Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 59
26.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59 LÁRÉTT 1. Til nokkuð skaðaðs kemur nokkra mánaða gamall. (8) 5. Þeytist og grunar miklar. (11) 9. Hertók gamm sem gat orðið að einingu. (10) 11. Óhreini hlutinn af fæti óþokkans. (11) 13. Mitt hljóð tímalega og upphaflega dregur í efa bönd. (14) 14. Nei það er færeyskt og hafnað. (6) 16. Mölvaði stóra á götu. (10) 18. Frásögn nauts af því að hætta. (6) 20. Hópur sem drollar við spilið (6) 21. Hnífur sem gefur frá sér hljóð eins og svín. (8) 23. Ógirnilegur keyrði með legur að ræsi. (11) 26. Eitt svona: . (7) 28. Hugsaðir um mann sem þú varst sammála. (10) 31. Rauðleitur fann autt svæði undir vatni. (9) 32. Sjór rak fyrrverandi út af köku. (8) 34. Ýtum SUS í ofninn út af fiskunum (11) 35. Dvaldir við karlmenn sem voru ekki háttsettir (9) 36. Hestur og fuglar mynda lítið skip. (6) LÓÐRÉTT 1. Eru flötungar með horn til trafala fyrir sjávarspendýr. (11) 2. Spil lappa þegar þeir eru ekki í rúminu. (8) 3. Drepið fisk með grjótinu. (8) 4. Sast og las ruglaður eftir að meiðast. (7) 5. Með gervitanngarð sæti við gúmmelaði. (7) 6. Klukka svissneskrar hetju er gert úr frumefni. (6) 7. Rís eitt ker í byrjun við að hætta. (8) 8. Sagt er að reynist að endingu vera sveitabær. (12) 10. Íri tregans getur sýnt tilvitnanir (10) 12. Hvað, meltingarvökvi í tákni? (6) 15. Aukinn ef ég mynda annað heiti. (8) 17. Harpix hjá breska flughernum. (3) 18. Slit á úri í lokakeppni. (6) 19. Skólarfar finnast í stofnun (6) 20. Drekkur úr íláti við fjall á Austfjörðum. (10) 22. Hem kaðal með goðmagni. (5) 24. Muldra aftur í latmælinu. (4) 25. Hagnist af áfengi án eins út af lönguninni. (7) 27. Dýr í rimlum. (5) 29. Þrefaldur flýtir að ávexti. (6) 30. Alls ekki mörg og frekar ómeidd. (6) 31. Öskrum mikið út af fugli. (6) 33. Útselurinn fæðir. (4) 34. Magnið upp sýkið. (4) Lothar Schmid, yfirdómarans úr„einvígi aldarinnar“ milli Fisc-hers og Spasskís í Laugardals- höllinni sumarið 1972, sem lést þann 18. maí sl. 85 að aldri verður sennilega helst minnst fyrir þátttöku sína í því einvígi. Fjölmiðlar um allan heim hafa einkum staðnæmst við þá frægu stund skáksögunnar þegar Spasskí var á leið út úr borðtennisherberginu þar sem þriðja skákin átti að fara fram eftir að Bobby hafði sagt yfirdómaranum að halda kjafti. En Schmid hermdi upp á sovéska heimsmeistarann loforð sem hann gaf áður en gengið var til leiks. Síðan bað hann Fischer um að gæta orða sinna og Fischer sá að sér og baðst afsökunar. Ógreinileg ljósmynd tekin af innanhússmyndakerfi sýnir þegar Schmid bókstaflega þrýstir skákmeisturunum niður í sæti sín og skipar þeim að hefja taflið. Lothar Schmid hafði verið yfirdómari í einvígi Fischers við Tigran Petrosjan í Bue- nos Aires haustið 1971. Þar bar helst til tíðinda að rafmagnið fór af skák- höllinni í fyrstu einvígisskákinni stuttu eftir að Petrosjan sem hafði svart snaraði fram leynivopni sínu, kynngimagnaðri nýjung í þekktri stöðu Sikileyjarvarnar. Schmid stöðvaði skákklukkuna en Fischer sat áfram við borðið. Petrosjan, sem alla tíð var lafhræddur við „okkar mann“, mótmælti. En í stað þess að víkja frá borðinu bað Fischer dómarann um að setja klukkuna aftur í gang og sat áfram í þungum þönkum í myrkrinu. Eftir einvígið 7́2 fullvissaði Schmid, sem þá þegar var frægur safnari, Guðmund G. Þórarinsson forseta SÍ um að hefð væri fyrir því að aðaldóm- ari í slíkum einvígjum fengi afrifur skorblaðanna. Í dag er mótshaldarinn eigandi slíkra blaða og þá er átt við frumritin. Vissulega mátti með góð- um vilja líta á Schmid sem traustan gæslumann þessara blaða og því var vel fagnað þegar honum var boðið hingað 30 árum síðar á „Málþing um einvígi aldarinnar“ í Þjóðmenning- arhúsinu og hann afhenti skorblöðin. Hann kvað viðskilnaðinn við þessi gulnuðu blöð erfiðan; og hafði vonast eftir þakkarbréfi frá forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, sem sótti málþingið, en fékk ekki. Skorblöð Fischers ganga kaupum og sölum en stærsta safn þeirra er í einkaeign Bandaríkjamannsins Hanon Russel sem á í fórum sínum nokkur frumrit einvígisins. Í Þjóðmenningarhúsinu staðnæmdist Lothar Schmid drjúga stund við sýningu á bókum og hand- ritum sem Willard Fiske gaf Íslend- ingum um aldamótin 1900. „Þið eruð heppnir að eiga þessar bækur,“ sagði hann við mig. Þó Schmid hafi um ára- tuga skeið verið einn fremsti stór- meistari Þjóðverja, var taflmennska hans meira eins og áhugamál, hann efnaðist vel á rekstri útgáfufyr- irtækis sem fjölskylda hans starf- rækti, Karl Mai forlag. Hann átti stærsta einkasafn skákbóka sem um getur og er í dag um 50 þúsund bindi. Meðal bóka er eitt tíu eintaka af fyrstu prentuðu skákbókinni, Repetición de Amores y Arte de Aje- drez eftir frægan spænskan meistara, Lucena, sem kom út árið 1497 og átti allar átta útgáfurnar af kennslubók í skák eftir Pedro Damiano, Questo libro e da imparare giocare a scachi, fyrst útgefin í Róm árið 1512. Á mál- þinginu 2002 nefndi Lothar Schmid töluna 140 þegar spurningu var beint til hans um fjölda bóka sem ritaðar hafa um einvígi Fischers og Spasskís. Síðan hafa nokkrar bæst við. Helgi Ólafsson helol@simnet.is SKÁK Lothar Schmid Verðlaun eru veitt fyrir krossgátu vikunnar. Senda skal þátttökuseðil í umslagi merktu: Kross- gáta Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn krossgátu 26. maí rennur út á há- degi 31. maí. Vinnings- hafi krossgátunnar 17. maí er Sverrir Frið- þjófsson, Skálagerði 6, Reykjavík. Hann hlýtur í verðlaun bókina Svifflug eftir Anne-Gine Goem- ans. Forlagið gefur bókina út. KROSSGÁTUVERÐLAUN Nafn Heimilisfang Póstfang Morgunblaðið/Brynjar Gauti Lothar Schmid með skopmynd af Spasskí og Fischer.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.