Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 9
2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
Vatnsdælur
Neysluvatnsdælur, brunndælur, borholudælur
Hentugar á heimilið, í garðinn, sumarhúsið eða bátinn
GP 60
Garðdæla fyrir
aukinn þrýsting
BPP 4500
Dæla með þrýstikút
og þrýstijafnara
Stillanlegur
vatnshæ
ðarnem
i
SPP 6D Inox
Ryðfrí og öflug
borholu- og
brunndæla
SDP 9500
Dæla -
fyrir óhreint vatn
SCD 12000
Dæla - fyrir ferskvatn.
Stillanlegur vatnshæðarnemi
makes a differenceÞ
egar blaðamaður Sunnudagsblaðs Morg-
unblaðsins mætir ábótanum í belgíska
klaustrinu Grimbergen í munkaklæðum á
Hótel Borg, þar sem margar senur úr ís-
lenskum bíómyndum hafa verið teknar,
getur hann ekki að því gert að spyrja munkinn hvort
hann klæðist svona daglega eða aðeins af þessu til-
efni? „Nei, ég klæðist svona daglega,“ svarar Eric de
Sutter, æðsti maður hins ævaforna klausturs.
Ástæða fyrir komu hans til landsins er ekki sú að
hann sé að boða kaþólska trú heldur boða bjórdrykkju
sem kemst kannski ekki nálægt guðlegri upplifun en
er hreint ágæt upplifun fyrir það fólk sem kann með
það að fara.
Bjór hefur verið bruggaður í belgíska klaustrinu frá
1128 en þegar Frakkar gerðu innrás í Belgíu í kjölfar
frönsku byltingarinnar árið 1789 voru öll klaustur
eyðilögð og bruggverksmiðjur þeirra líka. En klaustrið
byrjaði aftur að brugga þennan bjór árið 1958 og er
hann nú seldur til 29 landa í heiminum.
Aðspurður hversu stórt klaustrið sé segir ábótinn að
aðeins 24 munkar séu í því sem stendur. Með svona
vinsæla framleiðslu eins og bjórinn þeirra liggur bein-
ast við að spyrja hvort klaustrið sé ekki ríkt. En ábót-
inn vill ekki meina það. Hann segir að tekjur af bjórn-
um standi undir öllum kostnaði af klaustrinu og
starfsemi þeirra í Suður-Afríku en ekkert miklu meira
en það. Klaustrið heldur úti kirkju í Suður-Afríku og
hefur gert það síðan árið 1951. Þótt meirihluti íbúa
Suður-Afríku sé mótmælendatrúar er þar um 10%
minnihluti kaþólskra.
Grimbergen-klaustrið er í flæmska hluta Belgíu. Það
hefur margoft verið eyðilagt í gegnum róstusama sögu
landsins en alltaf verið endurbyggt og þess vegna er
fuglinn Fönix í merki klaustursins. Vatnið í Belgíu er
slæmt og þess vegna er menningin í kringum bjór-
bruggun mjög sterk í landinu. Munkar, bændur og
búalið brugguðu öll sínar bjórtegundir í gegnum árin
þar sem vatnið var hálfódrekkandi ef ekki var eitthvað
unnið með það. Klaustrin urðu hvað öflugust í brugg-
uninni enda sluppu þau við skattlagningu. Þannig fékk
bjórtegundin þeirra Grimbergen Double-Ambrée nafn
sitt; double eða tvöfalt. Fólk fékk tvöfalt meira af bjór
keyptan frá þeim þar sem enginn skattur var lagður á
hann.
Árið 2008 keypti Carlsberg-verksmiðjan rétt-
indaleyfi á bjórnum og sér um bruggun hans í dag
fyrir heimsmarkað. Carlsberg er fjórða stærsta brugg-
hús heimsins með yfir 400 tegundir á vörulista sínum.
Þótt bjórmarkaðurinn sé ekki að stækka á Vest-
urlöndum er eftirspurn eftir sérbjór að aukast.
Aðspurður hvort bjórinn sé mikið drukkinn með há-
degismatnum í klaustrinu segir ábótinn að þeir drekki
hann ekki með hádegismatnum, hann sé of sterkur til
þess, en þær tvær tegundir sem verða fluttar inn til
Íslands eru einmitt 6,5% og 6,7%. Ábótinn segist
drekka lagerbjór með litlu áfengismagni frá öðru fyr-
irtæki með hádegismatnum. „En þegar við hittumst á
fundum eða til að fagna drekkum við okkar Grimber-
ger-bjór,“ segir ábótinn.
Aðspurður hvort það sé mikið um veislur í klaustr-
inu vill hann nota annað nafn yfir það en veislur. „En
við hittumst oft og ég held að það sé gott fyrir alla að
hittast og ræða málin og fá sér bjór með.“
Aðspurður hvort hann sé oft þunnur eftir fagn-
aðarlæti í klaustrinu segir hann að svo sé ekki.
Aldrei verið þunnur?
„Nei,“ segir ábótinn.
Aldrei nokkurn tímann fengið timburmenn á æv-
inni?
„Nei, menn verða að nota bjórinn skynsamlega.
Aldrei,“ segir ábótinn.
KLAUSTUR OG BJÓR
Ábótinn í Grimbergen klaustrinu í Belgíu kom til Íslands í vikunni og kynnti stolt klaustursins: bjórinn Grimbergen.
Ábótinn hefur aldrei verið þunnur á ævinni og segir að fólk eigi að drekka skynsamlega og njóta bjórsins.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Munkar brugga bjór
ofan í Íslendinga
BJÓR FRÁ GRIMBERGEN-KLAUSTRINU Í BELGÍU VAR KYNNTUR FYRIR
ÍSLENDINGUM AF ÁBÓTA KLAUSTURSINS SEM MÆTTI Í KUFLI OG ALLT
HVAÐ EINA. BJÓRMENNINGIN ER STÖÐUGT AÐ BREYTAST Á ÍSLANDI.
Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is