega er
stutt í að Vignir Vatnar nái að
sigra mun stigahærri skákmenn en
þá sem tóku þátt í mótinu í Rúm-
eníu.
Þegar júgóslavneski stórmeist-
arinn Lubomir Ljubojevic var upp
á sitt besta á árunum í kringum
1975, og menn göptu hreinlega yfir
tilþrifum hans í skák sem hann
tefldi við Svíann Ulf Andersson á
stórmótinu í Wijk aan Zee, komst
einn ágætur maður svo að orði að
Ljubo „tefldi með mönnunum“. Lít-
ið um allskyns pot, „raðtækni“ eða
geirneglingar sem einkenndu hinn
nýbakaða heimsmeistara, Anatolí
Karpov. Ungir skákmenn á uppleið
tefla oft „með mönnunum“, sbr. eft-
irfarandi sigurskák Vignis Vatnars
sem tefld var í 8. umferð. Andstæð-
ingurinn var nálega 300 stigum
hærri en okkar maður:
HM áhugamanna 2013:
Mihail-Codmin Neahu (Rúmeníu)
– Vignir Vatnar Stefánsson
Drottningarindversk vörn
1. c4 Rf6 2. g3 e6 3. Bg2 d5 4.
Rf3 Bd6 5. b3 Rbd7 6. Bb2 O-O 7.
O-O b6 8. cxd5 exd5 9. Rh4 c6 10.
d3 He8 11. e4?
Að opna taflið án þess að hafa
lokið liðsskipan kann ekki góðri
lukku að stýra, 11. Rd2 var betra.
11. … Ba6!
Vignir ræðst strax að helsta
veikleikanum í stöðu hvíts, d3-
reitnum.
12. He1 Bb4 13. He3
Hvítur á úr vöndu að ráða en hér
var betra að leika 13. Bc3 t.d. 13.
… Bxc3 14. Rxc3 Rc5 15. exd5 og
hvítur getur barist fyrir tafljöfnun.
13. … dxe4 14. dxe4 Re5 15.
Rc3 Rfg4!
Vignir gefur engin grið. Skyndi-
lega morar allt í veikleikum í stöðu
hvíts.
16. He1 Dxd1
Gott var einnig 16. … Bc5 og
hvítur fær ekki varið f2-peðið með
góðu móti.
17. Hexd1 Rd3 18. Bf1 Rxb2 19.
Bxa6 Rxd1
19. … Bxc3 var nákvæmara en
þetta dugar líka.
20. Rxd1 Had8 21. f3 Re5 22.
Be2 Hd2 23. Kf1 Hed8 24. Rf5 g6
25. Rfe3 Kg7
Hann þarf ekkert að flýta sér.
Úrvinnslan í þessu endatafli er
ágæt.
26. f4 Red7 27. Rc4 Hd4 28.
Rf2 b5 29. Re3 Bc3 30. Hb1 b4 31.
Red1 Rf6 32. Rxc3 bxc3 33. Hc1
Rxe4 34. Rxe4 Hxe4 35. Hxc3
Hd2 36. Bf3 He6 37. a4 Hb2 38.
h4 h5 39. f5 Hf6 40. fxg6 fxg6 41.
Ke1 c5 42. Kd1 Hf5 43. He3 Kf6
44. Be2 Hd5+ 45. Ke1 He5 46.
Hf3+ Ke6 47. Hf2 Hxb3
- og hvítur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
SKÁK
Að tefla með mönnunum
Verðlaun eru veitt fyrir
krossgátu vikunnar. Senda
skal þátttökuseðil í umslagi
merktu: Krossgáta Morg-
unblaðsins, Hádegismóum 2,
110 Reykjavík. Frestur til að
skila úrlausn krossgátu 5.
maí rennur út á hádegi 10.
maí.
Vinningshafi krossgátunnar
28. apríl er Katrín Sigurð-
ardóttir, Hólmvaði 6d,
Reykjavík.
Hún hlýtur í verðlaun bókina Skýrsla 64 eftir Jussi
Adler-Olsen.
Forlagið gefur bókina út.
KROSSGÁTUVERÐLAUN
Nafn
Heimilisfang
Póstfang