Morgunblaðið - 11.06.2013, Blaðsíða 16
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hér og þar eru menn teknir að sjá
laxa ganga í árnar, eins og vant er á
þessum árstíma, og þá fer nú fiðring-
ur um marga og veiðilöngunin gerir
vart við sig. Í Haukadalsá hefst veiðin
formlega eftir helgi en bændur
mættu á bakka árinnar í gær og niðri
við sjó sáu menn strax hvar tvær lax-
avöður gengu hratt upp ána. Í Blóta,
kunnasta veiðistað árinnar uppi við
veiðihúsið, ætluðu leigutakanir þá að
athuga hvort laxinn væri mættur þar.
Að sögn eins þeirra, Þorgils Helga-
sonar, var Sunray-gárutúpa látin
skauta yfir hylinn og í fyrsta kasti
rauk lax í hana. Honum var landað og
reyndist 80 cm hrygna. Í næsta kasti
gerðist ekkert en í því þriðja tók ann-
ar lax, 76 cm hrygna. Þeir eru því
mættir í Dalina.
Boltar í Blöndu
Í gær höfðu þrjátíu laxar veiðst í
Norðurá. Fiskur var farinn að sjást
víða og fyrstu laxarnir gengnir upp
laxastigann við fossinn Glanna. Veiði
hófst í Blöndu um leið og í Norðurá og
fékk opnunarhollið þar tíu laxa. Fleiri
hafa veiðst síðan og er sagt að það séu
boltafiskar, 80 til 90 cm.
Í Straumunum, ármótum Norður-
ár og Hvítár, er líf að glæðast enda lax
að ganga í Norðurá. Eins og við
Brennu, ármót Brennu og Norðurár.
Samkvæmt vefmiðlinum Vötn og
veiði reyndu leigutakar svæðisins og
Magnús bóndi á Hamraendum aðeins
fyrir sér fyrir helgi og fengu strax
laxa. Veiðin hefst síðan í Þverá á
morgun og í Kjarrá um helgina.
Bleikjuveiðin er að glæðast í Þing-
vallavatni, samhliða því að urriðinn
færir sig út á dýpið og úr kastfæri.
Eins er bleikjan farin að taka í
Hraunsfirði. Guðjón Þór Þórarinsson
leit þar við ásamt eiginkonunni um
helgina og í vík við hraunkantinn sáu
þau „hellings líf“. Hann setti fluguna
Langskegg undir og „fékk strax högg
og annað og eftir um 15 mín landaði
ég fyrstu bleikjunni og síðan 2 til við-
bótar og þessar bleikjur tóku hressi-
lega á“. Guðjón segir daginn því hafa
endað vel í Hraunsfirði.
Lax tók í fyrsta kasti sumarsins
Fyrstu laxarnir veiddust í Haukadalsá þegar bændur „kíktu“ með leigutökum Rúmlega þrjátíu
landað í Norðurá og er að glæðast í Straumum og við Brennu „Hellings líf“ sagt í Hraunsfirði
Ljósmynd/Hörður Hafsteinsson
Myndarlegur Elín Ingólfsdóttir með 90 cm lax sem hún veiddi á Brotinu í Norðurá í opnunarholli árinnar.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2013
Hamingjuóskir til allra starfsmanna Norðuráls og annara Íslendinga
á 15 ára afmæli álframleiðslu á Grundartanga. Ég er stoltur af því að hafa
unnið með ykkur við uppbyggingu álversins. Guð blessi ykkur í framtíðinni.
Bestu kveðjur frá fjölskyldu minni til ykkar og fjölskyldna ykkar.
Ken Peterson, Jr - stofnandi Norðuráls.
Hamingjuóskir
Kvennanefnd Verkfræðingafélags
Íslands heiðraði í síðustu viku fjór-
ar konur sem fyrstar íslenskra
kvenna luku verkfræðiprófi.
Kristín Kristjánsdóttir Hallberg,
nú látin, lauk prófi í efnaverkfræði
árið 1945, fyrst kvenna. Sigrún
Helgadóttir lauk prófi í bygging-
arverkfræði árið 1966, Sigríður Á.
Ásgrímsdóttir lauk prófi í raf-
magnsverkfræði árið 1968 og Guð-
rún Hallgrímsdóttir lauk prófi í
matvælaverkfræði sama ár. Vigdís
Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti
Íslands, afhenti viðurkenningarnar.
Fram kemur í tilkynningu frá
kvennanefnd VFÍ að konur séu enn
í dag í miklum minnihluta meðal
verkfræðinga hér á landi sem
annars staðar.
Brautryðjendur Jóhanna Harpa Árna-
dóttir, fyrrverandi formaður VFÍ, Kristján
Hallberg, sem tók við viðurkenningu móð-
ur sinnar Kristínar Kristjánsdóttur Hall-
berg, Guðrún Hallgrímsdóttir, Sigrún
Helgadóttir, Sigríður Á. Ásgrímsdóttir og
Vigdís Finnbogadóttir.
Konur í verk-
fræðingastétt
heiðraðar
Sólstöðuganga
verður um
þjóðgarðinn
Snæfellsjökul
dagana 22. til
23. júní en
gangan mun
standa yfir í
sólarhring.
Gengið verður
í slóð Bárðar
Snæfellsáss og
safnað áheitum í þágu björg-
unarsveitarinnar Lífsbjargar.
Gangan hefst í Dritvík þar sem
Bárður tók land og endar 24 tímum
síðar í Tröðinni á Hellissandi.
Sólstöðugöngur hafa tíðkast á
Snæfellsjökul á undanförnum ár-
um. Á síðasta ári var gengið undir
yfirskriftinni Lífsást undir Jökli.
Sólstöðuganga um
slóðir Bárðar
Stytta af Bárði
Snæfellsás.
Jóhann Óli Hilmarsson, fuglafræðingur og ljósmyndari, sýnir og fræðir
göngugesti um fjölskrúðugt fuglalíf Viðeyjar í dag.
Gangan með Jóhanni Óla hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu og tekur eina
og hálfa til tvær klukkustundir. Á sumrin siglir ferjan aukaferðir á þriðju-
dagskvöldum til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15.
Fram kemur í tilkynningu, að fuglaskoðunargöngurnar hafi í gegnum
árin verið með vinsælustu þriðjudagsgöngum Viðeyjar enda sé fuglalíf þar
fádæma fjörugt en um 30 tegundir fugla verpa í eynni.
Jóhann Óli Hilmarsson hefur gefið út bækur um fugla Íslands. Leiðsögn-
in er ókeypis og öllum opin.
Fuglaskoðunarganga í Viðey
STUTT
Ólafur Sigurðsson, sem er tíu
ára, fékk maríulax við Brennu í
fyrra en sá var ekki nema þrjú
pund. Ólafur kættist því um
helgina, þegar hann kastaði
spóni við Straumana, ármót
Norðurár og Hvítár, setti í tíu
punda lax og landaði honum á
eigin spýtur. Enda var þessi
þrisvar sinnum þyngri en mar-
íulaxinn.
Ólafur var í veiðiferð með
ungum og öldnum fjölskyldu-
meðlimum, að sögn Jakobs V.
Hafstein. Og veiðieðlið ætti að
vera í blóðinu, því langafi Ólafs
var Jakob Hafstein sem veiddi
stærsta flugulax sem veiðst
hefur hér á landi, 10. júlí 1942
við Höfðahyl í Laxá í Aðaldal.
Ættingjarnir fengu alls þrjá
laxa, 11, 10 og fimm punda.
Þrisvar sinn-
um þyngri
TÍU ÁRA MEÐ TÍUPUNDARA
Haldið verður málþing í dag um
erfðir og brjóstakrabbamein. Mál-
þingið verður í stofu 102 á Há-
skólatorgi og stendur frá kl. 16:30
til 18:30.
Ræðumenn verða Magnús Karl
Magnússon, prófessor, Kári Stef-
ánsson, forstjóri ÍE, Jórunn Erla
Eyfjörð, prófessor, Vigdís Stef-
ánsdóttir, erfðaráðgjafi og Salvör
Nordal, forstöðumaður Sið-
fræðistofnunar HÍ.
Málþing um erfðir
og krabbamein