Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013 Matur og drykkir É g hef gengið með svona bók í maganum lengi því ég veit fátt skemmtilegra en að undirbúa veislur og hvers kyns partí. Barna- afmæli hafa reyndar verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér og ég taldi saman um daginn að ég er líklega búin að halda hátt í 70 barnaafmæli um ævina,“ segir matgæðingurinn Rósa Guðbjartsdóttir. Rósa hefur skrifað um mat og matargerð síðastliðin 15 ár, meðal ann- ars fyrir tímaritið Gestgjafann og aðra fjölmiðla og einnig gefið út eina matreiðslubók. Þá hefur hún ritstýrt fjölda matreiðslubóka fyrir Bóka- félagið. Nýja bókin hennar heitir einfaldlega Partíréttir en þar gefur hún uppskriftir að girnilegum réttum sem henta bæði í veislur sem og til dag- legra nota. Má þar nefna brauðrétti, súpur, kökur, ávaxta- og ísrétti, drykki og fingrafæði. Hún bauð fjölskyldunni heim í kræsingar. „Það hefur einkum verið leitað til mín þegar óskað er eftir skrifum um veislumat, jafnt fyrir litla saumaklúbba sem stærri útskriftarveislur. Við fáum auðvitað öll gesti annað slagið og sjálf er ég þannig að mig langar alltaf að prófa eitthvað nýtt. Þessar uppskriftir eiga það kannski sameig- inlegt að vera fremur auðveldar í undirbúningi, ég vildi hafa þetta þannig að allir réðu við þetta og ekki þyrfti mikinn undirbúning.“ Rósa lumar á mörgum góðum ráðum fyrir þá sem ætla að fá minni eða stærri hóp gesta í heimsókn. „Fyrst þarf auðvitað að huga að því hversu margir eru að koma og þótt mér þykir reyktur lax persónulega mjög góð- ur er erfiðara að bjóða upp á slíkt ef mjög margir eru væntanlegir. Þá er gott að huga að aldurssamsetningunni og reyna að bjóða þá upp á eitt- hvað sem hentar líka yngri kynslóðinni. Ég reyni að hafa alltaf sitt lítið af hverju þannig að allir finni pottþétt eitthvað sem þeim líkar.“ Rósa segir að það sé auðvelt að flaska á því að ætla að hafa of margar tegundir á boðstólum. „Það þarf ekki að fara yfir strikið. Einfaldleikinn er oft góður og mér þykir betra að hafa færri rétti en þá góða á boðstólum. Þá er efnahagur fólks misjafn og ef fólk er að halda stórar veislur en hef- ur lítinn tíma og þá er til dæmis mjög sniðugt að elda góða kjúklingasúpu og hafa einhverja sæta köku á eftir. Það þarf hver að gera það sem hann ræður við og aðalatriðið er að þetta verði ekkert stress svo fólk geti notið samverunnar. En það er líka eitt sem er mjög skemmtilegt og það er að hugsa litina. Það getur gert mjög mikið fyrir heildarútlitið eins og má sjá á þessu bláa þema sem ég valdi.“ 250 g grísk jógúrt, hrein jógúrt eða sýrður rjómi 2 msk. sítrónusafi 1 agúrka, skræld og skorin í bita 3 hvítlauksrif, pressuð 2 msk. ólífuolía handfylli fersk mynta og/ eða dill salt og pipar Hrærið öllu saman og berið fram með til dæmis grískum bollum og öðru góðgæti. Tzatziki- jógúrtsósa Rósa veit fátt skemmtilegra en að undirbúa boð, sérstaklega barnaafmæli. Vinkonurnar Margrét Lovísa Jónasdóttir og Edda Ágústa Björnsdóttir voru ánægðar með partímatinn. RÓSA GUÐBJARTSDÓTTIR MEÐ NÝJA BÓK Fjölbreyttir partíréttir * „Sjálf er égþannig að miglangar alltaf að prófa eitthvað nýtt. Þessar uppskriftir eiga það kannski sameiginlegt að vera fremur auð- veldar í undirbún- ingi, ég vildi hafa þetta þannig að allir réðu við þetta og ekki þyrfti mikinn undirbúning.“ RÓSA GUÐBJARTSDÓTTIR MATGÆÐINGUR ER MIKIL VEISLUKONA OG VEIT FÁTT SKEMMTILEGRA EN AÐ HALDA BARNAAFMÆLI. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Gott er að dýfa smáréttum í ýmiss konar ídýfur og sósur. 5-30 stk. 500 g lambahakk 1 laukur, smátt saxaður 3 hvítlauksrif, marin ½ -1 msk. kumminduft 1 egg 75 g fetaostur, mulinn 100 g brauðrasp 2 msk. fersk mynta, smátt niðurskorin 1 msk. lambakrydd, t.d. 1001 nótt frá Pottagöldrum 1 tsk. salt. Hitið ofninn í 220 gráður. Blandið öllu saman í skál og bú- ið til litlar bollur. Raðið þeim á bökunarplötu sem hefur verið klædd með bökunarpappír. Bak- ið í um 15 mínútur, fer eftir stærð bollanna. Ágætt er að snúa bollunum einu sinni við meðan á eldun stendur, en það er ekki nauðsynlegt. Grískar bollur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.