Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Page 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2013 Þegar rigningin lemur rúðuna í upphafi sumars laumast sú hugs- un að að það hafi kannski verið mistök að tolla ekki við á Ítalíu eftir vel heppnaða skiptidvöl þar á háskólaárunum. Var nokkuð rigning þar annars? Í minningunni er að minnsta kosti sól alla daga. Og sumrin í æsku voru öll glimrandi sólrík líka. Allavega var alltaf sól í garð- inum í Dalselinu. Engin rigning þar. Ef ég man rétt … Minningar eru merkilegt fyrir- bæri, geta yljað en líka platað smávegis. Sem er nú oft bara í fínu lagi. Nú þegar útskriftarveislur eru í algleymingi og nýir árgangar hefja ferðalög, frekara nám eða hvaðeina reikar hugurinn til eigin útskrifta, draumanna þá og veru- leikans nú. Hvað var það aftur sem átti að vera búið að gerast þegar hér var komið í lífinu? Er ekki bara allt í fínu lagi eins og það er – þrátt fyrir rigninguna? Til að gleyma sér ekki eða dvelja of lengi við hugsunina um mögu- legt bil milli þess sem lokið er og þess sem hefði átt að vera lokið er gott að lesa um afrekin allt í kringum okkur. Í blaðinu í dag ræða metnaðar- fullar systur um þau ólíku verk- efni sem þær hafa tekist á hendur í lífinu. Kristín Heimisdóttir er fyrsta konan til að gegna for- mennsku í Tannlæknafélaginu og Sigga Heimis er þekkt um víða veröld fyrir hönnun sína á hús- búnaði, ekki síst fyrir sænska ris- ann úr Smálöndunum. Einstakar myndir Árna Sæ- berg af því þegar skíðakappinn Halldór Hreinsson lenti í snjó- flóði í Lónafirði á dögunum eru birtar í blaðinu. Betur fór en á horfðist í það skiptið og Halldór stóð upp úr flóðinu óskaddaður. Og sólin skein á brekkuna allan tímann. RABBIÐ Afrek og útskriftir Eyrún Magnúsdóttir Fátt er tígulegra en fley og fagrar árar, nema ef vera skyldi fley og fagrar meyjar. Færeyskar konur í Róðrarfélaginu Stokkinum hafa í vikunni búið sig af kostgæfni undir kappróður á Sjómannadaginn og hefur árabátur þeirra vakið verðskuldaða athygli í Reykjavíkurhöfn. Þær stöllur voru í senn samtaka og léttar í lund þegar Árni Sæberg ljósmyndari Morgunblaðsins kom auga á þær eitt kvöldið og brostu breitt fyrir myndavélina. Það er kaldhæðni örlaganna að á sama tíma og árabátur þeirra Stokkskvenna var á blússandi siglingu var togarinn Vigri á leið í slipp – mögulega vél- arvana. Stórtækar vélar bera menn ekki alltaf lengra en handaflið. Það er gömul saga og ný. AUGNABLIKIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg FLEY OG FAGRAR MEYJAR SJÓMANNADAGURINN ER Á SUNNUDAG OG VERÐUR FJÖLBREYTT DAGSKRÁ AF ÞVÍ TILEFNI ÚTI UM ALLT LAND BÆÐI Í DAG, LAUGARDAG, OG Á MORGUN, ÞAR SEM ÞESSI DJARFA STÉTT MANNA VERÐUR HEIÐRUÐ. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Útgefandi Óskar Magnússon Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hvað? Hátíð hafsins þar sem sjó- mannadeginum er fagnað í Reykjavík. Hvar? Frá Granda og yfir á Ægisgarð. Hvenær? Laugardag og sunnudag. Hátíð hafsins Hvað? Dagsgöngu- ferð með Útivist. Hvar? Hveragerði- Hengill-Nesjavellir. Hvenær? Brottför kl. 9.30 sunnudag frá BSÍ. Nánar: Verð 5.200 kr. Ganga Í fókus VIÐBURÐIR HELGARINNAR Hvað? Erindi um Skriðuklaustur og endalok klausturhalds á Íslandi á vegum Vísindafélags Íslendinga. Dr. Steinunn J. Kristjánsdóttir. Hvar? Þjóðminjasafn Íslands. Hvenær? Mánudag kl. 12. Fyrirlestur Hvað? Geðveiki og dægurlög. Hvar? Bryggjusalur, Ísafjörður. Hvenær? Sunnudag- ur kl. 17. Nánar: Dægurlög út frá geðgreiningum. Í umsjá Óttars Guð- mundssonar geðlæknis, Jóhönnu V. Þór- hallsdóttur söngkonu og Aðalheiðar Þorsteinsdóttur píanóleikara. Geðgreining dægurlaga Hvað? Tónleikar bandaríska tónlistar- mannsins Daniels Johnston. Hvar? Fríkirkjan, Reykjavík. Hvenær? Mánudag kl. 20. Tónleikar Hvað? Hafnardagar. Hvar? Þorlákshöfn. Hvenær? Sunnudaginn 2. júní. Nánar: Lokadagur bæjarhátíðar sem hófst 29. maí. Bæjarhátíð * Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.