Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Qupperneq 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Qupperneq 37
26.5. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Smáralind | Sími 512 1330 Laugavegi 182 | Sími 512 1300 Verð frá: 249.990.- iPhone 5 Verð frá: 119.990.- 2.000 kr. símnotkun á mánuði í 12 mánuði hjá NOVA fylgir iPhone 5, keyptum hjá epli.is Gildir í áskrift og frelsi. iMac *Þ ar af lá nt ök ug ja ld 3, 5% og þó kn un se m ne m ur 33 0 kr .á hv er ja gr ei ðs lu .* *M ið as tv ið lá ns up ph æ ð 24 9. 99 0 kr . Fæst á vaxtalau su láni*. Aðeins 21.89 2 kr. á mán í 12 mán uði. hann þó lært, svo sem japönsku og stærðfræði. Nægðu fjórir tímar Ungur var Karp fluga á vegg í kvikmyndafyrirtæki fjölskylduvin- arins Freds Seiberts, Frederator Studios, og heillaðist af tölvuvinnsl- unni. Fyrsta vinnan hans var hins vegar hjá UrbanBaby, fyrirtæki í New York sem er einskonar sam- skiptavettvangur foreldra á netinu. Fyrirtækið þurfti á tæknilegri að- stoð að halda og fékk Karp tvo sól- arhringa til að ljúka verkinu. Hon- um nægðu fjórir tímar. Að því búnu var hann ráðinn í fast starf. Karp skilaði sínum verkefnum en dag einn þegar forstjórinn þurfti að finna hann kom í ljós að hann hafði búið í Tókíó í þrjá mánuði. Gleymdi bara að segja frá því. Þessi óvænta uppákoma hafði engin áhrif á stöðu Karps hjá UrbanBaby. Þvert á móti buðust honum bréf í fyrirtæk- inu. Þegar UrbanBaby var selt árið 2006 lét Karp af störfum og notaði hagnaðinn af sínum hlut í fyrirtæk- inu til að koma á fót eigin ráðgjafa- fyrirtæki, Davidville, auk þess að sinna sínum hugðarefnum. Áhugi Karps á örbloggi jókst hröðum skrefum og í tveggja vikna fríi milli verkefna hannaði hann Tumblr, ásamt félaga sínum, Marco H ann lifir einföldu lífi, sem endurspeglast í ör- blogga- og samfélags- vefnum sem hann fann upp. Býr í svo til tómri íbúð og á, að sögn, aðeins ein jakkaföt. Hann hætti fimmtán ára í skóla, til að sinna köllun sinni, sköpun í vef- heimum, og þegar hann var sautján ára hafði hann búið í þrjá mánuði í Tókíó þegar vinnuveitandi hans átt- aði sig á því að hann var ekki leng- ur í New York. Ekki svo að skilja að hann hafi setið auðum höndum – það er hann ófær um. Og nú er David Karp orðinn milljarðamær- ingur eftir kaup netrisans Yahoo á fyrirtæki hans, Tumblr, í vikunni. Kaupverðið var engin skiptimynt, 1,1 milljarður bandaríkjadala, jafn- virði um 135 milljarða króna. 25% hlutur Karps í Tumblr ætti að gefa af sér 275 milljónir bandaríkjadala í aðra hönd. David Karp fæddist í New York 6. júlí 1986 og er því 26 ára. Faðir hans er kvikmyndatónskáld og móð- ir hans kennari. Ellefu ára gamall fór hann að spreyta sig á heimasíð- ugerð og fimmtán ára hætti hann í skóla til að sinna því hugðarefni sínu. Fyrst um sinn las hann utan skóla í þeim tilgangi að innritast í háskóla en af því varð ekki. Karp hefur enga útskriftarpappíra úr skóla upp á vasann. Sitthvað hefur Arment. Vefnum var hrint af stokk- unum í febrúar 2007. Tumblr sló fljótt í gegn sem ein- föld leið til að blogga, deila mynd- um og fylgjast með uppátækjum annarra. Það er einmitt einfaldleik- inn sem virðist heilla marga. Ekk- ert þarf að læra, bara skrá sig inn og byrja að miðla upplýsingum. Hinn einfaldi smekkur Karps sjálfs þykir skína í gegn. Virkir notendur Tumblr voru 117 milljónir á síðasta ári, samanborið við 58 milljónir árið á undan. Þessar tölur koma ekki frá Karp sjálfum, sem hefur skömm á hvers kyns notendatalningu. Frelsandi og hvetjandi tilfinning Karp helgaði sig fljótlega Tumblr. „Ég gerði mér snemma grein fyrir því að ég yrði að eyða öllum deg- inum í þetta verkefni sem átti hug minn allan. ... Það var ótrúleg, frels- andi og hvetjandi tilfinning,“ sagði hann í samtali við tímaritið Fast Company. Sumir óttast að Tumblr verði nú risanum að bráð og notendum hef- ur þegar fækkað nokkuð í kjölfar sölunnar. Á móti kemur að Karp verður sjálfur áfram við stjórnvöl- inn og lítil hætta á því að stíll hans breytist. Um það vitnar færsla hans, þar sem sölunni er fagnað. „Andskotinn sjálfur, David.“ Karp getur borgað sig AFP DAVID KARP, STOFNANDI ÖRBLOGGA- OG SAMFÉLAGSVEFJARINS TUMBLR, ER EKKI Á FLÆÐI- SKERI STADDUR EFTIR SÖL- UNA TIL YAHOO. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is David Karp brosmildur ásamt Marissu Mayer, forstjóra Yahoo. TÆKNIRISINN APPLE UNDIR SMÁSJÁ SKATTAYFIRVALDA Löglegt en siðlaust skattaskjól ÞINGNEFND HJÁ BANDARÍKJAÞINGI HEFUR KOMIST AÐ ÞEIRRI NIÐURSTÖÐU AÐ APPLE HAFI BEITT VAFASÖMUM AÐFERÐUM VIÐ UPPGJÖR Á METHAGNAÐI FYRIRTÆKISINS UND- ANFARIN ÁR. APPLE VERST OG SEGIR EKKERT ÓHREINT MJÖL Í POKAHORNINU. Þ ingnefnd bandarísku öld- ungadeildarinnar sakar tæknifyrirtækið Apple um að vera á meðal þeirra fyrirtækja landsins sem reyni hvað mest að komast hjá því að greiða skatta. Nefndin segir að Apple hafi notað flókið net aflandsfélaga til að komast hjá því að greiða milljarða dala í tekjuskatt í Bandaríkjunum. Þetta kemur fram á vef breska rík- isútvarpsins. Tim Cook, forstjóri Apple, kom fyrir þingnefndina og svaraði fyrir- spurnum þingmanna um þetta mál. Að auki hefur þetta ýtt við umræðu um skattkerfið í Bandaríkjunum og hvort ekki sé kominn tími til að end- urskoða það í ljósi þess að fyrirtæki á borð við HP, Microsoft og fleiri hafa verið í svipuðum gjörningi að undanförnu en þó enginn með jafn miklum hætti og Apple hefur orðið uppvíst að. „Við greiðum alla þá skatta sem við skuldum, hvern einasta Banda- ríkjadal. Við fylgjum ekki aðeins lögunum heldur förum eftir anda þeirra. Við beitum engum skatta- brellum,“ sagði Cook. Apple á 145 milljarða dala í reiðufé en að sögn nefndarinnar eru um 102 milljarðar dala geymdir utan Bandaríkjanna. Eitt þessara félaga, Apple Sales International sem staðsett er á Ír- landi, hafði verið með veltu upp á 74 milljarða dala á fjögurra ára tíma- bili en greiddi nær engan skatt. Ár- ið 2011 nam hagnaður ASI fyrir skatta 22 milljörðum dala, en það ár greiddi fyrirtækið aðeins 10 millj- ónir dala í skatt, sem jafngildir 0,05% skatthlutfalli. Það þykir ekki hátt hlutfall. Forsvarsmenn Apple segja að fyrirtækið sé einn stærsti skatt- greiðandi Bandaríkjanna. Það hafi til að mynda greitt 6 milljarða dala í tekjuskatt fyrirtækja á síðasta ári. Sum stórfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að vilja ekki flytja til Bandaríkjanna erlendan hagnað, en þau vilja forð- ast 35% skattlagningu. Fyrirtækja- skatturinn í Bandaríkjunum er einn sá hæsti í heimi. Á Íslandi er tekju- skatturinn 20%. Samanlagt geyma stærstu 83 fyr- irtæki Bandaríkjanna 1,45 trilljón - þúsund milljarða - bandaríkjadala í erlendum skattaskjólum samkvæmt Bloomberg-fréttaveitunni. Tim Cook forstjóri Apple varðist af hörku fyrir framan nefndina sem sak- AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.