Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013 Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á Glussa-, vökva- og loftkerfi Flug Eykst hagnaður um 67% á árinu? ● Hagnaður flugfélaga á heimsvísu verður um 12,7 milljarðar Bandaríkja- dala, um 1.600 milljarðar íslenskra króna, á þessu ári ef spá Alþjóðaflug- umferðarsamtakanna (IATA) gengur eftir. Þetta er um 67% hækkun milli ára, en í fyrra skilaði fluggeirinn 7,6 milljarða hagnaði. Ef spáin gengur eftir verður þetta þriðja stærsta ár flug- bransans á þessari öld, en reksturinn er þó enn frekar brothættur þar sem framlegðin er aðeins 1,8%. Fluginu spáð 1.600 milljarða hagnaði FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Með því að samþykkja lengingu og endurskoðun á skilmálum erlendra skuldabréfa Landsbankans eru meiri líkur á að slitastjórn Landsbankans (LBI) takist að fá fyrr en ella und- anþágu frá Seðlabanka Íslands til að halda áfram útgreiðslum til kröfu- hafa. Takist ekki að semja um að lengja í erlendum skuldum Lands- bankans má hins vegar telja sennilegt að kröfuhafar bankans sitji fastir með reiðufé sitt innan fjármagnshafta á Íslandi um „ófyrirsjáanlega“ framtíð. Þetta kemur fram í bréfi sem Landsbankinn sendi til slitastjórnar LBI í byrjun síðustu viku og Morg- unblaðið hefur undir höndum. Í bréf- inu, sem er undirritað af Steinþóri Pálssyni, bankastjóra Landsbankans, er meðal annars farið þess á leit við LBI að greiðslutími á 290 milljarða erlendum skuldbindingum Lands- bankans verði lengdur um tólf ár – lokagjalddagi verði á árinu 2030 í stað 2018 – og að núverandi vextir skulda- bréfanna haldist óbreyttir næstu fimm árin. Samkvæmt þeim skilmál- um sem nú eru í gildi er gert ráð fyrir því að álagið ofan á Libor-vexti hækki í október á þessu ári úr 1,75% í 2,9%. Vill óbreytta vexti í fimm ár Landsbankinn leggur til að form- legar viðræður hefjist í þessum mán- uði um þær tillögur sem bankinn set- ur fram varðandi endurskoðun á samkomulagi um endurreisn og fjár- mögnun Landsbankans sem gert var í árslok 2009. Slitastjórn LBI hefur erindi bankans nú til skoðunar en vildi að öðru leyti ekki tjá sig frekar um málið þegar eftir því var leitað. Á meðal annarra breytinga sem Landsbankinn óskar eftir að verði gerðar á skilmálum skuldabréfanna er að skoðað verði í sameiningu möguleika á að auka seljanleika bréf- anna og að kröfur um lágmarksveð- setningu að baki skuldabréfunum verði lækkaðar úr 124,7% í 105%. Landsbankinn setur ennfremur fram þá beiðni að hann hafi svigrúm að greiða út arð til hluthafa bankans án þess að bankinn verði samtímis að fyrirframgreiða sömu fjárhæð í gjald- eyri inn á skuldabréfin. Líkt og áður hefur verið sagt frá á viðskiptasíðum Morgunblaðsins er slitastjórn LBI þeirrar skoðunar að Landsbankinn verði að fyrirframgreiða tíu milljarða í gjaldeyri áður en hægt verður að greiða sömu fjárhæð í arð til íslenska ríkisins 1. október næstkomandi. Í bréfinu lýsir Landsbankinn sig einnig reiðubúinn að fyrirframgreiða „verulega fjárhæð“ inn á höfuðstól skuldabréfanna náist samkomulag um þær tillögur sem bankinn leggur til. Frá því var einmitt greint í við- skiptablaði Morgunblaðsins í síðustu viku að Landsbankinn hefði komið þeim skilaboðum áleiðis til slita- stjórnar LBI að hann hefði áhuga á að greiða tugi milljarða inn á erlend skuldabréf bankans. Miðað við síð- asta birta uppgjör námu lausafjár- eignir Landsbankans í erlendri mynt um 120 milljörðum króna. Fram kemur í bréfi Landsbankans til LBI að báðir aðilar hafi „sameig- inlega hagsmuni“ af því að leita leiða svo hægt verði að ráðast í afnám fjár- magnshafta á Íslandi. Á það er bent í bréfinu að við mat á því hvaða for- sendur þurfi að vera fyrir hendi svo hægt sé að afnema höftin þá virðist Seðlabanki Íslands leggja upp með „verstu mögulegu sviðsmynd, þar sem höfuðáhersla sé á að tryggja áframhaldandi fjármálastöðugleika á öllum tímum“. Af þeim sökum segir Landsbank- inn að Seðlabankinn hafi verið „óvenjulega hreinskilinn og berorð- ur“ á opinberum vettvangi um nauð- syn þess að lengja „verulega“ í endurgreiðsluferli erlendra skulda Landsbankans áður en hægt er að stíga skref í átt að afnámi hafta. 133 milljarða undanþágubeiðni Landsbankinn bendir á að vegna fjármagnshafta sé Seðlabankinn í þeirri stöðu að geta tryggt gjaldeyris- flæði innan íslenska fjármálakerfis- ins. Því sé Landsbankinn „vel í stakk búinn“ til að geta staðið undir skuld- bindingum sínum þar sem nægjan- legur erlendur gjaldeyrir verður til reiðu fyrir innlenda fjárfesta. Hins vegar, útskýrir bankinn í bréfinu, muni áfram vera hömlur á því að LBI geti greitt út gjaldeyri til kröfuhafa. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur slitastjórn LBI nú þeg- ar óskað eftir undanþágu frá Seðla- bankanum til að greiða 133 milljarða í erlendum gjaldeyri til forgangskröfu- hafa. Slík heimild hefur ekki fengist og að sögn kunnugra er ólíklegt að sú afstaða taki breytingum á næstunni. Lenging forsenda undanþágu Morgunblaðið/Kristinn Afborganir Að óbreyttu þarf bankinn að greiða 290 milljarða 2014-2018.  Landsbankinn vill hefja formlegar viðræður í júní um 290 milljarða erlendar skuldir  Í bréfi til LBI segir bankastjóri Landsbankans að kröfuhafar gætu setið fastir með fé sitt um „ófyrirsjáanlega“ framtíð 290 milljarða skuldir » Í bréfi sem Steinþór Páls- son, bankastjóri Landsbank- ans, sendi til slitastjórnar LBI er þess óskað að hafnar verði formlegar viðræður um endur- skoðun á 290 milljarða erlend- um skuldabréfum bankans. » Lokagjalddagi 2030 í stað 2018. Vextir verði óbreyttir næstu fimm árin. Krafa um veðsetningu að baki skulda- bréfunum lækkuð. Landsbank- inn fái svigrúm til arðgreiðslna til hluthafa. Kannaðir mögu- leikar sem auka seljanleika skuldabréfanna. ● Íbúðarhúsnæði hér á landi virðist hvorki vera yfir- né undirverðlagt að mati OECD. Sér stofnunin því ekki merki um verðbólu á markaðinum. Er Ísland eitt fárra OECD-landa þar sem verð er ná- lægt jafnvægi að mati stofnunarinnar, en talsverð bóla er í íbúðamarkaðnum í Belgíu, Noregi, Kanada, Nýja-Sjálandi og Frakklandi að mati stofnunarinnar. Kem- ur þetta fram í nýju riti stofnunarinnar um efnahagsmál í löndum OECD, sam- kvæmt Morgunkornum Greiningar Ís- landsbanka í gær. Ekki verðbóla á Íslandi ● Skráning nýrra bifreiða í Frakk- landi dróst verulega saman í maí samkvæmt tölum sem birtar voru í gær. Verst var staðan hjá frönsku bif- reiðaframleiðendunum Renault og Citroën. Fram kemur í frétt AFP að sam- drátturinn virðist koma verr við inn- lenda bifreiðaframleiðendur en er- lenda. Samtals voru 148,554 nýjar bifreiðir skráðar í Frakklandi í síðasta mánuði, sem er 10,3% minna en á sama tíma fyrir ári. Samdrátturinn hjá Renault var 16,5% og hjá Citroën 14,5%. Samdrátturinn hjá frönskum bifreiðaframleiðendum í heild 12,1% en hjá erlendum 8,4%. Færri nýskráningar STUTTAR FRÉTTIR                                          !"# $% " &'( )* '$* +,,-+. +/0-. ++1-/2 ,+-.31 ,3-2+ +/-4.. +,1-42 +-,+40 +/.-++ +4/-/0 +,,-5, +/0-14 ++/-,5 ,+-.02 ,3-21, +/-4/1 +,1-24 +-,+2, +/.-00 +42-. ,+0-+,.0 +,,-1+ +/1-, ++/-42 ,+-5.+ ,+-3.5 +/-05+ +,/-.+ +-,,,/ +/5-,+ +42-15 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Vakin er athygli á því í bréfi Lands- bankans til LBI að stórt skref verði tekið ef bankinn fær lánshæfis- einkunn hjá einu af stóru al- þjóðlegu matsfyrirtækjunum. Bankinn vinnur nú að því að afla sér slíkrar lánshæfiseinkunnar og segir í bréfinu að þýski stórbank- inn Deutsche Bank veiti Lands- bankanum ráðgjöf í þeim efnum. Svo niðurstaðan af þeirri vinnu verði Landsbankanum hagfelld þá telur hann mikilvægt að viðhalda sterkri fjárhagsstöðu sinni, stærð- arhagkvæmni og samkeppnis- stöðu í fyrirtækjaútlánum. Til meðallangs tíma, segir í bréfi Landsbankans, þá er endur- fjármögnunaráhætta og kvaðir sem koma í veg fyrir veðsetningu á eignum bankans á meðal atriða sem þarf að laga áður en hægt verður að fá lánshæfiseinkunn. Fram kemur í bréfinu að ef það tekst að lengja „verulega“ í er- lendum skuldabréfum bankans þá muni það auka líkur á því að Landsbankinn geti fengið aðgengi að erlendum lánamörkuðum á „hagstæðum kjörum“. Landsbank- inn hefur sagt að það komi til álita í framtíðinni að endurfjármagna, að minnsta kosti að hluta, skuldir bankans við LBI með skuldabréfa- útgáfu á alþjóðlegum lána- mörkuðum. Deutsche Bank veitir ráðgjöf LANDSBANKINN VINNUR AÐ ÞVÍ AFLA SÉR LÁNSHÆFISMATS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.