Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 51
ekkert voðalega oft enda snúast góð fjölskyldutengsl ekki um það. Ég er mjög mikið heima með Baltasar því þar líður hon- um best og ég þarf að taka tillit til þess. Hann fer til dæmis ekki í Kringluna.“ Kristín: „Við erum svolítið ítölsk í okkur, fjölskyldan. Allir hafa ríka þörf fyrir að tjá sig, um pólitík og allt mögulegt, og ég held að í þeim kringumstæðum sé auðvelt að misskilja okk- ur og andrúmloftið. Sem er gott þótt fólk tali hátt. Pabbi getur verið svolítið hvass þótt ekkert búi að baki. Í fyrsta skipti sem maðurinn minn kom heim í mat var – eins og alltaf – skyndi- lega öskrað: „Fréttir!“ og allir hlupu og söfnuðust fyrir framan tækið í einn hnapp. Faðir okkar er hvað æstastur í þessu og hringir í mig oft á dag til að segja mér hvað er í fréttum. Ég var til dæmis með sex „missed calls“ frá honum um daginn en þá var hann að láta mig vita hvernig gengi Sjálfstæðisflokksins væri í könnunum.“ (Innsk. blaðamanns: Kristín var í 9. sæti Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir alþingiskosningarnar). En þarna þegar maðurinn minn kemur í heimsókn í fyrsta skipti er hann á síðasta ári í tannlæknanámi og ætlar að brydda upp á samræðum við pabba. Pabbi segir örsnöggt: „Þegiðu!“ Hann var að horfa á fréttirnar og þetta voru hreinlega sjálfvirk við- brögð. Bjarni sagði ekki orð það sem eftir lifði kvölds og fór svo heim. Þá segir pabbi: „Hann var svo þögull.“ Pabbi neitar því enn að hafa sagt honum að þegja.“ Sigga: „Það er frekar fyndið að vera utanaðkomandi heima. Allir að tala ofboðslega mikið, allir í einu, svo öskrar einhver „fréttir!“ og allir hlaupa æpandi að tækinu.“ Langar að rétta tennur Siggu Lá alltaf beint við hvert þið mynduð stefna í lífinu? Að þú yrð- ir tannlæknir Kristín og þú færir í hönnun Sigga? Kristín: „Ég ætlaði alltaf í verkfræði en hætti við það daginn sem ég skráði mig í háskólann. Tannlæknirinn var einfaldlega skyndihugdetta. En starfið sem slíkt og sérstaklega sú sér- grein sem ég valdi mér, tannréttingar, byggist mikið á sam- skiptum við fólk sem eru oft svo ánægjuleg.“ Sigga: „Já, því fólk talar einmitt svo mikið í stólnum – eða þannig – að þú færð útrás fyrir að tala!“ Kristín: „Haha. Og svo finnst mér líka mikilvægt að geta ráðið mér sjálf. En satt best að segja hafði pabbi engin áhrif á þetta og var jafnvel ekkert sérstaklega hress með þessa ákvörðun í upphafi. Þegar ég var komin á annað ár í tannlæknadeildinni sagði hann við mig að fyrst ég væri komin af stað ætti ég að leggja tannréttingar fyrir mig. Einmitt fagið sem mér þótti leiðinlegast í skólanum! Í dag sé ég að faðir minn vissi alveg sínu viti því þetta er sú sérgrein sem hentar mér best og sjúk- lingahópurinn er ofboðslega skemmtilegur.“ Klæjar þig þá í lófana að rétta allar tennur sem þú sérð? Kristín: „Já, nei, nei. Ég er sjálf meira að segja með aðeins skakkar tennur.“ Sigga: „Þetta er ekki satt, hún er búin að vera að þrýsta á mig og vill að ég fái mér teina.“ Kristín: „Ha, ég? Þú vilt það!“ Sigga: „Nei, þú!“ Kristín: „Það er misskilningur, en ég skal gera það fyrir þig fyrst þú endilega vilt! Já, en það er svolítið fyndið að dóttir mín er með nákvæmlega sömu skekkju og þú ert með Sigga og ég lagaði það hjá henni. Hún gat ekki sagt nei því hún er svo ung. Varð að gera eins og mamma segir.“ Sigga: „Hahaha …“ Kristín: „Þrátt fyrir að ég segi að faðir minn hafi ekki haft áhrif á það hvaða starfsferil ég valdi mér er ómetanlegt að geta unnið á sama vinnustað og hann. Ég ætlaði heldur aldrei að verða formaður Tannlæknafélagsins, það var röð tilviljana. Þegar símtalið barst, þar sem ég var spurð hvort ég gæfi kost á mér í stjórn félagsins, var ég nýbúin að hlusta á félaga minn hneykslast á því að konur gæfu aldrei kost á sér í neinar stjórnir. Ég hugsaði því varla málið heldur sagði bara „já“. Mér hefur fundist gefandi að starfa fyrir Tannlæknafélagið og frábært að finna hvað kollegar eru tilbúnir að vinna með stjórnvöldum að bættri tannheilsu Íslendinga.“ Sigga: „Þegar ég fer út í hönnun er pabbi hins vegar að þrýsta á mig að fara út í tannlækningar. Ég var algjör dútlari, alltaf að föndra og vinna í höndunum. Það varð hins vegar ekki aftur snúið þegar ég var 17 ára og listakennarinn minn í Ameríku, þar sem ég var skiptinemi, sagði við mig að ég yrði að fara í listtengt nám. Ég verð honum ævarandi þakklát fyrir það. En þetta var á þeim tíma sem það þótti ekki mikið vit í því fjárhagslega að leggja hönnun fyrir sig. Mamma og pabbi voru þar á meðal en þeim þótti eina vitið að ég skráði mig í læknisfræði. Ég var því skráð í læknisfræði við Háskóla Ís- lands í heilt ár því mamma skráði mig meðan ég var úti á Ítal- íu án þess að ég hefði nokkurn áhuga á því,“ segir Sigga og skellir upp úr. „Ég er óskaplega hamingjusöm með að hafa valið mér þetta fag og finnst stundum eins og ég sé að leika mér alla daga. Ég vinn með skemmtilegu fólki, vinn mikið og hef kennt í yfir 20 háskólum í heiminum þar sem ég sá um allt samstarf við hönnunarskóla í heiminum þegar ég vann hjá IKEA. Ég ráðlegg mínum nemendum að vera óhrædd við að taka að sér ólík verkefni. Það hefur verið mitt viðmót alla tíð. Ég hef náð að brauðfæða mig alla tíð frá því að ég byrjaði, sem er alls ekki sjálfsagt.“ Systir þín talar um tannréttingar við þig Sigga en ert þú ekkert að skipta þér af heimili systur þinnar? Kristín: „Jú.“ Sigga: „Nei.“ Kristín: „Jú! Áður fyrr, áður en maðurinn minn fór að treysta henni fyrir breytingum á heimilinu, gerðum við þetta oft þann- ig að Sigga kom í heimsókn þegar Bjarni var í veiði eða eitt- hvað slíkt. Við tókum heimilið samt ekki almennilega til bæna fyrr en við komum heim úr námi. Og þá hannaði Sigga það upp á nýtt.“ Sigga: „Eins og heyra má er Kristín það stabíl að hún býr meira að segja enn í sama húsinu og hún gerði í upphafi bú- skapar.“ Kristín: „En það má segja að Sigga sé búin að sá sínum frá- bæru hönnunarfræjum hjá okkur hinum og mér finnst lang- best að kaupa allt með henni.“ Sigga: „Ég hef haft áhuga á þessu frá því að ég var smástelpa. Ég mátti varla koma inn hjá fólki án þess að fara að fikta. En þetta hefur ekki verið hrein afskiptasemi í mér alla tíð því ég fæ mjög gjarnan spurningar þegar ég fer í heimsóknir.“ Kristín: „Ég sendi Siggu stundum sms þegar mikið liggur við til að spyrja í hverju ég á að vera. Það er alltaf hægt að treysta á hana.“ (Kristín sýnir blaðamanni sms þar sem hún spyr Siggu í hverju hún eigi að vera á blaðamannafundi sem og svarið þar sem Sigga útlistar það nákvæmlega.) Sigga: „Já, stundum hefur það gerst að mamma sendir mér myndir frá útlöndum til að spyrja hvað hún eigi að velja.“ Kristín: „Það má taka það fram að móðir okkar er „mast- erchef“ í smekklegheitum. Ég kalla hana óhikað smekklegustu konu norðan Alpafjalla og þótt víðar væri leitað.“ Sáuð þið fyrir ykkur að yrðuð forystusauðir í ykkar fagi? Sigga: „Nei, ég sá það ekki fyrir og ég meina það. Jú, það er mikið að gera en það er eitt sem hef haft í forgangi síðustu ár- in og það er sonur minn. Ég gæti til dæmis verið með stærra stúdíó og ef ég væri úti í Svíþjóð myndi allt ganga hraðar fyrir sig. En ég vil hafa þetta svona, sérstaklega því hér á landi fær fjölskyldan og hann meiri aðstoð og Greiningarstöðin hefur staðið þétt við bakið á okkur. Ég hef valið að hafa fyrirtækið í minni kantinum og velja verkefni. Það stuðlar að fagmennsku og sveigjanleika sem mér finnst ég þurfa núna með börnin svona lítil. Þau eru sex, sjö og níu ára og ég vil alltaf geta ver- ið í kallfæri og stutt þau. Vinnan mín er mér líka gríðarlega mikilvæg og ég keyri eiginlega á tvövöldum hraða til þess að geta sinnt hvoru tveggja. En ég myndi seint fá „Mother of the Year Award“ ef mælt væri eftir viðveru á tónlistarskemmt- unum og bökunarafköstum fyrir fjáröflunarbasara.“ Kristín: „Ég er fremur pólitísk í eðli mínu og stundum finnst mér eins og tilviljanir hafi ráðið öllu en líklega hefur annað og meira komið þar til. Ég hef ekki skilið hvernig munnurinn hef- ur verið skilinn frá öðrum líkamspörtum innan heilbrigðiskerf- isins og ég er óhrædd við að tjá mig um það. Ég sé fyrir mér mörg verkefni sem ég þarf að vinna að, því þótt löngu tíma- bærir samningar um tannlæknaþjónustu barna séu í höfn, þá er svo ótalmargt að huga að. Við þurfum ekki einungis að huga að þeim börnum sem skila sér ekki til tannlæknis, það þarf líka að huga að eldra fólki. Það er aðkallandi að huga að tenntum einstaklingum á öldrunar- og hjúkrunarheimilum sem eiga oft í erfiðleikum með munn- og tannhirðu. Mér finnst ég alls ekki hafa náð langt, en ég hef haft það að leiðarljósi að vera samkvæm sjálfri mér, heil og trú minni sannfæringu. Þrátt fyrir að vera með aukalínur í ferilskránni eru margar hvunndagshetjur sem hafa náð svo miklu lengra en ég og ættu miklu frekar heima í blaðaviðtali sem þessu.“ Systurnar Kristín Heimisdóttir, formaður Tannlæknafélags Íslands, og Sigríður Heimisdóttir, Sigga Heimis, hafa alla tíð verið nánar en ólíkar. Morgunblaðið/Kristinn * „Við erum svolítið ítölsk í okkur, fjölskyldan. Allirhafa ríka þörf fyrir að tjá sig, um pólitík og allt mögulegt, og ég held að í þeim kringum- stæðum sé auðvelt að misskilja okkur og andrúmsloftið. Sem er gott þótt fólk tali hátt.“ 2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.