Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Side 34
*Græjur og tækniThe New Yorker hefur tekið Strongbox í notkun til að vernda heimildarmenn blaðamanna »36
hafa Norðmenn tekið Leaf best og hann mun vera með mest seldu bíl-
um almennt þar í landi nú um stundir. Umboð fyrir Nissan-bíla hér á
landi hyggst bjóða Leaf til sölu í sumar eða haust, en Elko býður
bandaríska Nissan Leaf árgerð 2013 í þremur útgáfum.
Sjálfsagt finnst flestum það einna mest um vert hve ódýrt það er að
reka rafbíl, enda kostar hver ekinn kílómetri ekki nema 3 krónur og
100 kílómetrarnir því 300 kr., sem samsvarar verðinu á rúmum lítra af
bensíni / dísilolíu. Almennt má segja að orkukostnaður er innan við
10% af því sem er með venjulegan bensínbíl. Við það
bætist að ekki þarf að hafa áhyggjur af
smurolíu á vél, engar olíusíur og eng-
in smurbók, svo dæmi séu tekin.
Fleira kemur til, enda eru þús-
undir hluta á hreyfingu þegar
sprengihreyfill er í gangi, en að-
eins einn í rafmótor.
Það er afbragð að keyra
Nissan Leaf, hann er vitanlega
ótrúlega hljóðlátur, vel sprækur.
Hann er vel rúmur að innan og
farangursrými prýðilegt – dæmigerður
japanskur bíll í millistærð, rétt að meta sem slíkan
án tillits til orkugjafa.
Marga hefur dreymt um bíla sem ganga fyrir rafmagni, ekki sísthér á landi, þar sem rafmagn er endurnýjanleg orka, mengunaf henni svo gott sem engin og raforkuverð með því lægsta
sem gerist í Evrópu. Ýmislegt hefur þó verið í veginum, þar helst að
rafmagnsbílar eru dýrari en bensínbílar, drægni þeirra hefur verið
takmörkuð, þ.e. hve langt hægt er að komast
á hverri hleðslu, og rafhlöður hafa verið dýrar
og ending þeirra takmörkuð. Flest hefur þetta
þó verið leyst sem sannast á rafbílnum Nissan
Leaf sem Elko flytur inn og gengur bara
fyrir rafmagni – ekkert bensín.
Nissan Leaf kom fyrst á
markað í Japan og
Bandaríkjunum
haustið 2010 og í
Evrópu 2011.
Framan af var
salan róleg, en svo er komið að hann er
nú söluhæsti rafmagnsbíll heims, ríflega
60.000 bílar hafa selst um heim allan.
Rétt er að geta þess líka að hann var val-
inn bíll ársins á bílasýninguni í New York í
apríl 2011. Athygli vekur að af Evrópubúum
RAFKNÚINN DRAUMABÍLL
ÓVÍÐA HENTA RAFMAGNSBÍLAR BETUR EN HÉR Á LANDI, HEFÐI MAÐUR HALDIÐ, EN ÞÓ HEFUR GENGIÐ SEINT AÐ
KOMA ÞEIM Á MARKAÐ. ELKO RÍÐUR Á VAÐIÐ MEÐ SANNKALLAÐAN DRAUMABÍL, NISSAN LEAF.
Græja
vikunnar
* Á vefsetri Elko kemur framað hámarksdrægnin sé um 200
kílómetrar á hleðslu samkvæmt
NEDC-mælingum, en miðað við
íslenskar aðstæður sé hún um
130 kílómetrar. Menn hafi svo í
huga að meðalakstur íslenskra
ökumanna á síðasta ári var um 40
kílómetrar á dag.
* Margir hafa áhyggjur af raf-hlöðunni og algengt að spurt sé
um hana. Því er til að svara að
samkvæmt Nissan endist hún í
meira en áratug og er með
80% hleðslugetu eftir tíu ár.
Hægt er að hlaða bílinn með
innstungu heima, en í hrað-
hleðslustöðvum verður hægt að
hlaða upp í 100 kílómetra
drægni á um hálftíma.
ÁRNI
MATTHÍASSON
* Leaf kostar frá 4,7 upp í 5,5milljónir eftir útfærslu. Þegar bún-
aður er borinn saman munar þó
ekki á bílum í sama stærðarflokki;
bakkmyndavél, hiti í öllum sætum
og stýri, tölvustýrð miðstöð, sjálf-
skipting (nema hvað) og þar fram
eftir götunum.
U
nglingar í Bandaríkjunum virðast hafa fengið sig fullsadda á Fa-
cebook. Þetta er meðal þess sem lesa má úr niðurstöðum könn-
unar á nethegðun unglinga sem rannsóknarmiðstöðin Pew birti
nýlega, en hún þykir ein virtasta rannsóknarmiðstöðin í þessum
efnum.
Í svörum unglinganna kom fram að á Facbook væri of mikið af fullorðnu
fólki, of mikið unglingadrama fyrir þeirra smekk og of mikið af gagnslausum
upplýsingum, líkt og hvað vinir þeirra hefðu fengið í matinn. Meðal þess sem
segir í greiningu rannsóknarinnar er að ungmenni líti frekar á Facebook sem
framlengingu á þeim félagstengslum sem þau upplifa í skólanum og heim-
ilislífinu en samfélagsmiðil þar sem þau geta verið þau sjálf.
Þessar niðurstöður endurspegla þá tilfinningu sem fjárfestar hafa haft und-
anfarið, að Facebook þætti ekki lengur „cool“ á meðal yngri notenda. Í nýlegri ársskýrslu
Facebook til fjárfesta sagði meðal annars að það væri ákveðin hætta á að fyrirtækið tapaði
vinsældum hjá yngri notendum sem myndu frekar leita annað.
Vöxtur Facebook á undanhaldi
Í samræmi við þessar niðurstöður hefur vöxtur Facebook í þessum aldurshópi nú stöðvast,
en 77% unglinga sem nota netið eru með Facebook-aðgang. Á sama tíma hefur not-
endafjöldi Twitter í þessum aldurshópi meira en tvöfaldast á milli ára en nú hafa um 26%
unglinga twitter-notendanafn. Þá kemur einnig fram að unglingar deila mun meira af per-
sónulegum upplýsingum en áður og hafa minni áhyggjur af því að þriðji aðili kunni að mis-
nota persónuupplýsingar þeirra, en einungis 9% sögðu það valda sér áhyggjum en 81% full-
orðinna taldi það verulega hættu.
Í rannsókninni kemur fram að unglingar reyna þó að vernda orðspor sitt á netinu af
meiri ákefð en áður. Um helmingur aðspurðra unglinga hafði eytt samskiptum á Facebook
eða fjarlægt nafnið sitt af mynd. Þá hafði stór hluti (3/4) eytt vinum af lista og um 60%
höfðu sett aðila á svartan lista.
TÍSTIÐ TEKUR YFIR
Drama og
fullorðnir
SAMKVÆMT NÝRRI RANNSÓKN Á NOTKUN SAMFÉLAGSMIÐLA HJÁ
UNGLINGUM SEM FRAMKVÆMD VAR Í BANDARÍKJUNUM ER TWITTER SÁ
SAMFÉLAGSMIÐILL SEM STÆKKAR ÖRAST Á MEÐAL UNGLINGA.
Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com
Íslensk ungmenni í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ nota vafalaust bæði Facebook og Twitter
en jafnaldrar þeirra vestanhafs tísta nú meira en þeir nota fésbókina.
Morgunblaðið/Styrmir Kári