Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Blaðsíða 40
HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ
Í GÓÐUM HÖNDUM
Snjallt að
kíkja á okkur
á adal.is
Við erum með fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í
Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á
þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
3
-0
4
6
7
Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár
Reykjavík
Grjóthálsi 10
Sími 590 6940
Reykjavík
Skeifunni 5
Sími 590 6930
Hafnarfjörður
Hjallahrauni 4
(við Helluhraun)
Sími 590 6900
Kópavogur
Skemmuvegi 6
(bleik gata)
Sími 590 6935
Reykjanesbær
Holtsgötu 52
(við Njarðarbraut)
Sími 590 6970
www.adalskodun.is og www.adal.is
Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn
á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með
bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt.
Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013
Föt og fylgihlutir
G
óðærið er mikið í Brasilíu
um þessar mundir. Ekki
bara inni á fótboltavell-
inum eins og hefur
stundum verið heldur líka utan vall-
ar. Ólympíuleikarnir verða haldnir á
næsta ári og hátískan er í banastuði
í borginni sólríku.
Eins og við mátti búast var að
sjálfsögðu mikið lagt upp úr bað-
fatatískunni á tískuviku enda fólkið í
Rio mikið á ströndinni heimsfrægu
Copacabana.
Alexandre Herchcovitch hefur
verið að koma sterk inn í tískuheim-
inn en hún notast mikið við haus-
kúpur í sinni hönnun, eins und-
arlega og það hljómar. Herchcovitch
skar sig úr fjöldanum á tískuvikunni
því hún var eini hönnuðurinn sem
sýndi ekki nýja baðfatalínu.
Triya fékk mikið lof fyrir sína
línu, sérstaklega baðfatalínuna.
Henni var hrósað mikið, meðal ann-
ars af Fox News sem fylgdist með
af athygli. Þrátt fyrir að vera með
sitt merki meira tengt Sao Paulo er
Triya mjög vinsæl í Rio.
Lenny var með stanslaust flæði af
nýjum fötum í skærum litum sem
minntu á hitabeltisávexti. Lenny fór
aftur til níunda áratugarins í sinni
hönnun, var með snjóþvegnar galla-
buxur og neonliti.
Maria Bonita Extra skaut fal-
legum bananabolta beint í sam-
skeytin. Glæsileg sýning sem fékk
alla til að standa
upp og
klappa þeg-
ar henni
lauk.
Triya fór alla leið
með sína hönnun.
En efri hlutinn er
ábyggilega ekki góð-
ur í sjónum.
AFP
Triya sýndi þessa
hönnun. Bikini á
ströndina. Nýtt
lúkk sem fær hausa
til að snúast.
Línan frá Coca Cola clothing fékk standandi lófatak í lok sýningar. Línan notast við eitt stærsta fyrirtækjanafn í heimi en
ekki er vitað hvort gosdrykkjaframleiðandinn komi eitthvað nálægt hönnuninni.
Föt frá Oestudio.
Hér er ekki verið
að leika sér. Loð-
hattur í hitanum.
TÍSKUVIKAN Í RIO
Léttur sumarklæðnaður
BRASILÍUMENN BÚA EKKI BARA TIL GÓÐA FÓTBOLTAMENN. ÞEIR GERA LÍKA AFBRAGÐS
FÖT. Á TÍSKUVIKUNNI Í RIO MÁTTI SJÁ BROT AF ÞVÍ BESTA.
Benedikt Bóas benedikt@mbl.is
Módel í föt-
um frá Coca
Cola hvorki
meira né
minna.