Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 36
A ðspurður hvort Arnar Ingi sé tölvunörd heldur hann því fram að svo sé ekki. „Ekki mikill í það minnsta. Ég skrif- aði bókina Snakk fyrir Makkapakk fyrir tveimur árum sem seldist mjög vel. Hún kom þannig til að ég var að vinna á auglýs- ingastofu og það voru svo margir að spyrja mig um hitt og þetta í kringum Makkann, þannig að ég tók mig til og skrifaði nokkrar síður af þess- um grundvallaratriðum sem var alltaf verið að spyrja mig um og dreifði um vinnustaðinn. Svo voru þessar síður farnar að breytast í bækling og loks ákvað ég bara að breyta þessu í bók sem yrði ekki bara fyrir vinnufélagana. Hún seldist í þúsundum eintaka. Ég er ekki tölvu- nörd, því ég kann ekkert í forritun, en ég er þó örugglega lúði á einhvern hátt. Það eru þrjár ástæður fyrir því að iPadinn er svona mikil snilld. Eða spjaldtölvur yfir höfuð. Í fyrsta lagi er iPadinn meðfærileg tölva, sem er bara stór skjár. Gagnvirkur skjár þar sem mað- ur notar puttana, sem eru eðlislægustu tól mann- anna. Annað atriðið er pappírsnotkunin, hvað iPadinn getur skorið niður pappírsneyslu. Það er ábyggilega hægt að skera hana niður um 80%. Númer þrjú er hvað hann er hentugur fyrir þroska, kennslu og uppfræðslu ungra ein- staklinga.“ Ekkert tengdur Apple Aðspurður hverjir séu stærstu þröskuldarnir við notkun spjaldtölva segir hann þá vera nokkra. „Það fylgja spjaldtölvum ákveðnar hömlur fyr- ir okkur Íslendinga sem stendur. Við getum ekki keypt tónlist, kvikmyndir og þætti eins og þau í Bandaríkjunum geta. Annar þröskuldur er að augun eru ekki gerð fyrir þetta eða í það minnsta er fólk ekki vant því að lesa heilu bækurnar á skjá. Það er í það minnsta svolítið erfitt að venja sig á þetta til að byrja með. En stærsti þröskuldurinn er að fólk gerir sér ekki grein fyrir því hvað það getur gert með spjaldtölv- urnar. Það eru ótrúlegir möguleikar í þeim. Það var enginn sem bað mig um að skrifa um þetta, ég hef engra hagsmuna að gæta og er algjörlega ótengdur Apple, er bara graf- ískur hönnuður sem hefur mikinn áhuga á iPad. iPadinn er ótrúlega notendavæn tölva. Ef fólk fer að fikta með hann sér það að það eru til öpp um allt. Ef það er ekki til app um það, þá er einhver að búa það til einhvers staðar í heiminum. Fjölbreytileiki appa eða smáforrita er endalaus.“ Strokið og potað Aðspurður hvernig leiðarvísirinn er byggður upp segist Arnar skipta bókinni upp í nokkra hluta. „Pínulítill hluti bókarinnar er um þýðingar á íslensku á þessum hugtökum. Mér finnst sjálf- sagt að reyna að stemma stigu við þessum enskuslettum. Þótt maður nái ekki nema að smokra inn íslensku af og til er það eitthvað. Fyrsti hluti bókarinnar fer í að skýra hug- tökin. Leyfa fólki að átta sig á aðalhugtökunum og öllu þessu stafræna umfangi sem teygir sig langt. Síðan er farið í það hvernig þú notar iPad- inn í daglegu lífi, sýna þér möguleika spjaldtölv- unnar. Svo er netið og öryggi á netinu til umfjöll- unar og hvernig þú nálgast netið í gegnum iPadinn, þetta er svona „internetið og iPadinn“- kafli bókarinnar. Seinasti hlutinn fjallar um öryggið. Börn og unglingar eru orðin svo samtvinnuð félagsmiðlum og tölvum að því fylgir ákveðin hætta. Menn verða að hafa í huga að með svona miklu gagnsæi þarf að fara varlega. Sérstaklega fyrir óharðnaðar sálir krakka og unglinga. En talandi um unglinga þá vona ég innilega að bókin hjálpi kennurum til að nota iPadinn við kennslu. Rafrænar námsbækur – það eru miklir möguleikar í því. Kennarar geta gert það sjálfir. Það er bara brilljant. Þú getur uppfært bækurnar á tveggja ára fresti. Ef spjaldtölvur eru að fara að taka meira og meira við er eins gott að við notum þær. Margir skólar eru farnir að nota spjaldtölvur. Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti til að mynda og nokkrir grunnskólar líka, meðal annars Árbæj- arskóli. Danska þingið er að taka þetta upp þannig að þar verður ekki lengur dreift pappír út um allt heldur kemur þetta allt á spjaldtölvu.“ Aðspurður um nafnið á bókinni, Hinn al- íslenzki iPad leiðarvísir, segist Arnar hafa spáð í mörg önnur nöfn. „Fyrst átti hún að heita Snakk fyrir appapakk, en ég óttaðist að þá myndi fólk rugla henni saman við fyrri bók mína, sem hét Snakk fyrir makkapakk. Svo var ég að velta fyr- ir mér nafninu Handapat eða Strokið og potað, sem mér fannst mjög snjallt. En svo þorði ég ekki annað en hafa nafnið svona „basic“, það eina sniðuga í nafninu sem ég leyfði mér að hafa var að hafa z í al-íslenzki. Fyrst ég ætlaði að hafa þetta þurrt ákvað ég að hafa alveg hundrað ára gamlan þurrleika í þessu. Eins og Leið- arvísir fyrir unga menn fyrr á öldum eða eitt- hvað þess háttar,“ segir Arnar Ingi. FRÆÐIR UM MÖGULEIKA SPJALDTÖLVUNNAR Snakk fyrir appapakk NÚNA UM HELGINA KOM Í VERSLANIR BÓKIN HINN AL-ÍSLENZKI IPAD LEIÐARVÍSIR EFTIR ARNAR INGA VIÐARSSON. VON HÖFUNDAR ER AÐ BÓKIN HJÁLPI FÓLKI AÐ LÆRA INN Á MÖGULEIKA SPJALDTÖLVA OG NÝTA ÞÆR VIÐ KENNSLU, NÁM OG SKEMMTUN. Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Arnar Ingi Viðarsson segist ekki vera tölvunörd. Græjur og tækni Hvað sem mönnum finnst annars um Apple og Apple-varning verð-ur því ekki neitað að hönnuðir þar eru með þeim fremstu semvéla um vélbúnað. Það kemur því varla á óvart að aðrir tölvu- framleiðendur leiti í smiðju Apple-bænda eftir hugmyndum eða inn- blæstri, enda blasir það í það minnsta við þegar maður lítur Lenovo A720 í fyrsta sinn, enda svipar henni óneit- anlega mjög til iMac-línunnar frá Apple; tölva þar sem allt er innbyggt í glæsilegan næf- urþunnan skjá. Við nánari skoðun kem- ur þó í ljós að Len- ovo-vélin er all frábrugðin iMakka og þá helst í því að móðurborðið er í fæt- inum, en ekki í skjánum og einnig að 27" skjárinn er snertiskjár, eins og velflestir skjáir verða á endanum. Þó skjárinn sé stór fer ekki mikið fyrir vélinni, hún er 65,8 x 49 x 22,5 sm að stærð og hálft tólfta kíló að þyngd. Stýrikerfið í vélinni er 64 bita Windows 8 og nýt- ir snertiskjáinn vel. Það er og mikill kostur við skjáinn að hægt er að halla honum verulega, svo verulega að hægt er að leggja hann alveg flatan sem eykur notagildið umtalsvert; standurinn hallar frá -5° til 90° – geri aðrir betur. Í fætinum er Blu-Ray-lesari og DVD-skrifari og 6-1 kortalesari. Það er nóg af tengjum, 3 USB 3.0 og 2 USB 2.0 tengi, inn- og úttak fyrir hljóð og líka HDMI inn- og úttengi. Það er innbyggt þráðlaust net í vélina, en óskiljanlegt af hverju ekki er líka innbyggt Bluetooth og því fer eitt USB-tengjanna undir Blue- tooth-kubb sem fylgir svo hægt sé að nota þráðlausa lyklaborðið og mús- ina (eða fjarstýringuna). HDMI-inntengið gefur möguleika á að tengja tölvuna við annan skjá, en 27" eru ekki nóg, en þar sem það er líka inntengi, er hægt að nota tölvuna sem skjá, til að mynda fyrir aðra tölvu. Með fylgir fjarstýring sem er með einskonar lyklaborði með örsmáum hnöppum og músarkúlu. Frumleg og býsna notendavæn þegar maður er bú- inn að ná tökum á henni, þ.e. ef maður er ekki oft langt frá skjánum. A720 er mjög vel heppnuð úrfærsla á fínni hug- mynd þó hún kosti sitt, um 300.000 kr. Það er trú mín að tölvur verði almennt með snertiskjái og Le- novo A720 sýnir og sannar notagildi þess, ekki síst ef maður notar Windows 8. ALLT Á EINUM STAÐ APPLE VARÐAÐI VEGINN, NÚ GERA AÐRIR BETUR OG BJÓÐA TÖLVUR ÞAR SEM ALLT ER INNBYGGT Í NÆFURÞUNNAN SNERTISKJÁ. LENOVO A720 ER GOTT DÆMI UM HVERNIG Á AÐ GERA HLUTINA. * Myndavél er innbyggð í skjá-inn. Hátalarar eru örlitlir og ekki mikið stuð í þeim, en þó þokka- legir. Hver sá sem ætlar að horfa á mikið af myndum í slíkri vél eða spila músík í gegnum hana ætti að tengja beint við heimilisgræjurnar eða við hátalara með innbyggða magnara. * Örgjörvinn í vélinni er 3,1GHz tveggja kjarna Intel Core i5 3210 og dugir vel í alla vinnslu, þó ekki sé hann beinlínis vinnu- þjarkur. Vinnsluminni í vélinni er 6 GB, stækkanlegt í 8, harður disk- ur 1 TB 5400 snúninga. Skyn- samlegt að bæta við USB 3.0 diski ef streyma á miklu af myndum. * Skjárinn er 27", eins og getiðer hér til hliðar, Full HD snert- iskjár með upplausnina 1920x1080. Mér finnst það reyndar fulllítil upplausn fyrir svo stóran skjá, en skjákortið er þokkalegt, NVIDIA GeForce GT 630M með 1 GB minni. Afbragð fyrir vídeó. ÁRNI MATTHÍASSON Græja vikunnar * Vonar að bókin hjálpitil við notkun spjaldtölva í kennslu. 36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.