Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 20
*Heilsa og hreyfingSumarfríin eru framundan og ekki úr vegi að láta hollustuna ráða við val á nesti »22
daga nema föstudaga, þegar leiðin liggur í sundlaugina.
„Það er rosalega góð hreyfing að synda og hentar vel
með hinu. Í ræktinni passar maður sig að lyfta ekki of
þungu, fara varlega með liðamót og liðbönd en þjálfa
samt vel alla mögulega vöðva, vegna þess að maður er
í þessu til þess að lengja vellíðanina en ekki til að
skapa vandamál. Þess vegna er mikilvægt að hver og
einn velji það sem honum hentar. Allir ættu að hugsa
um að fara ekki fram úr sjálfum sér og út í einhverjar
öfgar,“ segir Þorsteinn Hjaltason.
Þ
orsteinn stundar heilsurækt og leggur einmitt
mikla áherslu á orðið. Hann fer í tækjasal fjór-
um sinnum í viku, syndir fimmta daginn og
stundar ýmsar aðrar íþróttir að auki. „Maður
fer í ræktina og allt hitt til að viðhalda sér en
ekki til að slá met eða til að monta sig
af afrekum!“ segir Þorsteinn í sam-
tali við Sunnudagsblað
Morgunblaðsins.
Hann æfir sig í tækja-
sal í hádeginu alla virka
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ræktar
heilsuna
ÞORSTEINN HJALTASON, LÖGMAÐUR Á AK-
UREYRI, ER SÉRLEGA VEL Á SIG KOMINN, NÝ-
ORÐINN FIMMTUGUR. HANN HEFUR STUND-
AÐ FJÖLDA ÍÞRÓTTA Í GEGNUM TÍÐINA.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Nýjasta „della“ Þorsteins, eins og hann orðar það sjálf-
ur, er bogfimi. „Æðisleg íþrótt en mjög erfið,“ segir
hann. „Það er nauðsynlegt að draga bogann með sterk-
um bakvöðvum en ekki handleggjum eða öxlum. Bak-
vöðvar verða einmitt oft útundan í ræktinni; það er
miklu karlmannlegra að fara í bekk og vera spurður um
hvað maður lyftir miklu en hvað maður gerir í vélinni
þar sem bakvöðvarnir eru þjálfaðir!“
Í hvert skipti sem ör er dregin er það tog upp á ein 18
kíló, þannig að eftir 100 örvar eru viðkomandi búinn að
toga samtals 1,8 tonn. Oft eru örvarnar miklu fleiri.
Þorsteinn á nokkur mótorhjól og segir nauðsynlegt
að vera í góðu líkamlegu ástandi til að njóta þess að aka
þeim, hvort sem er upp um fjöll og firnindi eða annars
staðar, því það sé erfitt. Meðal annars þess vegna sé dýr-
mætt að vera duglegur í ræktinni; það nýtist svo víða.
Hann ráðleggur hverjum og einum að velja það sem
hentar viðkomandi, en fyrst og fremst að ofgera sér
ekki. Líkaminn þoli ekki allt og honum sé ekki hollt að
reyna of mikið á sig of lengi.
HEFUR ÁHUGA Á MÖRGU
Sitt lítið af hverju
Þorsteinn leikur
listir á enduro-
hjólinu sínu. Hann á
nokkur mismunandi
hjól og fer víða, bæði inn
til dala og upp til fjalla.
* Þorsteinn æfði handbolta og fótbolta sem strákuren 14 ára byrjaði hann að stunda júdó að áeggjan Jóns
bróður síns og Hjalta föður þeirra. Hann keppti lengi í
júdói og átti farsælan feril.
* Hann hefur hjólað mikið í gegnum tíðina, bæði fyr-ir vélarafli og sínu eigin, fer mikið á skíði og skauta, stund-
aði um tíma íshokkí og réri lengi á kajak.
* Íshokkí er skemmtilegasta íþróttin sem hann hefurstundað. „Það var svo rosalega gaman að ég áttaði mig
stundum ekki á því hvað ég var orðinn þreyttur, fyrr en ég
hætti að ná andanum! En þá skipti maður bara út af.“
* „Ég hætti í mótorkrossi eftir að hafa brotið nokkurbein. Áttaði mig á því að það var ekki viðhald heldur nið-
urbrot …“