Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 23
2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Þ að hefur sýnt sig að þeir sem hætta notkun tóbaks á vorin ná betri árangri heldur en aðrir. Þetta seg- ir Jóhanna S. Kristjánsdóttir, hjúkrunarfræðingur og verkefn- isstjóri hjá Ráðgjöf í reykbindindi. Jóhanna var á meðal mælenda á dagskrá Embættis landlæknis í til- efni af alþjóðlegum degi án tóbaks sem haldinn er á heimsvísu ár hvert að frumkvæði Alþjóðaheil- brigðisstofnunar (WHO). Ráðgjöf í reykbindindi er síma- þjónusta sem aðstoðar einstaklinga við að hætta notkun hvers kyns tóbaks og nikótínlyfja og sett var á laggirnar 1. janúar árið 2000. „Þegar við byrjuðum var fyrst og fremst horft til reykinga en eft- ir því sem árin hafa liðið hefur neysluform tóbaks breyst mikið hér á landi. Í kjölfar reyk- ingabannsins á veitinga-, skemmti- og gististöðum, sem sett var á þann 1. júní 2007, hefur reyk- ingatíðni lækkað verulega en í stað- inn jókst notkun á reyklausa tóbakinu og fóru margir að nota íslenska nef- tóbakið í vör. Það hefur verið með ólíkindum að fylgj- ast með tölum um sölu á neftóbaki hjá ÁTVR und- anfarin ár,“ segir Jóhanna en bætir við að salan virðist þó hafa náð há- marki árið 2011 því úr henni dró á síðasta ári. Snýst um að halda út Þrátt fyrir breytt neyslumynstur landans á tóbaki hefur eftirsóknin í þjónustu Ráðgjafar í reykbindindi verið stöðug frá stofnun. „Eft- irsóknin hefur alltaf verið nokkuð jöfn og þétt milli ára en við fáum alltaf okkar álagstíma í desember og janúar. Í desember er fólkið byrjað að undirbúa áramótaheitin og þá er býsna mikið hringt og síð- an verður algjör sprenging í jan- úar. Hins vegar hefur sýnt sig að þeir sem eru að hætta á vorin ná miklu betri árangri enda þekkja flestir hve mörgum mistekst að fylgja áramótaheitunum sínum al- mennilega eftir. Þetta er bara eins og með líkamsræktarstöðvarnar,“ segir Jóhanna á léttum nótum. „Þess vegna er 31. maí alveg kjör- inn dagur fyrir tóbakslausa daginn. Margir sem hætta á vorin ná að halda tóbaksbindindið út svo þetta er besti tíminn til að hætta.“ Jóhanna ítrekar að galdurinn við að hætta snúist einmitt um að halda út. „Það er ekkert mál að hætta, sumir hætta oft á dag, en málið snýst um að halda út. Þjón- ustan okkar snýst um að hjálpa fólki við að hætta og svo fylgjum við því eftir í heilt ár. Við óskum engum til hamingju með tóbaks- leysið fyrr en viðkomandi er búinn að vera tóbakslaus í heilt ár.“ ALÞJÓÐLEGUR TÓBAKSLAUS DAGUR VAR 31. MAÍ Vorið er tíminn til að losa sig við tóbak JÓHANNA S. KRISTJÁNSDÓTTIR, HJÚKRUNARFRÆÐINGUR OG VERKEFNISSTJÓRI HJÁ RÁÐ- GJÖF Í REYKBINDINDI, HEFUR AÐSTOÐAÐ FÓLK Í 13 ÁR VIÐ AÐ HÆTTA TÓBAKSNEYSLU. HÚN SEGIR ÞÁ SEM HÆTTA AÐ NOTA TÓBAK Á VORIN NÁ BETRI ÁRANGRI EN AÐRIR. Jóhanna S. Kristjánsdóttir Jóhanna S. Kristjánsdóttir segir að álagstíminn hjá Ráðgjöf í reykbindindi sé alltaf í desember og janúar, það er að segja um það leyti þegar tóbaksneytendur fara að huga að áramótaheitum sínum. Morgunblaðið/Ómar Sófakartöflur geta glaðst yfir nýrri norskri rannsókn sem sýnir að ekki þurfi meira en 4 mínútna æfingu þrisvar í viku til að snúa óheillaþró- un fitusöfnunar við. Daily Mail greindi frá rannsókninni í vikunni sem norski háskólinn í Þrándheimi kynnti. Það er vel þekkt að æfingar auka súrefnisupptöku líkamans. Norski háskólinn rannsakaði nokkra hópa af fólki sem var vel rúmlega í yfir- vigt og æfði ekkert. Leiðbeinandi rannsóknanna, Arnt Erik Tjonna, sagði: „Samkvæmt okkar niður- stöðum virðast svona stuttar æf- ingar gerðar af miklum krafti, þrisv- ar í viku, vera ákaflega árangursrík aðferð til að auka súrefnisupptöku líkamans.“ Rannsóknirnar sýndu að súrefnisupptaka fólksins sem tók þátt jókst um 10% þrátt fyrir að æf- ingarnar væru stuttar, svo fram- arlega sem kraftur væri í þeim. SÓFAKARTÖFLUR GETA GLAÐST 12 mínútna æfingar á viku Það er aldrei of seint að snúa dæm- inu við og koma sér í betra form. Bretum hefur löngum þótt sopinn góður, jafnvel of góður ef marka má nýjar tölur sem Upplýsingastofnun heilsumála þar í landi birti í vikunni. Þar kemur fram að skrifað er upp á 75% meira af lyfjum vegna alkóhól- isma nú en fyrir níu árum. Á liðnu ári voru gefnir út 180.000 lyfseðlar í Bretlandi vegna lyfja sem ætlað er að draga úr áfengisneyslu. Það er 6% aukning frá árinu á undan. Þeirra á meðal er lyfið Antabuse sem veldur bæði ógleði og uppköstum sé áfengra drykkja neytt. Til að bæta gráu ofan á svart voru innlagnir á spítala vegna ofdrykkju á síðasta ári í fyrsta skipti í sögunni fleiri en 200.000 talsins. Það er aukning upp á 41% á aðeins einum áratug. Sex af hverjum tíu sjúklingum sem þurftu á innlögn að halda voru karlar. MIKIL AUKNING Í ÁVÍSUN LYFJA VEGNA DRYKKJU Óhófleg áfengisneysla getur haft voðalegar afleiðingar fyrir fólk. AFP Áfengisvandi Breta eykst Sumir sjá þetta sem pervertisma og ógeð, en að njóta svipusmellsins og hringlsins í keðjunum getur verið gott fyrir heilsuna samkvæmt rann- sókn sem framkvæmd var við hol- lenska háskólann Tilburg af sál- fræðingnum dr. Andreas Wismeijer. Daily Mail sagði frá nið- urstöðum rannsóknanna í blaði sínu í vikunni og hafa þær vakið at- hygli almennings. Sumir þeirra sem daðra við BDSM þurfa því ekki lengur að skammast sín. Sálfræð- ingurinn telur að ástæða þess að fólki sem leikur sér í þessum leikj- um líði oft betur sé sú að það sé óhræddara við að prófa og minna lokað inní sér. En ætla má að fleiri rannsóknir þurfi til að fullyrða um niðurstöðurnar. KYNLÍF OG HEILSA Skrítnir kyn- lífsleikir og góð heilsa. Sadó-masó fyrir heilsuna?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.