Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 11
Í bók Reynis er mikinn fróðleik að finna um hin ýmsu mis- þekktu svæði á Snæfellsnesi. Margir þekkja t.d. til Axlar- Björns, löngum eins mesta rað- morðingja Íslandssögunnar. Kannast margir við að renna fram hjá býlinu Öxl á leið sinni að Búðum. Færri vita hins vegar að þangað var bæjarstæðið flutt eftir daga morðingjans. Upphaflegt bústæði hans, Forna-Öxl, liggur skammt frá, á svonefndum Axlar-Hólum, þar sem áður lá gömul aðalleið. Var auðvelt að sitja þar fyrir fólki. Falleg tjörn, Ígultjörn, liggur þar skammt frá en sagt er að morð- inginn hafi notað hana til að losna við lík fórnarlamba sinna. Á sömu slóðum segir í Land- námu að landnámsmaðurinn Ásmundur Atlason hafi búið og síðar verið heygður. Var hann grafinn að víkingasið og þræll með honum. Virðist kappanum ekki hafa líkað að hafa annan mann með sér í gröfina og and- mælti að handan. Var þrællinn á endanum grafinn upp og færður til. Virðist Ásmundur haft haft hægt um sig síðan. Slóðir land- námskappa og morðingja GAMLAR SÖGUR OG NÝJAR Fróðleikur Höfundur leiðir mann á gamlar og nýjar slóðir í bók sinni. Stuðlaberg Það er huggulegt að tylla sér niður við hið fagra Gerðuberg, eftir góða göngu að bergveggnum. Annars vegar hringveginum um Snæfellsnes og hins vegar vegunum sem liggja yfir fjallgarðinn,“ segir Reynir. Nákvæm kort fylgja hverri og einni leiðarlýsingu auk ýmiskonar fróðleiks um það sem fyrir augu ber, hvort sem um er að ræða ör- nefni og kennileiti, sögur af land- námsmönnum og morðingjum, nátt- úrufyrirbrigði, fornminjar og annað markvert. „Það er kannski svona kjarninn í þessu að ég reyni að benda nýja staði, út frá einhverjum þekktum stað, þannig að fólk fái enn meira út úr því að fara um Nesið,“ segir höfundurinn. Sýnishorn af öllu Íslandi Snæfellsnesið er vel þekkt fyrir mikinn fjölbreytileika í lands- lagi auk þess sem kynngimagnaðir kraftar undir Jökli eru mörgum kunnir. „Menn segja náttúrulega að ef þú hefur ekki tíma til að skoða allt Ísland þá er í raun nóg fyrir þig að fara á Snæfellsnesið. Þar ertu í rauninni með allan pakkann,“ segir Reynir kankvís. Bætir hann við að sérkenni nessins felist í raun ekki síst í þessum einstaka fjölbreyti- leika nema hvað hann auðveldi reyndar ekki valið á gönguleiðum, enda fjölmargt að sjá. Strandlengj- an ein og sér sé þar til dæmis alveg einstök. „Bæði er strandlengjan um nesið ótrúlega fjölbreytt og sér- stök,“ segir hann. Hún, ein og sér, er því afar forvitnileg til göngu, ekki síst fyrir krakka. „Síðan þegar komið er út fyrir jökul taka hraunin við, þ.e.a.s. renna saman við hafið, með öllum sínum fjölbreytileika sem þar er að finna s.s. björg, víkur og fleira. Á norðanverðu nesinu er mikið um vaðla og víkur og lón við ströndina. Að ógleymdum sjálfum fjallgarðinum sem trónir meðfram öllu og blasir við frá höfuðborgar- svæðinu, og endar í sjálfum Snæ- fellsjökli. Það má segja að þarna finnist líka allar tegundir af fjöll- um,“ segir Reynir og fær mann þegar á flug. „Byggðin allan hring- inn er síðan líka mjög fjölbreytileg og ekki má gleyma öllum fornminj- unum. Það er þetta nábýli hafs og strandar, byggðar og fjalla sem er svo einstakt þarna – þetta er allt svo nálægt hvert öðru,“ bætir hann við. Ekki alveg hættur enn Í bókunum er fjöldann allan af örnefnum og kennileitum að finna sem ekki hafa verið aðgengileg áð- ur svo vel sé. Lagðist Reynir m.a. yfir örnefnaskrár til að bæta úr. Einnig prýðir fjöldi fallegra mynda bókina en Reynir tók þær allar sjálfur. Með útgáfu bókarinnar nú má segja að Reynir hafi færst nær því að klára að leiða fólk um stóran hluta suðvesturhornsins. Segir hann það nú hálfgerða tilviljun en verkefnið hafi smám saman þróast þannig með tímanum. „Það er auð- vitað draumurinn að klára þetta svæði. Í sumar ætla ég að ganga um Borgarfjörð og Dali og þá fylgir væntanlega gönguleiðabók um það svæði í kjölfarið. Þá er í rauninni bara Þingvallasvæðið eftir og ná- grenni þess. Það væri náttúrulega toppurinn að enda þar,“ segir höf- undurinn hógvær. Svo enn er von á góðu. Verslun Á Búðhólmi versluðu Tang & Riis lengi vel. Skemmtilegt er að virða fyrir sér rústir á staðnum. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013 Það styttist óðum í stærstu hjól- reiðahátíð ársins, hina árlegu Bláa- lónsþraut á fjallahjóli. Hátíðin fer fram næstkomandi laugardag og er þetta í 18. skipti sem hún er haldin. Bláalónsþrautin er fyrst og fremst hjólreiðamót fyrir almenning og til- valin fyrir fólk sem vill reyna aðeins á sig og njóta góðrar útiveru og fag- urs landslags á Reykjanesi í leiðinni og njóta Bláa lónsins að keppni lok- inni. Bláalónsþrautin er 60 km löng. Meðal keppenda í ár er hinn þekkti norski hjólreiðamaður Martin Haugo en hann kemur úr hinu öfluga fjalla- hjólaliði Merida. „Þetta verður spennandi og krefjandi keppni og tækifæri sem ég gat ekki hafnað. Ég hlakka mikið til að koma til Íslands og taka þátt í hátíðinni,“ segir Haugo. Þess má geta að Haugo verður í verslun Ellingsen í Reykja- vík, sem er umboðsaðili Merida- hjólanna á Íslandi, föstudaginn 7. júní milli klukkan 14 og 18 og mun veita fólki ráðgjöf varðandi hjól og hjólreiðar. Tekur þátt í Bláalónsþrautinni Hjólreiðakappi Martin Haugo kemur frá Noregi til að keppa. Haugo keppir í hjólreiðum á Íslandi TAKTU3 BORGAÐU AÐEINS FYRIR 2 ALLAR SUMARVÖRUR Við gefum þér ódýrustu vöruna AKUREYRI 4627800. KRINGLAN 5680800. SMÁRALIND 5659730.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.