Morgunblaðið - 04.06.2013, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Tíðarfar í maí var nærri meðallagi
á landinu að slepptum fyrstu dög-
unum sem voru óvenjukaldir. Snjó
leysti venju fremur seint um landið
norðaustanvert. Hlýjast var að til-
tölu á Austfjörðum. Úrkoma var yf-
ir meðallagi á landinu í maí.
Þetta kemur fram í yfirliti
Trausta Jónssonar veðurfræðings.
Meðalhiti í Reykjavík var 5,8 stig
og er það 0,5 stigum undir meðal-
lagi áranna 1961 til 1990 en 1,2
stigum undir meðallagi maímánaða
síðustu 10 ára.
Þetta er kaldasti maí í Reykjavík
síðan 2005 en meðalhiti þá var nær
sá sami og nú. Maímánuður 1995
var nokkru kaldari.
Maí er annar mánuðurinn í röð
þar sem hitinn er undir meðallagi í
Reykjavík eftir hlýja mánuði þar á
undan.
Hiti yfir meðallagi nyrðra
Meðalhiti á Akureyri var 5,7 stig
og er það 0,3 stigum yfir meðallag-
inu 1961 til 1990 en í meðallagi
síðustu tíu ára.
Maí 2011 var kaldari á Akureyri
heldur en nú.
Hæstur var meðalhiti mánaðar-
ins á Skarðsfjöruvita, 6,8 stig og
6,7 í Önundarhorni undir Eyjafjöll-
um. Lægstur var meðalhitinn á
Þverfjalli, -1,9 stig og -1,8 á Gagn-
heiði. Í byggð var meðalhitinn
lægstur í Svartárkoti, 1,5 stig.
Hæsti hiti mánaðarins mældist á
Sauðárkróksflugvelli þann 18. maí
eða 18,1 stig. Sama dag mældist
mestur hiti á mönnuðum stöðvum,
16,2 stig, bæði á Bergstöðum í
Skagafirði og á Akureyri. Lægstur
mældist hitinn -21,7 stig á Brúar-
jökli þann 2. maí. Svo mikið frost
hefur aldrei áður mælst í maí á Ís-
landi svo vitað sé, segir Trausti. Í
byggð mældist hitinn lægstur á
sjálfvirku stöðinni á Grímsstöðum,
-17,6 stig. Er það lægsti hiti sem
mælst hefur í byggð á Íslandi í
maí, þann 1. maí 1977 mældust
-17,5 stig í Möðrudal. Hitinn á
mönnuðu stöðinni á Grímsstöðum
fór sömu nótt niður í -14,5 stig.
Fimm nætur mánaðarins voru al-
veg frostlausar í byggð. Ekkert
landsdægurhámarksmet var sett í
mánuðinum.
Sólskinsstundir í Reykjavík
mældust 204,3 og er það 12 stund-
um umfram meðallag.
Snjólétt var á landinu sunnan- og
vestanverðu en töluverðar snjó-
fyrningar voru norðaustanlands.
Ekki varð alhvítt í Reykjavík eða á
Akureyri í mánuðinum.
Á Akureyri voru 7 dagar með
flekkóttri jörð og snjólag mánaðar-
ins því 11 prósent. Það er svipað og
var í fyrra.
Kaldasti maí í Reykjavík síðan 2005
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Votviðri Ferðamenn hafa verið í regngöllum undanfarna daga.
Úrkoma í Reykjavík mældist
44,9 millimetrar og er það í
meðallagi maímánaðar.
Á Akureyri mældist úrkom-
an 49,0 mm en það meira en
tvöföld meðalúrkoma í maí.
Þetta er með mesta móti í
maí, en þó var úrkoma meiri í
maí 2011.
Í Stykkishólmi mældist úr-
koman 44,8 mm og er það
þriðjungi umfram meðallag. Á
Höfn í Hornafirði mældist úr-
koman 123,4 mm, það mesta í
maí á þeim slóðum síðan
1989. Úrkomudagar á þessum
stöðvum voru nærri meðallagi
nema á Akureyri þar sem úr-
koma mældist 1 millimetri eða
meiri í 10 daga, en meðaltalið
er fimm.
Mikið rigndi
á Akureyri
MAÍVEÐRIÐ
Ítalskar herþotur hefja loftrýmis-
gæslu á vegum Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) við Ísland á
mánudaginn. Alls koma um 150
liðsmenn ítalska flughersins hing-
að til lands á sex F-2000 orr-
ustuþotum, B767 eldsneytisvél og
C130 birgðaflutningavél. Gert er
ráð fyrir að gæslunni ljúki í byrj-
un júlí en gera má ráð fyrir að-
flugsæfingum að varaflugvöllum á
Akureyri og hugsanlega Egils-
stöðum dagana 12. til 14. júní.
Samkvæmt upplýsingum Land-
helgisgæslunnar, sem sér um
gæsluna fyrir hönd íslenskra yfir-
valda, búa ítölsku hermennirnir á
öryggissvæði Gæslunnar á
Keflavíkurflugvelli meðan á dvöl
þeirra stendur.
Eftir að herlið Bandaríkja-
manna yfirgaf Ísland árið 2006
samþykkti fastaráð NATO að
komið yrði á reglulegri loftrýmis-
gæslu umhverfis Ísland. Undan-
farin ár hafa þrjár þjóðir sent her-
þotur hingað til lands á hverju ári.
Í mars var kanadískt herlið hér á
landi í þeim tilgangi og í haust er
von á bandarískum herþotum og
liði í sömu erindagjörðum. Danir,
Norðmenn, Þjóðverjar og Portú-
galar hafa áður komið hingað til
lands til að sinna gæslunni.
Þotur F-2000 orrustuþotur.
Ítalir gæta
loftrýmisins
Til að minnast aftakaveðursins á
Norður- og Norðausturlandi í sept-
ember síðastliðnum, þegar þúsundir
fjár urðu úti, efnir söfnunin „Gengið
til fjár“ til ritgerðasamkeppni um
forystufé og hæfileika þess í sam-
vinnu við Bændablaðið og Lands-
samtök sauðfjárbænda. Vegleg
verðlaun eru í boði og nánari upplýs-
ingar eru m.a. á vef Landssamtaka
sauðfjárbænda, saudfe.is.
Skrifað um
forystufé