Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Side 37
2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37
Dashlane er smáforrit sem sérhæfir
sig í öruggri varðveislu trúnaðar-
upplýsinga á borð við aðgangsorð á
vefnum, vegabréfaupplýsingar, reikn-
ingsnúmer og kennitölur. Forritið
varð til sem hugmynd í Bandaríkj-
unum fyrir fjórum árum en hefur
sankað að sér notendum síðastliðið
árið eða frá því að fyrsta opinbera
útgáfa þess var sett á markað. Það
er fáanlegt fyrir PC- og Apple-tölvur
auk helstu spjaldtölva og snjallsíma.
Sem fyrr segir er smáforritið fyrst
og fremst hugsað sem öruggur
varðveislubanki og byggist öryggið á
flókinni dulritun upplýsinga sem
sögð er versta martröð tölvuþrjóta.
Þar að auki býður smáforritið upp á
ýmsa notendavæna valmöguleika
eins og sjálfvirkar innskráningar, til
dæmis fyrir Facebook, tölvupóst
eða hvaðeina, aðstoð við að búa til
sterk lykilorð auk flýtiaðgerða við
útfyllingu rafrænna skjala sem kunna
að vefjast fyrir fólki með lyklaborð
snjallsíma að vopni.
Valið eitt af 10 bestu smá-
forritum 2012
Á heimasíðu smáforritsins stærir
framleiðandinn sig af því að forritið
sé besta leiðin til að varðveita trún-
aðarupplýsingar og öruggasta „staf-
ræna veskið“ á veraldarvefnum.
Smáforritið var nýlega valið eitt af
tíu bestu iPhone-smáforritum ársins
2012 af tímaritinu PC Magazine og
ætti að henta gleymnum tölvunot-
endum, sem eiga erfitt með að
leggja mörg lykilorð á minnið, jafnt
sem þeim lötu, sem einfaldlega
nenna ekki að halda utan um allar
þessar upplýsingar sjálfir.
SMÁFORRITIÐ DASHLANE
Gott fyrir
gleymna
og lata
Yfirlýst markmið Dashlane er að laga internetið.
Sjómenn íslenskir hafa, eins og starfsbræður þeirra ann-
ars staðar, verið með netið í vinnunni í áratugi. Land-
krabbar höfðu lítið með það að gera, nema þeir sem
veiddu í vötnum, en þegar Netið varð að veruleika sátu
hetjur hafsins hins vegar eftir. Það var ekki fyrr en
nokkrum árum eftir að fólk í landi naut netsins (Netsins)
að sjómenn fóru að teljast menn með mönnum að því
leyti.
Laust fyrir aldamótin fór að bera á svokölluðum sjón-
varpskúlum á stýrishúsum íslenska flotans. Áður horfðu
sjómenn á sjónvarpssendingar Ríkissjónvarpsins úr
landi, en um leið og komið var 40 mílur frá ströndu eða
þar um bil var lítið í boði á skjánum annað en stórhríð.
Það var gósentíð myndbandaleiganna.
Vinsælt var hjá þeim dáðadrengjum sem stunda sjó-
inn, eftir að sjónvarpskúlurnar voru teknar í notkun, að
kaupa áskrift að bresku gervihnattastöðinni Sky og
horfa á beinar útsendingar frá ensku knattspyrnunni.
Margir áhugamenn um boltann eru á sjónum.
Um miðjan síðasta áratug fór Ríkisútvarpið að senda
út í gegnum gervihnött og það var mikil bylting fyrir fólk
á hafi úti. Þá gátu sjómenn á frívakt fylgst með fréttum
og öðru gæðaefni sem RÚV bauð landsmönnum upp á,
hvort sem vinnustaðurinn var staddur á Flæmska hatt-
inum, á Halamiðum eða norður í Barentshafi. Þetta var
sem sagt algjör bylting, að ekki sé talað um að sjómenn
gátu líka farið að hlusta á íslenska útvarpið þannig að
almennilega væri hægt að greina hvað þar færi fram.
Fyrir nokkrum árum varð svo enn ein byltingin; flókn-
ari og flottari fjarskiptakúlur voru teknar í notkun og
síðan þá hafa sjómenn getað farið á netið, hvar sem skip-
ið er statt, hringt heim í farsímanum – þótt það kosti
vissulega töluvert meira en í landi – eða verið í sambandi
við fjölskylduna í gegnum Skype. Í gegnum árin hafa
tæki um borð til fiskleitar og þess háttar þróast mjög, en
viðmælandi Sunnudagsblaðsins sem þekkir vel til, segir
að líklega hafi þessi netbylting stuðlað að meiri breyt-
ingu í daglegu lífi hins almenna sjómanns – hásetans á
dekkinu – en nokkuð annað í gegnum árin.
Á árum áður gat allur flotinn hlustað á samtal sjó-
manns við kærustu eða eiginkonu í landi, þegar notast
var við talstöð. Það er liðin tíð. skapti@mbl.is
Fjarskiptakúlur, sem fóru að sjást á stýrishúsum íslenskra skipa fyrir nokkrum árum, breyttu miklu í lífi sjómanna.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
DAGLEGT LÍF Á SJÓNUM
Það er ekki sama
netið og netið
Smáralind | Sími 512 1330
Laugavegi 182 | Sími 512 1300
Verð frá: 249.990.-
iPhone 5
Verð frá: 119.990.-
2.000 kr.
símnotkun á mánuði í
12 mánuði hjá NOVA
fylgir iPhone 5,
keyptum hjá epli.is
Gildir í áskrift og frelsi.
iMac
*Þ
ar
af
lá
nt
ök
ug
ja
ld
3,
5%
og
þó
kn
un
se
m
ne
m
ur
33
0
kr
.á
hv
er
ja
gr
ei
ðs
lu
.*
*M
ið
as
tv
ið
lá
ns
up
ph
æ
ð
24
9.
99
0
kr
.
Fæst á vaxtalausu láni*
.
Aðeins 21.892 kr.
á mán í 12 mánuði.