Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Síða 52

Morgunblaðið - Sunnudagur - 26.05.2013, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26.5. 2013 Árleg vorsýning fyrsta árs nema Ljósmynda- skólans verður opnuð á laugardag klukkan 15 í húsnæði skólans á Hólmaslóð 6 í Örfirisey. Að þessu sinni sýna fimmtán nemendur skapandi ljósmyndir sem eru afrakstur starfs vetrarins, undir handleiðslu margra kunnustu ljósmyndara landsins. Viðfangsefnin eru af ólíkum toga og úrvinnslan ekki síður fjöl- breytileg; sumir takast á við portrett af fólki en einnig má sjá portrett af köttum og fulltrú- um ólíkra starfsstétta, heimildaljósmyndir af hjartveikum hetjum, gömlum drossíum og sundmenningu. Sumir takast á við ljóðræna túlkun en aðrir harðan veruleikann. Sýningin er opin kl. 16 til 20 virka daga og kl. 14 til18 um helgar. SÝNING LJÓSMYNDASKÓLANS MYNDIR AÐ VORI Eitt verkið á sýningunni. Á henni kennir ýmissa grasa og sjá má ólíkar glímur við miðilinn. Flytjendur á tónleikum Kammersveitar Reykja- víkur þar sem verk Lutosławskis verða leikin. Kammersveit Reykjavíkur flytur á sunnu- dagskvöld klukkan 20 verk eftir pólska tón- skáldið Witold Lutosławski (1913-1994) á tónleikum í Norðurljósasal Hörpu. Petri Sakari stjórnar kammersveitinni á tónleik- unum sem eru á dagskrá Listahátíðar. Lutosławski var eitt virtasta tónskáld Pól- lands og skipar stóran sess í evrópskri tón- listarsögu. Í Póllandi er árið í ár helgað minn- ingu hans. Í tilefni af aldarafmæli hans flytur Kammersveitin úrval verka sem er hvert á sinn hátt opinberun á heillandi hljóðheimi hans, sem lýst hefur verið sem einu heild- stæðasta æviverki tónskálds á 20. öld. LEIKA VERK LUTOSŁAWSKIS PÓLSK VEISLA Bandaríski rithöfundurinn Lydia Davis hreppir hin virtu alþjóðlegu Man Boo- ker-bókmenntaverðlaun sem veitt eru annað hvert ár. Verðlaunaféð nemur 60.000 pundum eða um 12 milljónum króna. Gagnrýnendur hafa löngum átt erfitt með að skrilgreina skrif Davis en hún hefur einkum verið sögð skrifa smá- eða örsögur og hafa margir yngri höfundar talið hana meðal helstu áhrifavalda. Verðlaunin eru veitt fyrir heildarverk höfundar og áhrifin sem það hef- ur haft á samtímabókmenntir heimsins. Phil- ip Roth hreppti verðlaunin síðast og Alice Munro þar á undan. Meðal höfunda sem voru tilnefndir að þessu sinni má nefna U.R. Ananthamurthy, Aharon Appelfeld, Intizar Husain, Yan Lianke og Marie NDiaye. MAN BOOKER-VERÐLAUNIN DAVIS VALIN Lydia Davis Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir kemur fram á tónleikum í Norðurljósasal Hörpu á mánudagskvöld, ásamt spænsku kammersveitinni Sonor Ensemble. Hún hefur komið fram víða um lönd með sveitinni á liðnum árum og flutt spænska tónlist, en þau eru öll búsett í Madríd þar sem hljóð- færaleikararnir starfa einnig með Sinfóníuhljómsveit Spánar. „Við höfum komið fram í mörgum löndum Evrópu og Suður-Ameríku, styrkt af spænska ríkinu og kynnt spænska tónlist. Það er sérkennilegt að koma nú fram á Íslandi sem fulltrúi spænskrar tónlist- ar,“ segir hún. „Mig langaði að koma með hljómsveitina heim til Íslands og það tókst blessunarlega að afla styrkja til þess, og það er ánægjulegt að koma fram á Listahátíð,“ segir hún. Á tónleikunum kemur Guðrún Jóhanna fram með strengjakvintett, píanóleikaranum Sebastíán Maríné, sem er jafnframt eitt kunnasta tónskáld Spánar í dag, og stjórnandanum Luis Aguirre. Á efnisskrá eru meðal annars sívinsæl sönglög eftir Manuel de Falla, með rætur í ólíkum héruðum Spánar, önnur eftir Boccherini og Alís, útsetningar Lorca á þjóðlögum og verk sem Daníel Bjarnason samdi sérstaklega fyrir söngkonuna, „Three Larkin Songs“. Það var frumflutt á Kammertónleikum á Kirkjubæjarklaustri en hefur ekki verið flutt hér á landi í þessari útsetn- ingu Daníels. „Við höfum flutt þessi sönglög talsvert ytra og þau hafa vakið umtalsverða athygli, almennra áheyrenda en einnig spænskra tónskálda. Ég get lofað litríkri, skemmtilegri og ástríðufullri efnisskrá,“ segir Guðrún Jóhanna síðan. „Þessi spænska tónlist einkennist af kátínu sem er talsverð andstæða norrænnar tónlistar. Í anda Spánverja get ég sagt að hún sé býsna „bragðmikil“,“ segir hún. efi@mbl.is GUÐRÚN JÓHANNA ÓLAFSDÓTTIR OG SONOR ENSEMBLE Í HÖRPU Lofar litríkri og ástríðufullri efnisskrá „ÞESSI SPÆNSKA TÓNLIST EINKENNIST AF KÁTÍNU SEM ER TALSVERÐ AND- STÆÐA NORRÆNNAR TÓNLISTAR,“ SEGIR SÖNGKONAN UM EFNISSKRÁNA. Menning É g er mjög ánægður með að hafa farið að safna teikningum en ekki málverkum; ég tel teikningar iðu- lega vera persónulegri og meira upplýsandi verk,“ segir Wynn Kramarsky. Þessi Bandaríkjamaður veit sitt- hvað um söfnun listaverka, og hefur ákveð- inn smekk eins og sjá má á sýningunni Art- =Text=Art sem var opnuð á dögunum í Hafnarborg og er á dagskrá Listahátíðar. Á sýningunni er á níunda tug listaverka, eftir hátt í fimmtíu alþjóðlega listamenn, úr safni Kramarsky-hjónanna, Wynn og Sally. Þau hafa undanfarna áratugi safnað verkum af ástríðu og fyrst og fremst teikningum; í safninu munu vera um 3.000 verk og 2.000 til hafa þau gefið ýmsum söfnum og menning- arstofnunum víða í Bandaríkjunum. Um ára- bil ráku hjónin rómaðan sýningarsal í New York, þar sem þau settu upp sýningar með verkum úr safneigninni. Undanfarin ár hafa þau sett saman margar farandsýningar á borð við þessa sem hér er; metnaðarfullar sýningar með verkum eftir forvitnilega lista- menn sem einkum eru kenndir við mínimal- isma og konseptlist. Verkin á sýningunni eru unnin á tíma- bilinu 1960 til 2012 og eru meðal annars eftir Dan Flavin, Jasper Johns, Sol LeWitt, Ed Ruscha, Cy Twombly, Trisha Brown og Lawrence Weiner. Þá eru sýnd tvö verk eft- ir Jón Laxdal. Sýningin veitir innsýn í það hvernig myndlistarmenn nota texta sem efni- við og sem hugmyndalegan grunn í verk sín. Söfnun byrjar með verki á vegg Áður en sýningin Art=Text=Art kom hing- að til lands hafði hún verið sett upp í tveim- ur háskólasöfnum í Bandaríkjunum. Wynn Kramarski segir hugmyndina að efnistök- unum hafa komið upp í samtali þeirra Rac- hel Nackman sýningarstjóra safneignar þeirra hjóna, um það hvað stór hluti safnsins tengdist texta á einn eða annan hátt. „Þetta var tækifæri til að hella sér út í nýja og áhugaverða greiningu á safneigninni,“ segir Kramarsky og bætir við að hann hafi fyrir nokkru ákveðið að hætta að láta prentaðar sýningaskrár fylgja sýningum sínum, þær safni bara ryki á hillum og séu ekki um- hverfisvænar. Þess í stað fái hver sýning sinn vef. En þegar þessi snaggaralegi 87 ára safnari er spurður að því hvort ráði för þeg- ar hann velur teikningar að kaupa, ástríðan eða skynsemin, spyr hann á móti: „Getur þú aðskilið þetta tvennt þegar myndlist á í hlut? Nei, ég hélt ekki. En enginn byrjar að safna listaverkum með því að lýsa yfir að hann ætli að verða safnari. Maður setur eitthvað upp á vegg hjá sér því manni finnst það fallegt eða áhuga- vert, svo kaupir maður kannski fleiri eða skiptir á verkum. Sjálfur byrjaði ég að safna um miðjan sjötta áratuginn en þá var ég með fína vinnu og ágætar tekjur, á meðan margir vinir mínir sem voru listamenn höfðu litla innkomu. Þegar við fórum út saman keypti ég oft bjór fyrir okkur alla og í stað- inn var stundum gaukað að mér papp- írsblaðið með teikningu á. Það var líklega öllum í hag. En að því kom, einhvern tímann á sjöunda áratugnum, að mér fannst ég verða að taka söfnunina alvarlega. Þá hafði ég kynnst verkum Sol LeWitts, og skrifum hans og félaga hans; ég ákvað að þar lægi áhugi minn í myndlistinni. Formfesta míni- malismans og vitsmunalegt innihaldið hreif mig; hinn áþreifanlegi þáttur kenninganna. Ég hafði ekki áhuga á kenningum um eitt- hvað sem hafði þegar verið gert.“ Keypti mest beint af listamönnum Kramarsky segist lengi hafa haft áhuga á sköpunarferlinu, hvernig listaverk verði til, og hvað það varðar sé mínimalisminn sér- staklega áhugaverð liststefna. „Ég er að skoða ferli í verkunum frekar en frásögn og þegar maður veltir ferlinu fyrir sér þá er nauðsynlegt að taka annaðhvort þátt í því huganum eða bregðast við því, á vits- munalegan eða tilfinningalegan hátt. Hvað Á SÝNINGUNNI ART=TEXT=ART Í HAFNARBORG ERU MYNDVERK ÚR SAFNI KRAMARSKY-HJÓNANNA Mínimalisminn fær mann til að hugsa „ALLAR TEIKNINGAR Í MÍNU SAFNI ERU ÞAR VEGNA ÞESS AÐ ÉG HAFÐI ÁHUGA Á FERLINU, HVERNIG ÞÆR URÐU TIL,“ SEGIR BANDARÍSKI MYNDLISTARSAFNARINN WYNN KRAMARSKY. Í SAFNI HANS ERU UM 3000 VERK. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Verk eftir Jane Hammond á sýningunni, „Four Ways to Blue“, frá árinu 2006. Á sýningunni eru tvö verk eftir Jón Laxdal sem Kramarsky keypti í galleríi hans í Berlín. Þetta nefnist „Dagbókarsíða“ og er frá 1994.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.