Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík • sími 580 3900 • www.fastus.is • opið mán - fös 8.30 - 17.00
F
A
S
TU
S
_E
_1
4.
05
.1
3
Ráðstefnu- og fundarstóll
Tryggðu þér og gestum þínum öruggt
sæti, með vönduðum og þægilegum
stólum á góðu verði.
Act Heildverslun | Dalvegi 16b - 201 Kópavogur | 577 2150 | avon@avon.is
Bylting frá Remington:
Fyrstir hártækjaframleiðenda
með Lithium rafhlöður í hártækjum
– hleðsla allt að 4 x lengri.
AQ7 – Remington Rotary
VATNSHELD herrarakvél
– 100% vatnsheld, má nota með
froðu og geli
BHT6250 – Wet-Tech
Body Hair Trimmer
– 100% vatnsheld
S6280
Stylist Perfect Waves
– Keramik húðaðar bylgju plötur.
-Hitnar á 30 sek
PG6060 – Lithium-Powered
Grooming Kit
– Lithium rafhlaða,
ending allt að 110 mín
MB4040 – Lithium
– Powered skeggsnirtir
– Lithium rafhlaða, notkun allt að 160 mín.
HC5780 Lithium-
Powered hárklippur
- – Lithium rafhlaða,
notkun allt að 150 mín.
Nýtt frá
Bæjarlind 6, sími 554 7030
www.rita.is
Stretch
Kvartbuxur
Str. 42-52
kr. 10.900.-
Laugavegi 63 • S: 551 4422
GARDEUR
GALLABUXUR
margir litir, mörg snið
laxdal.is
Vertu
vinur
á
20%
afsláttur
GERRY WEBER
Hvítar
gallabuxur og
svartar
klassískar
Rúta með nemendur tíunda bekkjar
Garðaskóla innanborðs festist í
Krossá um miðjan dag í gær. Krakk-
arnir voru á leið í Þórsmörk í út-
skriftarferð. Engum varð meint af
en nokkur hræðsla greip um sig
meðal nemenda en um hálftími leið
þangað til traktor dró rútuna á
þurrt. Ingibjörg Anna Arnarsdóttir,
aðstoðarskólastjóri Garðaskóla,
hafði ekki fengið nákvæmar upplýs-
ingar um atvikið þegar Morgunblað-
ið náði tali af henni. Hún sagði þó að
skólastjórnendur hefðu fengið þær
upplýsingar að nemendur hefðu ekki
verið í hættu. „Það sem ég get sagt
er að allir eru í mjög góðu standi, öll-
um líður vel og fólk er í góðu yfirlæti
að skemmta sér,“ sagði Ingibjörg.
Aðspurð segir hún að skólinn líti
málið alvarlegum augum eins og allt
sem viðkomi nemendum.
Rútan sem um ræðir var á vegum
Reykjavík Excursions. Kristján
Daníelsson, framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, segir að atvikið verði
skoðað með öryggissjónarmið í
huga. Hann segir að rútur hafi farið
yfir ána án vandkvæða skömmu fyrir
atvikið. Kristján tekur fram að bíl-
stjórinn sem um ræðir sé „þaul-
reyndur,“ hafi margoft farið yfir ána
og hefði aldrei teflt í tvísýnu, sér-
staklega ekki með börn í bílnum. Að-
spurður segir Kristján að öryggisráð
fyrirtækisins fari yfir öll atvik af
þessu tagi. Þau séu metin og farið yf-
ir hvort eitthvað hefði betur mátt
fara. heimirs@mbl.is
Krakkar í miðri Krossá
Rúta útskriftarnemenda úr Garðaskóla festist í ánni
Útskriftarferð Rútan fór á nokkurt dýpi í Krossánni eins sjá má á myndinni.
Eitt af glæsilegustu einbýlishúsum
landsins er til sölu og að því er
heimildir Morgunblaðsins herma er
það falt fyrir 350 milljónir króna.
Húsið sem er tæpir 600 fermetrar
stendur við Hrólfsskálavör á Sel-
tjarnarnesi.
Sverrir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri fasteignasölunnar
Eignamiðlunar, sem hefur eignina
til sölu, vildi ekki staðfesta hið
ásetta verð, en segir að þetta sé
sennilega dýrasta einbýlishús sem
Eignamiðlun hefur fengið til sölu.
„En við höfum verið með kaup-
endur að vel staðsettum sjávar-
lóðum eins og húsið stendur á fyrir
meira en hundrað milljónir króna,“
segir hann.
Sverrir er nokkuð bjartsýnn á að
markaður sé fyrir eignina. „Við
þurfum ekki nema einn kaupanda,
hvort sem hann væri hér á Íslandi
eða erlendis. Þetta er svipað verð
og sett er á dýrustu þakíbúðir hér á
landi,“ segir Sverrir.
Til sölu Húsið sem stendur við Hrólfs-
skálavör á Seltjarnarnesi er glæsilegt.
Eitt dýrasta einbýlis-
hús landsins til sölu
Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Rangar prósentutölur
Rangt var farið með hversu mikið al-
menningssímum hefur fækkað á Ís-
landi undanfarin þrjú ár í frétt sem
birtist í blaðinu í gær. Þar stóð að
þeim hefði fækkað um 120%. Hið
rétta er hins vegar að fjöldi almenn-
ingssíma í landinu er ekki neikvæð-
ur en þeim hefur engu að síður
fækkað um 55%. Þá fækkaði símalín-
um á fastaneti um 13% en ekki 15%
eins og misritaðist í fréttinni. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Veðurspáin gerir ráð fyrir svip-
uðu veðri í dag og í gær. Vegfar-
endum með aftanívagna er bent á
að spáð er SA 8-15 m/s sunnan- og
vestanlands og búast má við ennþá
hvassari vindhviðum við fjöll, eink-
um á norðanverðu Snæfellsnesi
Veðrið lék landsmenn ansi mis-
jafnlega í gær. Á höfuðborgar-
svæðinu, Suður- og Vesturlandi
var lítið sumarveður, rigning og
töluverður vindur. Íbúar á Norð-
austur- og að hluta til á Austur-
landi fengu öllu betra veður, þar
var mjög hlýtt þó sólin hafi átt í
erfiðleikum með að brjótast í
gegnum skýin. Hæstur var hitinn á
Raufarhöfn, 22 gráður.
Benda á hvassar
vindhviður við fjöll