Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Page 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2013, Page 64
SUNNUDAGUR 5. MAÍ 2013 Knattspyrnudómari sem dæmir í Pepsideild karla fær greiddar 39.450krónur fyrir hvern leik innanbæjar en aðeins 15.400 krónur fyrir aðdæma leik í Pepsideild kvenna. Aðaldómari í kvennaknattspyrnu þarf því að dæma tvo og hálfan leik til að ná sömu upphæð og greidd er fyrir dómgæslu á einum karlaleik. Laun aðal- dómara karlaleiks eru 156% hærri en laun aðaldómara kvennaleiks. „Það eru bara gerðar meiri kröfur á leiki í karladeildinni,“ segir Þórir Há- konarson, framkvæmdastjóri KSÍ. „Það má líka velta því fyrir sér hver launin eru í karlaboltanum miðað við kvennaboltann. Þau eru ábyggilega í svipuðum dúr,“ segir hann. Sömu reglur eru í karla- og kvennadeildinni, jafnmargir eru inná, jafn- margar mínútur eru leiknar og jafnmikil þörf fyrir góðan dómara hvort sem það er karla- eða kvennaleikur. »60 Gula spjaldið er dýrara í karlaboltanum. Dómari á kvennaleik fær aðeins tæp 40% af greiðslu sem dómari á karlaleik fær. Morgunblaðið/Kristinn DÓMARAGREIÐSLUR Í PEPSIDEILDINNI Meira greitt fyrir að dæma karlaleik en kvennaleik Greiðsla til aðaldómara á leik Pepsi-deild karla Pepsi-deild kvenna 39.450 kr. 15.400 kr. „Ég er með tvo ketti hérna á skrif- stofunni. Nói er þróunarstjórinn í fyrirtækinu og svo er það Rand- ver. Hann er stjórnarformaður,“ segir Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi en hann er með tvo íslenska ketti í vinnunni til að hjálpa til við ákvörðunartöku. „Ég bjargaði Nóa. Hann er undan villi- læðu. Ég var nýbúinn að missa kött og frétti af þessum agnar- litlum. Móðir hans hvarf og syst- kini hans dóu þannig að ég gaf honum mjólk úr sprautu. Hann hefur fitnað mikið og braggast vel en hann borðar alltaf eins og hann sé að borða síðustu kvöldmáltíð- ina.“ JPV er vel rekið fyrirtæki og segir Jóhann að kettirnir eigi sinn hlut í því. „Báðir kettirnir gegna mikilvægu hlutverki. Ef við erum á samningafundum og stjórnar- formaðurinn sýnir einhverja ókyrrð þá hættum við við samn- inga. Það er bara tákn um að þetta sé óheillaspor. Svo þegar ég þarf að taka stórar ákvarðanir þá fer ég til Randvers og heyri í honum hljóðið. Þetta hefur reynst okkur vel. Ég þakka Randveri mikið fyrir velgengni fyrirtækisins,“ segir Jó- hann og klappar Randveri, stjórn- arformanninum sjálfum. GÆLUDÝRIÐ MITT Kettirnir í JPV Félagið um hlutabréf í JPV heitir Randver. Hér er sjálfur JPV ásamt Rand- veri. Eignahlutafélagið Randver EHF. Morgunblaðið/RAX ÞRÍFARAR VIKUNNAR Bjarni Felixson hefur sterka rödd og sterkan svip. Árni Finnsson hefur ekki eins sterka rödd en sterkan svip. Sturla Jónsson er með sterka rödd sem heyrist lítið og sterkan svip. Otrivin Comp, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 0,5 mg/ml og ipatrópíumbrómíð. Ábendingar: Einkenni nefstíflu (þrútinnar nefslímhúðar) og nefrennslis af völdum kvefs. Skammtar og lyfjagjöf fyrir fullorðna eldri en 18 ára: 1 úðaskammtur í hvora nös eftir þörfum, að hámarki þrisvar á sólarhring. Að minnsta kosti 6 klukkustundir skulu líða milli tveggja skammta, draga skal úr skömmtum þegar einkenni lagast. Ekki má nota Otrivin Comp lengur en 7 daga þar sem langvarandi notkun xýlómetazólínhýdróklóríðs getur leitt til bólgu í nefslímhúð og aukinnar slímmyndunar. Snýttu þér. Fjarlægðu glæru plasthettuna. Skorðaðu úðaflöskuna milli fingranna. Úðað er með því að þrýsta kraganum niður að flöskunni. Hallaðu höfðinu örlítið fram. Stúturinn á úðaflöskunni er settur upp í nösina. Úðað er einu sinni, um leið og andað er að sér inn um nefið. Farðu eins að í hina nösina. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ofnæmi fyrir atrópíni eða svipuðum efnum (t.d. hýoscýamín eða skópólamín), ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn, ef þú ert með nefþurrk vegna slímhúðarbólgu eða ert með gláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, hjarta- eða æðasjúkdóm, skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, erfiðleika við þvaglát (stækkaðan blöðruhálskirtil), æxli í nýrnahet- tum, ef þú færð oft blóðnasir (t.d. aldraðir), ert með þarmalömun, slímseigjusjúkdóm, þunglyndi og ert á lyfjameðferð við því. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Nýtt lyf sem verkar bæði gegn nefstíflu og nefrennsli Andaðu með nefinu Nýtt!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.