Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 155. DAGUR ÁRSINS 2013 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470 1. Spá allt að 30-40 m/s 2. Fannst látinn 3. Jolie mætti á rauða dregilinn 4. Skólabörn festust í Krossá »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Le sang d’Odin, frönsk þýðing á skáldsögu Óttars M. Norðfjörð, Sól- krossi, náði um helgina í 1. sæti met- sölulista vefverslunarinnar Amazon í Frakklandi yfir mestu seldu skáldsög- urnar í rafbókarformi fyrir Kindle-les- bretti. Næst á listanum var Inferno eftir metsöluhöfundinn Dan Brown sem í gær var komin í fyrsta sæti. Morgunblaðið/Ómar Bók Óttars í 1. sæti fransks Amazon-lista  Franska kvik- myndin La Vie D’Adèle Chapitres 1 et 2, Blue is the Warmest Colour í enskri þýðingu, sú sem hlaut aðal- verðlaun kvik- myndahátíð- arinnar í Cannes í ár, Gullpálmann, verður frumsýnd hér á landi í október á vegum kvikmynda- klúbbsins Græna ljóssins. Sigurmynd Cannes verður sýnd í haust  Sirkushátíðin VOL.CAN.O verður haldin við Norræna húsið 4.-14. júlí nk. og verður á henni boðið upp á nokkra ókeypis viðburði, m.a. sýningar með sænska pönksirkushópnum Burnt out Punks, 6. og 7. júlí, og Bifröst Teater frá Noregi sem býður upp á ókeypis sýn- ingu fyrir börn 10. júlí. Engin dýr verða á sýningum hátíð- arinnar, að und- anskildum hundrað raf- knúnum hömstrum sem verða í sýningu Cirkus Xanti, Pluto Crazy. Frítt inn á nokkrar sirkussýningar Á miðvikudag Suðlæg átt, 5-13 m/s. Skýjað að mestu og sums staðar skúrir, en bjartviðri á Norður- og Austurlandi. Hiti víða 10 til 16 stig, en 15-20 stig norðantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-15 m/s og rigning eða súld suðvestan- og vestanlands. Hægari nyrðra og eystra. Dregur úr vindi og úrkomu í kvöld. Hiti 10 til 20 stig. VEÐUR Björninn hefur samið við Danann Lars Foder um að þjálfa meistaraflokk karla ásamt því að spila með lið- inu á næsta keppnistímabili á Íslandsmótinu í íshokkí. Foder hefur leikið hérlendis með Skautafélagi Akureyrar síðustu tvö tímabil og átti stóran þátt í því að SA Víkingar unnu Björn- inn í úrslitarimmunni síð- asta vor í hörkuspennandi leikjum. »1 Lars Foder semur við Björninn Breiðablik hefur haft sama aðalþjálf- ara í lengstan tíma samfleytt af þeim tólf liðum sem nú skipa úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Ólafur Krist- jánsson hefur enda náð góðum ár- angri í Kópavoginum og gert Blika að Íslands- og bikarmeisturum í fyrsta sinn. Ólafur hefur samtals staðið af sér 28 þjálfaraskipti hjá öðrum fé- lögum. »2 Ólafur hefur staðið af sér 28 þjálfaraskipti ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Planið er að taka smá rúnt á fjór- hjólinu inn á Vestfirðina í sumar, sniglast í kringum kunningja mína í reiðhjólaferð,“ segir Jón Heiðar Jónsson, sem hefur verið hreyfi- hamlaður frá fæðingu og aldrei getað gengið án hjálpartækja. Jón Heiðar er með arfgengan vöðvasjúkdóm og hefur þess vegna notast við hjólastól og margs konar hjálpartæki frá barnsaldri, en þrátt fyrir fötlunina er hann mjög virkur. „Með því að hafa aðgang að hjálpar- tækjum get ég tekið þátt í öllu og í raun gert það sem ég vil, verið full- gildur þátttakandi í lífinu eins og aðrir. Ég gæti lítið gert ef ég hefði ekki hjálpartæki við hæfi.“ Eftir að hafa stundað íþróttir af kappi á yngri árum gerðist Jón Heið- ar sundþjálfari, fyrst hjá Íþrótta- félagi fatlaðra í Reykjavík en síðan hjá Sundfélaginu Óðni á Akureyri. Auk þess hefur hann verið virkur í störfum innan félagssamtaka fatl- aðra, situr meðal annars í fram- kvæmdastjórn Sjálfsbjargar, lands- sambands fatlaðra og er formaður ferlinefndar Öryrkjabandalagsins. Hjálpartækjasýning „Ég hef aldrei getað gengið óstuddur en staulaðist aðeins um á hækjum fram eftir aldri ásamt því að notast við hjólastól til lengri ferða,“ segir Jón Heiðar. Bjarney Guðrún, 12 ára dóttir þeirra Nönnu Báru Birgisdóttur iðjuþjálfa, erfði sjúk- dóminn og þurfti strax að notast við hjólastól til að komast um. „Úrval hjálpartækja og gæði tækjanna hafa tekið ótrúlega miklum framförum frá því að ég fékk minn fyrsta stól átta ára gamall. Eins og Marteinn Mos- dal sagði þá var bara til einn ríkis- hjólastóll, þegar ég var krakki, spít- alastóll sem hentaði manni engan veginn.“ Hjálpartækjasýning Þekkingar- miðstöðvar Sjálfsbjargar verður haldin í íþróttahúsi fatlaðra í Hátúni 14 á föstudag og laugardag. Þar verður til sýnis það nýjasta á sviði hjálpartækja, allt frá hagnýtum heimilishjálpartækjum að sérútbún- aði í bifreiðar, þar á meðal fjórhjól Jóns Heiðars. Um 1.000 km á þremur dögum Jón Heiðar er mikill tækja- og græjukarl. 2006 byggði fjölskyldan sér einbýlishús með þarfir sínar í huga, stór og fá rými án þrengsla. Hann á bæði handknúinn hjólastól og rafmagnsstól, sérstakan baðstól, hreyfanlegt borð, griptöng og sér- útbúinn bíl. Hann stundar mikið úti- vist og fer allra sinna ferða í óbyggð- um á fjórhjóli. Hann hefur smíðað festingar á það fyrir létta hjólastól- inn og setur snjóbelti undir það á veturna. Bjarney Guðrún er líka með sérstakan torfæruhjólastól. „Fjór- hjólið er eitt af hjálpartækjum mín- um þó að þannig tæki séu ekki skil- greind sem slík,“ segir hann og vísar til þess að hann hafi farið á því um fjöll og firnindi, á staði sem ómögu- legt er að komast á í hjólastól. „Ég fékk fyrsta fjórhjólið mitt þegar ég var 13 ára, eitt fyrsta fjórhjólið sem kom til landsins, og á ég það enn í góðu lagi. Ég eignaðist svo nýtt afar voldugt og vel útbúið hjól 2010. Í fyrra fór ég um 1.000 kílómetra á því á þremur dögum, með alls kyns krókum suður Sprengisand í Bisk- upstungur og Kjöl til baka. Ég var í samfloti með hjólreiðamönnum suð- ur en var einn á leiðinni norður. Það er stundum gaman að vera einn með sjálfum sér í óbyggðum og standa frammi fyrir þeirri áskorun að gera allt sjálfur.“ Næst eru það Vestfirðirnir  Hjálpartækin auðvelda hreyfi- hömluðum lífið Í Biskupstungum Jón Heiðar Jónsson fær sér mjólkursopa eftir að hafa ekið á fjórhjólinu suður Sprengisand. Feðgin Jón Heiðar og Bjarney Guð- rún skammt frá Hólmavík. Kári Árnason, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, segir að það hafi ekki verið neitt grín að spila með Rotherham í ensku D-deildinni á síðasta vetri. Lið- ið lenti í miklum vandræðum með að ná settu marki en fór að lokum upp um deild með góðum endaspretti. Kári reiknar með því að spila áfram með Rot- her- ham sem setur mark- ið hátt og ætlar sér áfram upp deildirnar. » 4 Ekkert grín að spila í ensku D-deildinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.