Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Síða 27
2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða
– fyrir lifandi heimili –
99.990
FULLT VERÐ: 119.990
HAVANA
HÆGINDASTÓLL
Svart leður
149.990
FULLT VERÐ: 169.990
GYRO
HÆGINDASTÓLL
Hvítt, rautt
eða svart leður
119.990
FULLT VERÐ: 139.990
GOHST
HÆGINDASTÓLL
Grátt, blátt,
turkis og
fjólublátt
ákæði
FÁÐU ÞÉR GOTT SÆTI!
Sérlega vandaðir hægindastólar
með snúningi. Leður eða áklæði.
Fjölmargir litir og útfærslur.
Fáguð skandinavísk hönnun
www.husgagnahollin.is
Öll framleiðsla Postulínu fer fram á verkstæði Guðbjargar og Ólafar hérlendis þó svo að efniviðurinn sé fenginn að utan.
Postulínu-systur sérhæfa sig í hönnun og framleiðslu úr handrenndu postulíni og hafa
áður framleitt hönnunarvörur á borð við kertastjaka, blómavasa og jólaskraut.
* Vonir standatil að matar-stell Postulínu
verði klárt fyrir
HönnunarMars
á nýju ári og
stefna þær Postu-
línu-systur að því
að frumsýna hönn-
unina í samstarfi
við vel valið
veitingahús.
Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði 9,6 milljónum króna til níu
hönnunarverkefna á fimmtudaginn síðastliðinn. Styrkjunum er ætl-
að að styrkja hönnuði til að koma hugmyndum sínum í framkvæmd
sem og aðstoða við vöruþróun og markaðssetningu.
Að þessu sinni bárust rúmlega 60 umsóknir af öllum sviðum
hönnunar og segir í fréttatilkynningu að umsóknirnar beri þess
merki að mikil gróska og framþróun eigi sér stað í verkefnum
hönnuða hér á landi.
Hönnuðirnir og hönnunarverkefnin sem hljóta styrk að þessu
sinni eru: Slíjm sf. (1,5 milljón kr.), mannfélagslegt rannsókn-
arverkefni hönnuðanna Eddu Kristínar Sigurjónsdóttur og Krist-
ínar Gunnarsdóttur sem byggist m.a. á þróun þarabaða við Gróttu,
Siggi Eggerts (1,5 milljón kr.), hönnuður og listamaður, til vinnu
við gerð gagnvirks bókverks byggt á ævintýrinu um Búkollu,
Postulína (1 milljón kr.), verkefni Guðbjargar Káradóttur og Ólaf-
ar Jakobínu Ernudóttur, til þróunar og framleiðslu íslensks mat-
arstells, Steinunn Sigurd ehf. (1,5 milljón kr.), hönnunarfyrir-
tæki fatahönnuðarins Steinunnar Sigurðardóttur, til frekari
þróunar á prjónavinnustofu og myndbandsgerð fyrir fyrir-
lestraröð, Halldóra Arnardóttir (1,2 milljón kr.), doktor í arki-
tektúr, til rannsóknar- og hönnunarverkefnis vegna bókar um verk
og hugmyndir Kristínar Guðmundsdóttur, barnafatalínan AS WE
GROW (1 milljón kr.), verkefni Margrétar Hlöðversdóttur, Guð-
rúnar Rögnu Sigurjónsdóttur og Maríu Th. Ólafsdóttur, til mark-
aðssetningar á fatalínunni erlendis, FÍLA (400 þúsund kr.), Félag
íslenskra landslagsarkitekta, til uppbyggingar og þróunar gagna-
grunns fyrir nýja heimasíðu, Sunna Örlygsdóttir (500 þúsund
kr.), fatahönnuður, til starfsnáms hjá fyrirtækinu MariaLux í Amst-
erdam, Hönnunarmiðstöð (1 milljón kr.), til skrásetningar og
gerðar kynningarefnis um HönnunarMars.
SVONA ÚTHLUTUÐUST STYRKIR AURORU
Hönnunarsjóður Auroru hóf starfsemi árið 2009. Úthlutunin í vikunni
var sú 10. frá stofnun og er stefnt er að því að úthluta næst í október.
Ljósmynd/Valgarður Gíslason