Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Side 50
50 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013
N
úna um helgina lýk-
ur í Cannes
stærstu kvik-
myndahátíð í heimi.
Það var við hæfi að
þessi glamúrhátíð væri opnuð með
glamúrmyndinni The Great
Gatsby. Þótt þema myndarinnar sé
að þú kaupir ekki hamingju með
peningum virðast flestir í Cannes
vera á því að það sé gott að eiga
þá og helst nóg af þeim. Ekki er
hægt að segja til um hvaða mynd
vinnur keppnina en margar koma
til greina. Tímaritið Screen birtir á
hverjum degi meðaltal stjörnugjaf-
ar áhrifamestu dagblaða heimsins
og í þeirri úttekt er það mynd Co-
hen-bræðranna, Inside of Llewyn
Davis, sem er fremst á meðal jafn-
ingja með 3,3 stjörnur að meðaltali.
Áhugaverð mynd og ekki langt á
eftir er ítalska myndin The Great
Beauty eftir Paolo Sorrentino með
2,8 stjörnur. Efni hennar er glam-
úrkennt enda fjallar hún um lýta-
lækni sem er eins og goð á meðal
manna og lengir líf stjarnanna. En
í raun er dómnefndinni, með Ste-
ven Spielberg í broddi fylkingar,
nokk sama um stjörnugjöf gagn-
rýnenda því þau ráða þessu á end-
anum. Oft hafa myndir sem fengu
slæmar viðtökur gagnrýnenda ver-
ið settar í öndvegi af nefndinni.
Eins og alltaf hafa sumar myndir
vakið meiri athygli en aðrar. Þann-
ig hefur mynd Stevens Soder-
berghs vakið nokkra athygli en
hún fjallar um tvo laumuhomma á
sjöunda áratugnum. Soderbergh
hefur sagt frá því að þrátt fyrir
vinsældir hans sem kvikmyndaleik-
stjóra hafi öll kvikmyndastúdíóin
hafnað handritinu og hann hafi á
endanum þurft að fara með hand-
ritið til HBO sem fjármagnaði gerð
hennar. Að sögn Soderberghs var
myndin of hommaleg fyrir Holly-
wood.
Mynd Nicolas Windings Refns,
Only God Forgives, er hrottaleg
ofbeldismynd sem hefur vakið
hrifningu margra en óhug hjá öðr-
um. Með hjartaknúsarann Ryan
Gosling í aðalhlutverkinu er aldrei
að vita nema hún verði samt bæði
vinsæl og virt.
Engin svakaleg hneyksli urðu á
hátíðinni í þetta skiptið enda vant-
aði Lars Von Trier á hana, en
hann setur alltaf allt á annan end-
ann þegar hann mætir. Síðast þeg-
ar hann kom, fyrir tveimur árum,
var hann rekinn burt af hátíðinni
vegna ummæla hans um að hann
væri nasisti.
En þótt hátíðin hafi verið skand-
alalaus hefur glamúrinn verið næg-
ur. Hingað hafa flestar þekktustu
stjörnurnar mætt; Leonardo di
Caprio, Michael Douglas, Ryan
Gosling, Matt Damon, Nicole Kid-
man og allar þær stjörnur sem
maður getur ímyndað sér. Á sama
tíma og þær baða sig í sviðsljósinu
hafa myndir gengið kaupum og söl-
um fyrir hundruð milljóna dollara.
Cannes er og verður stærsta og
flottasta kvikmyndahátíð í heimi.
Christoph Waltz er austurrískur leikari sem Tarantino gerði heimsfrægan í
tveimur bíómyndum sínum: Django og Inglorious Basterds.
Carey Mulligan og John Goodman leika í nýjustu mynd Cohen-bræðra.
Elsa María Jakobsdóttir og Þórir Snær Sigurjónsson frá Zik Zak mættu á rauða dregilinn þegar kvikmynd Nicolas Wind-
ings Refns, Only God Forgives, var frumsýnd enda Þórir Snær einn af framleiðendum hennar.
Michael Douglas er í óvæntu hlutverki laumuhomma í nýjustu kvikmynd
Soderberghs sem frumsýnd var á hátíðinni og fékk góðar viðtökur.
GLAMÚRHÁTÍÐINNI VIÐ FRÖNSKU RIVÍERUNA AÐ LJÚKA
Úrslitin ráðast í
Cannes um helgina
GLAMÚRVEISLUNNI Í SUÐUR-FRAKKLANDI LÝKUR UM HELGINA EN Á SUNNUDAGS-
KVÖLDIÐ VERÐA ÚRSLIT KVIKMYNDAHÁTÍÐARINNAR Í CANNES KUNNGERÐ. BÚIÐ ER AÐ
FRUMSÝNA ÞÆR TUTTUGU BÍÓMYNDIR SEM KEPPA UM GULLPÁLMANN EN AÐEINS EIN
ÞEIRRA VINNUR.
Texti: Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Myndir: Halldór Kolbeins