Morgunblaðið - 04.06.2013, Síða 21
ÖRYGGISVÖRUR
IÐNAÐARMANNSINS
OG VERKTAKANS
FULL BÚÐ AF ÖRYGGIS- OG REKSTRARVÖRUM.
KÍKTU Í KEMI BÚÐINA OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ!
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 544 5466
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JÚNÍ 2013
Yfirvöld í borginni Dehui í norðvest-
anverðu Kína sögðu í gær að minnst
119 manns hefðu farist í eldsvoða í
stóru sláturhúsi í norðvesturhluta
Kína á sunnudagskvöld. Ekki liggur
fyrir hvað olli brunanum en talið er að
rafmagnsneisti hafi kveikt í
ammoníaki og einangrun.
Notað er ammoníak til að kæla kjöt
af kjúklingum sem unnið er á staðnum
og mikla einangrun þarf til að tryggja
að hitastig sé ávallt lágt. Að sögn rík-
isfréttastofunnar Xhinhua var björg-
unarstarfið mjög erfitt og var ástæðan
sögð sú að innrétting hússins væri
mjög flókin, neyðardyr þröngar og að-
aldyrnar hefðu verið læstar. Rúmlega
300 verkamenn voru við störf í slát-
urhúsinu þegar eldurinn braust út en
óttast var að tala látinna ætti enn eftir
að hækka. Um eitt hundrað verka-
mönnum tókst að flýja út úr húsinu eft-
ir að eldurinn braust út. kjon@mbl.is
AFP
Slasaður Hlúð að einu fórnarlambi
brunans í Dehui á sjúkrahúsi í gær.
Yfir 100 manns fórust
í eldsvoða í Kína
Talið að kviknað
hafi í ammoníaki
Lítið öryggi
» Í desember árið 2000 dóu
309 manns í eldi á skemmti-
stað í borginni Luoyang.
» Öryggismál eru víða í mol-
um í kínverskum fyrirtækjum
og mikið um dauðaslys í verk-
smiðjum og námum.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Óttinn við svonefndar „ofur-
örverur“, stökkbreyttar veirur og
bakteríur sem hefðbundin sýklalyf
vinna ekki á, hefur valdið stefnu-
breytingu hjá embættismönnum,
lyfjafyrirtækjum og læknum, að
sögn New York Times. Hraða verði
ferlinu sem notað er þegar ný lyf
hljóta ýmist samþykki eða synjun.
Þörfin fyrir ný sýklalyf sé að
verða svo brýn að ekki sé lengur
hægt að krefjast þess að ný lyf gang-
ist undir prófanir með þátttöku
hundraða eða þúsunda sjúklinga.
Prófa verði lyfin strax á mjög veiku
fólki. Áhrifamiklir þingmenn í
Washington segjast nú reiðubúnir
að styðja breytingar á löggjöfinni í
þessa veru. Blaðið hefur eftir sér-
fræðingum að tugþúsundir Banda-
ríkjamanna deyi ár hvert vegna
smitsjúkdóma sem þeir oftast hafi
fengið á sjúkrahúsum og stafi af
sýklum sem séu ónæmir fyrir
lyfjum.
Efasemdamenn vara við því að
hraða ferlinu og segja m.a. að það
geti leitt til þess að hættuleg lyf
verði notuð á fólk sem þurfi ekki
endilega á nýju lyfjunum að halda.
En sumir læknar hafa einstaka sinn-
um gripið til þess ráðs að nota Col-
istin, gamalt sýklalyf sem var að
mestu lagt á hilluna fyrir mörgum
árum vegna lifrarskemmda sem það
getur valdið.
„Lyf eins og Colistin myndi
ekki vera búið til núna vegna þess að
það er of eitrað,“ segir Helen W.
Boucher, smitsjúkdómafræðingur
við Tufts-háskóla í Boston.
Stökkbreyttir
sýklar mikil ógn
Vilji til að hraða ferli nýrra lyfja
Vindhögg Hefðbundin sýklalyf eru
oft orðin gagnslaus.
Þátttakendur í gleðigöngu samkynhneigðra í Sao
Paulo í Brasilíu um helgina voru margir vel skreyttir.
Skipuleggjendur göngunnar áætluðu að nær fjórar
milljónir manna hefðu tekið þátt í hátíðinni að þessu
sinni. Sé það rétt er um að ræða fjölmennustu göngu af
þessu tagi í heiminum.
AFP
Milljónir í göngu samkynhneigðra þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Hádegisseðill • Mánudag til föstudags kl. 11.30-14.00
Njóttu þess að borða
góðan mat í hádeginu
Rómantískur og hlýlegur
veitingastaður á þremur
hæðum í miðbæ Reykjavíkur
- Súpa dagsins með heimabökuðu brauði .......................... kr. 790
- Kjúklingasúpa með grænmeti, chilly og núðlum ........... kr. 1.290
- Sjávarréttasúpa Caruso................................................ kr. 1.350
- Kjúklingasalat m. hunangsgljáðum kjúklingastrimlum .. kr. 1.390
- Tómatsalat m. mozzarella og ruccolasalati í jurtaolíu .... kr. 1.250
- Salat Templada m. hvítlauksristuðum nautastrimlum .... kr. 1.650
- Caruso chef´s salat ...................................................... kr. 1.290
- Caruso kjötlasagna...................................................... kr. 1.390
- Spaghetti carbonara .................................................... kr. 1.390
- Hvítlauksristaðar risarækjur Risotto ............................. kr. 1.450
- Ferskasta sjávarfang dagsins ....................................... kr. 1.670
- Pítsa með tveimur áleggstegundum að eigin vali .......... kr. 1.390
- Pítsasamloka með kjúkling, pepperoni og salati ........... kr. 1.390
- Ristað lambafille með villisveppum og parmesan.......... kr. 2.890
- Blandaður ítalskur krapís með ávöxtum.......................... kr. 950
- Panna Cotta með ávöxtum og jarðarberjasósu................. kr. 950
Hjá okkur
er alltaf
notalegt
bæði í
hádeginu
og á kvöldin