Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013 Ný ríkisstjórn hefur fengiðvinsamlega móttökur, enda var möru lyft af þjóðlífinu er stjórn Jóhönnu og Steingríms loksins fór.    Hún hafði þálafað sem minnihlutastjórn í tæp tvö ár. Góð- kunningjar tilver- unnar eru þó farn- ir að sýna á spilin, eins og kom í ljós þegar „RÚV“ sagði frá 300 manna mótmælum á stjórnarráðsblettinum og marg- faldaði þau með 10.    Styrmir Gunnarsson bendir á,að nú sé þess beðið með eftir- væntingu hvað ný ríkisstjórn hafi fram að færa:    Hún hefur tekið við í góðu ogjákvæði andrúmslofti og fengið byr í seglin.    En það er auðvelt að missaþann meðbyr.    Það skiptir gríðarlegu máli fyr-ir framtíð þessarar nýju rík- isstjórnar að hún sýni strax á sumarþingi að henni sé full al- vara með þeim fyrirheitum, sem stjórnarflokkarnir og þá ekki sízt Framsóknarflokkurinn hafa gefið um úrlausn á skuldavanda heim- ilanna.    Þótt enginn ætlist til að húnleysi þau mál í einu vetfangi verður hún að sýna á spilin með skýrum hætti.    Annars getur hveitibrauðs-dögum hennar lokið með skjótum hætti.“ Styrmir Gunnarsson Hveitibrauðið má ekki mygla STAKSTEINAR Veður víða um heim 3.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 súld Bolungarvík 15 skýjað Akureyri 16 alskýjað Nuuk 1 snjókoma Þórshöfn 12 skýjað Ósló 16 heiðskírt Kaupmannahöfn 17 heiðskírt Stokkhólmur 13 skýjað Helsinki 25 heiðskírt Lúxemborg 16 heiðskírt Brussel 15 léttskýjað Dublin 17 skýjað Glasgow 20 léttskýjað London 16 léttskýjað París 16 heiðskírt Amsterdam 13 léttskýjað Hamborg 17 léttskýjað Berlín 17 skýjað Vín 11 skúrir Moskva 23 heiðskírt Algarve 25 heiðskírt Madríd 26 heiðskírt Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 20 léttskýjað Aþena 22 léttskýjað Winnipeg 16 léttskýjað Montreal 15 alskýjað New York 22 alskýjað Chicago 15 léttskýjað Orlando 28 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:15 23:39 ÍSAFJÖRÐUR 2:25 24:38 SIGLUFJÖRÐUR 2:05 24:24 DJÚPIVOGUR 2:33 23:19 Byggingargallar hafa komið upp í einni af hverri 13 byggingum sem byggðar hafa ver- ið og teknar í notkun á Íslandi árin 1998-2012. Þar af voru flestir gallarnir 2009 en byggingargallar voru í 15% af byggðum fasteignum það ár. Flestar tilkynningar um galla komu árið 2006. Þetta kemur fram í lokaverkefnis- rannsókn meistaranemans Sigurðar Rúnars Birgissonar sem nam fram- kvæmdastjórnun við tækni- og verk- fræðideild HR. Sigurður skoðaði annars vegar dómsmál sem höfðuð hafa verið vegna byggingargalla ár- in 1998-2012 og hins vegar skoðaði hann gögn tryggingarfélaga. Sam- kvæmt rannsókninni nam áætlaður kostnaður tryggingarfélaga við gall- ana um 4 milljörðum króna. „Hér er ekki búið að taka tillit til allra þeirra mála þar sem fasteigna- eigandinn semur beint við verktak- ann um afslátt á fasteigninni,“ segir Sigurður og telur að vandinn geti verið stærri. vidar@mbl.is Galli í einni af þrettán Byggingargallar eru tíðir. Milljarðakostnaður vegna byggingargalla „Þetta er í raun bara tilfærsla á fjár- munum, en ekki viðbótarfjárveit- ing,“ segir Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, um tillögu sem hann lagði fram í bæjarráði Kópavogs 30. maí síðastliðinn. Hún gengur út á að hluti þeirra fjármuna sem ætlaðir eru fyrir hreinsun á veggjakroti fari í verkefni sem snúi að veggskreytingum. Undanfarin ár hefur afgangur verið af fjármunun- um sem ætlaðir voru fyrir vegg- hreinsun, þar sem bærinn hefur nýtt ungmenni í sumarstörfum til þess að mála veggina í stað aðkeyptrar þjón- ustu. Reykjavíkurborg hefur gert til- raunir með álíka verkefni en verið er að vinna að einu slíku verkefni núna upp úr hugmynd sem barst borginni frá samráðsvettvangnum Betri Reykjavík. Guðmundur Vignir Ósk- arsson, verkefnastjóri hjá Reykja- víkurborg, segir umdeilt hvort verk- efnið skili sér í minna veggjakroti „Borgin hefur verið að koma til móts við þá sem hafa áhuga á vegglist líkt og gert var í Hjartagarðinum á sín- um tíma,“ en garðurinn er á milli Hverfisgötu og Laugavegar í Reykjavík. „Ávallt þarf þó að gera greinarmun á svokölluðu taggi, eða kroti, og hins vegar vegglist,“ segir Guðmundur. bmo@mbl.is Vill styðja unga vegglistamenn  Ungir vegglistamenn fái vettvang  Svipaðar hugmyndir í Reykjavík Morgunblaðið/Golli List? Hreinsun á veggjakroti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.