Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Qupperneq 12
L
yfjagjöf á sjúkrahúsum
er flókin. Það er langt
ferli frá því að læknir
ávísar lyfjum fyrir
sjúkling þangað til
sjúklingur fær lyfin í hendurnar.
Á öllum stigum ferilsins geta orðið
mistök. Rétt áður en lyf eru gefin
þarf að ganga úr skugga um að
lyfin séu rétt miðað við nýjustu
upplýsingar og það getur verið
flókið verkefni. Lyfjanöfn eru lík,
skammtar breytast frá degi til
dags og auðvelt er að ruglast á
lyfjum sjúklinga o.s.frv. Þetta eru
einfaldlega mannleg mistök sem
ómögulegt hefur reynst að koma í
veg fyrir. „MedEye gerir það að
verkum að hjúkrunarfræðingar
þurfa ekki að hafa áhyggjur af
skriffinnskunni sem fylgir,“ segir
Gauti Þór Reynisson, einn af
stofnendum hátæknifyrirtækisins
Mint Solutions. Fyrirtækið var
stofnað árið 2010 en ári síðar
keypti Nýsköpunarsjóður 11% hlut
í því.
Flest mistök án varanlegra
afleiðinga
Niðurstöður rannsókna frá 2007
sýna að 65-78% hjúkrunarfræðinga
á sjúkrahúsum telja sig einhvern
tímann á starfsferlinum hafa gert
lyfjamistök. Í rannsókn, þar sem
fylgst var með hjúkrunarfræð-
ingum við tiltekt og gjöf 3.216
lyfjaskammta á 64 deildum, kom í
ljós að mistök voru gerð í 19% til-
fella. Af þessum niðurstöðum má
gera ráð fyrir að gerðar séu tvær
villur á dag við skráningu eða gjöf
lyfja hjá sjúklingum sem hafa 10
eða fleiri lyf.
„Við vitum að rannsóknir sýna
að mikið er um að lyfjagjafir séu
rangar á einhvern hátt og ég held
að ástandið sé mjög svipað út um
allt í hinum vestræna heimi. Mis-
tökin eru misalvarleg og sem bet-
ur fer langflest án varanlegra af-
leiðinga. Hinsvegar geta margar
tegundir lyfjamistaka leitt til þess
að sjúklingar þurfi t.d. að liggja
inni á sjúkrahúsi einum degi leng-
ur, og þannig verður til kostnaður
sem hægt er að koma í veg fyrir.
Og svo gerist það því miður alltof
oft að mistök leiða til dauða sjúk-
linga, og t.d. hafa rannsóknir í
Hollandi sýnt að rekja megi um
1.250 dauðsföll á ári til lyfjamis-
taka,“ segir Gauti Þór.
Lyfjagjafir sífellt flóknari
Hugmyndin á bak við lausn Mint
Solutions er einföld en tæknin
sem þurfti til að hrinda henni í
framkvæmd er ný af nálinni. Me-
dEye notar tölvusjón til þess að
þekkja í sundur töflur og ber þær
svo saman við lyfjafyrirmæli sem
læknir hefur skráð í tölvu.
Hugmyndin kviknaði þegar einn
af stofnendum Mint Solutions, Ív-
ar S. Helgason læknir, var við
nám í Harvard árið 2008. „Lyfja-
mistök hafa verið vaxandi vanda-
mál á sjúkrahúsum síðustu ár
vegna aukins fjölda lyfja og lyfja-
notkunar almennt. Síðustu 15 ár
hefur lyfjum fjölgað mjög hratt og
lyfjagjafir verða sífellt flóknari. Á
sama tíma og læknar nýta sér
nýjustu tækni til að forðast mis-
tök, þá hefur skort tól fyrir hjúkr-
unarfræðinga. Það er löngu orðið
ljóst að þessu þarf að breyta. Ég
hef unnið með sjúkrahúsum víða í
Evrópu við að taka á þessu
vandamáli og svo var það í raun
fyrir algjöra tilviljun að við átt-
uðum okkur á að tölvusjón væri
svarið. Það hefur ekki verið til
nein praktísk leið til að gera þetta
tékk áreiðanlegt fyrr en nú,“ segir
Ívar.
MedEye virkar sem nokkurs-
konar aðstoðarhjúkrunarfræðingur
sem fylgist með lyfjum og skráir
niður það sem sjúklingum er gef-
ið. MedEye er tekið með að rúmi
sjúklings og rétt áður en hjúkr-
unarfræðingurinn afhendir lyfin,
eru þau sýnd MedEye sem greinir
þau og lætur vita ef eitthvað er
að. Ef allt er rétt, þá skráist
lyfjagjöfin sjálfkrafa.
Mannleg mistök gerast
alls staðar
„Ég held að flestir hafi heyrt sögu
hjá fjölskyldu eða vinum þar sem
einhver hefur óvart fengið vitlaus
lyf inni á sjúkrahúsi. Mannleg
mistök gerast alls staðar, ekki
bara á sjúkrahúsum, en við reyn-
um auðvitað að leysa þau vanda-
mál sem hægt er og sérstaklega
þau sem hafa jafn alvarlegar af-
leiðingar og lyfjamistök geta haft.
Tölvusjón er tiltölulega ný tækni
og við höfum verið svo heppin að
fá úrvalsfólk til liðs við fyrirtækið
til að fullkomna tæknina þannig
að hún nýtist til að útrýma lyfja-
mistökum á sjúkrahúsum,“ segir
Gauti Þór.
Fyrirtækið hefur vaxið undan-
farin tvö ár og þar starfa nú níu
manns. Verkefnið er óvenjulegt og
hefur Mint Solutions sótt starfs-
fólk úr ýmsum greinum, eins og
t.d. stærðfræði, stjarneðlisfræði og
tölvunarfræði. Flestir starfsmenn
fyrirtækisins eru Íslendingar sem
flutt hafa til Íslands eftir nám í
virtum háskólum erlendis eins og
MIT, Harvard, Columbia, Stan-
ford, HIS og Chalmers.
Hollendingar farnir að
nota MedEye
MedEye er nú farið í notkun í
Hollandi og hefur vakið mikla at-
hygli, komið bæði í sjónvarpi, út-
varpi og blöðum. Alþjóðasamtökin
HiMSS (Healthcare Information
Management and Systems So-
ciety), sem beita sér fyrir auknu
sjúklingaöryggi á sjúkrahúsum,
hafa einnig sýnt lausninni mikinn
áhuga og kynnt MedEye sem
áreiðanlegan valmöguleika til að
koma í veg fyrir lyfjamistök á
sjúkrahúsum.
„Það er búið að vera mjög gam-
an fyrir okkur að sjá ADRZ-
ÍSLENSK TÆKNI VEKUR ATHYGLI ERLENDIS
Einföld hugmynd
en flókin tækni
NÝTT ÍSLENSKT FYRIRTÆKI, MINT SOLUTIONS, HEFUR ÞRÓAÐ LAUSN SEM ER ÆTLAÐ AÐ
KOMA Í VEG FYRIR MISTÖK VIÐ LYFJAGJAFIR Á SJÚKRASTOFNUNUM MEÐ ÞVÍ AÐ BERA
KENNSL Á LYF OG BERA SAMAN VIÐ LYFJAFYRIRMÆLI RÉTT ÁÐUR EN SJÚKLINGUR FÆR
LYFIN AFHENT. LAUSNIN MEDEYE ER NÚ ÞEGAR Í NOTKUN Í HOLLANDI OG UNNIÐ ER
AÐ UPPSETNINGU Í BRETLANDI OG NOREGI. MEDEYE ER FYRSTA LAUSNIN Í HEIMINUM
SEM SÉRSTAKLEGA ER HÖNNUÐ TIL AÐ KOMA Í VEG FYRIR MISTÖK VIÐ LYFJAGJAFIR.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Gauti Þór
Reynisson
Ívar S.
Helgason
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013
Veisluþjónusta
Við erum með tilboð sem koma sér
vel við öll tækifæri, s.s. fermingar,
útskrift, skírnina eða afmælið.
Snittur, tapas, heitir
ofnréttir og brauðtertur.
Allar nánari upplýsingar
færðu í síma 533-3000
virka daga milli kl. 8-16.
Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver
Fingramatur, kökur
og konfekt
Tapas, snittur, sushi, kjúklinga-
spjót, heitir ofnréttir, konfekt,
franskir súkkulaðikökubitar,
kransabitar, jarðarber í súkku-
laðihjúp og marsipanterta.
Verð kr. 2.390 á mann