Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Síða 14
H
inn þjóðþekkti Laddi
fer á kostum í ein-
leiknum Laddi
lengir lífið sem
undanfarið hefur
verið sýndur í Hörpu við gríð-
arlegar vinsældir, en sýningum lýk-
ur nú í júníbyrjun. Þessar und-
irtektir ættu ekki að koma á óvart
því Laddi er einn ástsælasti
skemmtikraftur sem þjóðin hefur
átt. „Ég tel aldrei sjálfgefið að ég
fái góðar viðtökur en þessi einleikur
hefur gengið mjög vel og það er
mjög gefandi þegar maður nær
salnum,“ segir Laddi. „Eftir sýn-
ingu kemur fólk oft til mín og
þakkar mér fyrir og þá líður mér
svo vel að ég get ekki hugsað mér
að hætta. Ég held samt að þetta sé
síðasta eins manns sýningin mín, en
ég ætla að halda áfram að leika í
kvikmyndum og leikritum.“
Þetta er mjög persónuleg sýning
og þú ræðir þar meðal annars um
sjálfan þig og æsku þína. Var það
erfið ákvörðun?
„Ég er að opna mig á þann hátt
sem ég hef aldrei gert áður. Strák-
arnir, Sigurður Sigurjóns og Karl
Ágúst sem sömdu einleikinn með
mér töluðu um það í upphafi að ég
ætti að opna mig í þessari sýningu.
Ég var ekki alveg til í það, fannst
það eitthvað skrýtið og var hrædd-
ur um að verða væminn. Svo próf-
aði ég að opna mig fyrir þeim. Við
settum það allt á blað og svo dró ég
aðeins úr því sem ég hafði sagt þar
til ég var orðinn sáttur. Það var
skrýtið að tala um erfiða hluti á æf-
ingatímabilinu, eins og til dæmis
það að ég er skilnaðarbarn og var
þriggja ára þegar pabbi fór. Ég hef
aldrei talað um þetta áður, ekki
einu sinni í viðtölum en geri það nú
á sviði. Mig hefur reyndar oft lang-
að til þess að standa á sviði sem ég
sjálfur og vera eðlilegur en ekki
byggja allt á skrípakarakterum sem
er svo auðvelt.“
Var aldrei ég sjálfur
Í sýningunni kemur fram að þú
þjáðist af miklu óöryggi í æsku.
Segðu mér frá því.
„Ég þjáðist af mikilli feimni og
minnimáttarkennd sem ég hef að
hluta ekki alveg losnað við. Fólki
finnst mjög skrýtið að ég skuli ekki
vera kominn með mikið sjálfstraust,
sem ég hef alls ekki. Þegar ég
ákveð að koma fram á sýningum
segir fólk í kringum mig: „Já, það
verður allt troðfullt“ en ég segi:
„Nei, ég held að núna sé velgengn-
inni lokið. Hver nennir að sjá mig
endalaust?“
Þetta óöryggi hófst í æsku,
kannski út af skilnaði foreldra
minna. Við bræðurnir vorum fjórir
og við skilnaðinn fóru tveir þeir
elstu með pabba austur í sveit þar
sem hann gerðist hrossabóndi en
Hemmi bróðir minn var eftir með
mér hjá mömmu. Ég var mikill
mömmustrákur og mátti ekki af
henni sjá því ég var svo hræddur um
að hún færi líka. Krakkarnir stríddu
mér á því að ég ætti ekki pabba en
ég bjó til ævintýralegar sögur um
pabba sem væri uppi í sveit og ætti
milljón hesta. Mamma var ein með
okkur tvo bræðurna, við vorum nokk-
uð fátæk og ég var ekki í flottasta
klæðnaðinum og það var verið að
stríða mér. Með stríðninni fór að
bera á feimni og minnimáttarkennd
sem ágerðist.
Ég var stöðugt að breiða yfir þetta
óöryggi með alls konar fíflalátum. Í
skólanum var ég aldrei ég sjálfur,
heldur alltaf einhver karakter. Ef ég
var kallaður upp á töflu, sem mér
fannst alveg skelfilegt, þá brást ég
við með því að búa til karakter og lét
eins og fífl og var rekinn í sætið aft-
ur. Ég var með athyglisbrest, sem þá
var kallað að vera tossi, og var í
tossabekk. Ég var með hugann alls
staðar annars staðar en við námið.
Ég var farinn að halda að ég gæti
ekki lært og það var ekki fyrr en ég
ákvað að fara í Iðnskólann sem mér
fór að ganga vel í námi. Þá var ég að
læra fyrir sjálfan mig. Um leið áttaði
ég mig á því að ég væri kannski ekki
svo vitlaus og öðlaðist meira sjálfs-
traust.“
Hvenær fórstu fyrst að koma fram
sem skemmtikraftur?
„Um tvítugt fór ég í hljómsveit og
ætlaði að verða tónlistamaður. Ég
var í hljómsveitabransanum í fimm
ár þangað til ég fékk fyrir tilviljun
vinnu í Sjónvarpinu. Halli bróðir
vann í leikmunadeild Sjónvarpsins
og ég vann í Kassagerðinni. Einn
daginn kom Halli þangað með
Snorra Sveini leikmunahönnuði til
að kaupa pappír. „Ég ætla að kynna
þig fyrir Ladda bróður,“ sagði Halli
við Snorra Svein og þeir fóru inn í
mína deild. Ég var alltaf að teikna
en henti teikningunum jafnharðan
frá mér og samstarfsmenn mínir
hirtu þær og festu upp á vegg.
Snorri Sveinn sá þarna fullt af and-
litsteikningum. „Hver gerir þetta?“
spurði hann. „Laddi,“ sögðu karl-
arnir. Snorri Sveinn sagði: „Svona
menn eiga ekki að vinna í Kassa-
gerðinni, þeir eiga að vinna hjá
Sjónvarpinu.“ Stuttu seinna var ég
ráðinn sem aðstoðarmaður Halla í
leikmunadeildina. Þar var ég stöðugt
með sprell og Flosi Ólafsson sagði
að það þyrfti að nýta þennan dreng
og fékk mér hlutverk í áramóta-
skaupum. Verkefnin komu eitt af
öðru og við Halli fórum að koma
saman í þáttum. Svo var hringt í
okkur og spurt hvort við vildum
skemmta á árshátíð. Nei, við vildum
ekki vera skemmtikraftar. En þegar
við sáum að það var peningur í því
að koma fram á árshátíð ákváðum
við að prófa. Það gekk ekki alltof
vel.“
Af hverju ekki?
„Við réðum okkur á tvo staði og
vorum með skrýtið prógramm, enda
vanir að vera í sjónvarpi en kunnum
ekki að skemmta á árshátíð. Pró-
grammið samanstóð af karakterum
eins og Saxa lækni og auk þess
hermdum við eftir alls kyns hljóðum
og söng með Spike Jones. Við fórum
fyrst í lítinn sal á Loftleiðum þar
sem gestir voru aðallega eldra fólk.
Þegar við kveiktum á segulbandinu
og fórum að herma eftir hljóðum
Spike Jones, varð dauðaþögn í saln-
um þar til gamall maður stóð upp og
sagði: „Hverslags helvítis fíflalæti
eru þetta!“ Við gátum ekkert annað
gert en að slökkva á segulbandinu
og fara út. „Já, við vissum þetta,“
sögðum við hvor við annan. „Nú för-
um við á hinn staðinn og hættum
svo að skemmta.“ Við fórum á
skemmtistað í Hafnarfirði með sömu
Hef ekki mikið
sjálfstraust
LADDI HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EINLEIKNUM LADDI LENGIR LÍFIÐ. Í VIÐTALI
RÆÐIR HANN UM FARSÆLAN FERIL OG ERFIÐ ÆSKUÁR SEM EINKENNDUST
AF VANMETAKENND OG VANLÍÐAN.
Kolbrún bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is
*„Ég á til að vera þurr á manninn ogþungur, kannski er það eitthvað gamaltfrá því ég var lítill og fannst ég vera út-
undan og eitthvað skrýtinn. Þá sat ég oft
einn úti í horni, grét jafnvel og hugsaði með
mér af hverju ég væri ekki eins og hinir.“
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013
Svipmynd
GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA
Frá okkur fara
skyrturnar
skýnandi hreinar
og straujaðar
Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík www.bjorg.is • Sími 553 1380
ÞVOTTAHÚS
EFNALAUG
DÚKALEIGA