Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 64
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 2013 Megas og Bragi Valdimar Skúlason semja tónlist við haustuppsetningu Borgarleik- hússins sem er leikgerð á hinu sígilda verki Holbergs, Jeppi á Fjalli. Bendikt Erlingsson, margfaldur Grímu- verðlaunahafi leikstýrir og leikgerir verkið en þýðinguna skapaði Bragi Valdimar. „Mín fyrstu viðbrögð þegar þetta var borið undir mig voru í raun bara að hvá, þar sem ég hafði bara heyrt þennan titil áð- ur en hélt að þetta væri eitthvert verk um bifreiðar og landbúnaðarvélar,“ segir Bragi Valdimar Skúlason. Verkið, sem fjallar alls ekki um bifreiðar heldur bónda að nafni Jeppi, mun skarta Ingvari E. Sigurðssyni í aðalhlutverki. „Verkið er frá 18. öld svo það var bæði gaman og fróðlegt að glugga í gamla text- ann en svo er til fyrri íslensk þýðing sem maður leit aðeins til og reyndi svo bara að djóka þetta aðeins upp,“ bætir Bragi við. „Við í Memfismafíunni og Megas höfum verið að vinna að nýrri Megasar-plötu og þau lög verða nýtt í þessari sýn- ingu. Megas er búinn að vera mjög duglegur að semja og svo á ég nokkur lög. Eins og staðan er núna eru lögin orðin tuttugu og þrjú talsins sem við leggjum til og svo ráða Benedikt og félagar því hvernig þau verða nýtt í sýning- unni.“ Er þetta í fyrsta sinn sem Bragi tekur að sér þýðingu á leikverki en hann hefur áður samið tónlist fyrir verkið Ball- ið á Bessastöðum. Jeppi á Fjalli er fyrsta leikverkið sem Bragi Valdimar þýðir. Morgunblaðið/Árni Sæberg MEGAS OG BRAGI VALDIMAR Semja tónlist fyrir leikhús Lögin sem nýtt verða í uppsetningu Borgarleikhússins verða á væntanlegri plötu Megasar. Morgunblaðið/Einar Falur Benedikt Erlingsson Ingvar E. Sigurðsson Ómar R. Valdimarsson, frétta- maður Bloomberg-fréttaveit- unnar, á tvær ungverskar vizslur, hundinn Húgó og tíkina Heru. „Húgó eignaðist ég þegar ég var í meistaranámi í Bretlandi 2004-5 og flutti síðan greyið með mér heim að náminu loknu. Þeg- ar heim var komið þótti mér og frúnni að hann væri kannski pínu einmana og því fluttum við Heru inn frá Ungverjalandi.“ Húgó virðist henta vel til und- aneldis og hefur fjölgað sér hressilega frá því hann kom til landsins. „Húgó er svaka karl og á sjálfsagt nærri 50 afkvæmi hér- lendis, en aðeins átta af þeim með Heru. Held samt að henni sé pent sama.“ Ómar segir hundana einstaklega skapgóða. „Það er eiginlega lygilegt hvað þeir láta börnin okkar bjóða sér. Þegar dætur mínar voru nýfæddar var Húgó reyndar alveg sérstaklega hugulsamur og lá alltaf við vögg- una þeirra og gætti þeirra. Hera er minni barnagæla, en leyfir þó stelpunum að djöflast í sér. Það eru mikil forréttindi að eiga svona góða hunda og þeir eru svo sannarlega taldir með sem fjöl- skyldumeðlimir,“ segir Ómar. GÆLUDÝRIÐ MITT Lá við vögguna Ungversku vizslurnar Húgó og Hera kunnu vel við sig undir Snæfellsjökli sumarið 2010 í leik með eiganda sínum, Ómari R. Valdimarssyni. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Emmelie de Forest sigurvegari Eurovision. Hera Hilmarsdóttir leikkona.Emilie de Ravin leikkona úr Lost- þáttunum. Voltaren 11,6 mg/g, hlaup. Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Síðustu 3 mánuðir meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir eða augu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á almennum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Consumer Health S.A. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ Fæst án lyfseðils Verkjastillandi bólgueyðandi Veldur síður lyfjaáhrifum um allan líkamann eins og þegar töflur eru teknar inn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.