Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Page 12
Viðtal
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2013
Bílasala Funahöfða 1 110 Rvk. Sími: 580-8900
Funahöfða 1
110 Reykjavík
Sími: 567-4840
ERTU MEÐKAUPANDA?Skjalafrágangur
frá kr. 15.080
Seljum allskonar bíla,
langar þig í einn?
Skráðu þinn frítt!
Okkur finnst gaman
að selja bíla,
viltu selja þinn?
SÖLULAUN frá kr. 39.9
00
P
álmi Guðmundsson er
ekki lengur sjónvarps-
stjóri Stöðvar 2 þegar
fundum okkar ber
saman í Hörpu um
miðjan dag í gær, föstudag. Hann
kemur beint af fundi með Ara Ed-
wald, framkvæmdastjóra 365, þar
sem hann ritaði nafn sitt undir
starfslokasamning. Þar með er
komið að kaflaskilum en Pálmi
hefur verið viðloðandi fjölmiðlafyr-
irtækið sem nú heitir 365 frá
árinu 1992. Hann byrjaði sem
dagskrárgerðarmaður og síðan
yfirmaður í útvarpi, þá fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs 365 og
frá 1. janúar 2007 hefur hann ver-
ið sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
„Aðdragandinn er ekki langur,“
upplýsir Pálmi þegar við höfum
komið okkur fyrir í leðursófum í
hlíðinni sem liggur upp á tind
Hörpunnar. „Nýverið voru gerðar
skipulagsbreytingar hjá fyrirtæk-
inu sem mér hugnuðust ekki. Þess
vegna ákvað ég að segja upp
störfum. Þetta hefur verið ótrú-
lega skemmtilegur tími og þetta
er ekki verri endapunktur en hver
annar. Ég held að enginn stjórn-
andi í þessu fyrirtæki hafi verið
lengur í starfi en ég.“
Hann brosir.
Hættir að eigin
frumkvæði
Pálmi segir frumkvæðið alfarið
sitt. „Þetta er gert í spekt við allt
mitt umhverfi. Það eru mikil for-
réttindi að hafa fengið tækifæri til
að vinna fyrir þetta félag og ég
kveð með söknuði.“
Spurður hvort ólga sé innan
365 miðla vegna þeirra breytinga
sem gerðar hafa verið á
stjórnendastöðum innan fyrirtæk-
isins að undanförnu svarar hann:
„Það hefur verið samdráttur í
einkaneyslu og þegar taka þarf til
í rekstri verður stundum ólga. Að
öðru leyti er það ekki í mínum
verkahring að tjá mig um það.“
Pálmi segir hug sinn ekki hafa
staðið til þess að verða sjónvarps-
stjóri þegar Ari Edwald bauð
honum það á sínum tíma. Hann
ákvað þó að slá til og sér ekki
eftir því.
„Þetta hefur verið mikið ævin-
týri og upp úr stendur að íslenska
sjónvarpsvorið hófst á minni vakt.
Við höfum framleitt á annað
hundrað klukkustundir af leiknu
sjónvarpsefni síðasta sex og hálft
árið. Ber þar hæst gamanþríleik-
inn sem samanstóð af Nætur-,
Dag- og Fangavaktinni; og saka-
málaþættina Pressu og Rétt.
Þessi þættir hafa notið mikilla
vinsælda og unnið til fjölmargra
verðlauna og þeim er hvergi
nærri lokið. Byrjað er að skrifa
nýjar seríur af bæði Rétti og
Pressu, auk þess sem Stöð 2 ligg-
ur á gullmola sem aðrir munu fá
heiðurinn af að kynna mjög bráð-
lega. Það verkefni á eftir að mæl-
ast mjög vel fyrir. Því get ég lof-
að.“
Vaktaserían
mikið listaverk
Hann segir stemninguna í kring-
um þessi verkefni hafa verið ótrú-
lega og viðtökur farið fram úr
björtustu vonum. „Skoðum bara
Vaktaseríuna. Næturvaktin setti
allt á annan endann í samfélaginu.
Fólk er ennþá að nota frasana úr
þeim þáttum og einn af lyk-
ilmönnunum orðinn borgarstjóri.
Vaktaserían og kvikmyndin sem
kom í kjölfarið, Bjarnfreðarson,
eru mikið listaverk í mínum
huga.“
Hann tilgreinir fleiri þætti, svo
sem Steindann okkar sem komið
hafi með ferskan andblæ inn í ís-
lenskt sjónvarp, og Spaugstofuna,
gömlu grínbrýnin sem Stöð 2 ætt-
leiddi fyrir þremur árum. „Þetta
tvennt er til marks um fjölbreytn-
ina sem ríkt hefur í efnisvali.“
Viðurkenningarnar hafa heldur
ekki látið á sér standa en öll
Eddu-verðlaun fyrir leikin verk-
efni hafa farið til Stöðvar 2 frá
árinu 2007.
Pálmi er stoltur af því að fram-
leiðsla á þessu efni hófst áður en
sjónvarpssjóður var settur á lagg-
irnar innan Kvikmyndamiðstöðvar
Íslands en sá sjóður hefur verið
mjög þýðingarmikill síðustu árin.
Allt hefur þetta efni verið fram-
leitt í nánu samstarfi við Sagafilm
og ber Pálmi fólki þar á bæ afar
vel söguna.
Fréttamennirnir
blómstra
Stöð 2 hefur ekki eingöngu fram-
leitt leikið efni. „Það hefur verið
gaman í vetur að sjá Kristján Má,
Sindra Sindra, Lóu Pind, Helgu
Arnar og Sigrúnu Ósk af frétta-
stofunni blómstra í eigin dag-
skrárgerð Stöðvar 2. Af nýjustu
sjónvarpsstjörnum Stöðvar 2 er
líka gaman að nefna Björn Braga
sem var valinn sjónvarpsmaður
ársins á síðustu Eddu-hátíð. Mér
Stoltastur
af íslenska
sjónvarps-
vorinu
PÁLMI GUÐMUNDSSON SAGÐI UPP SEM SJÓNVARPSSTJÓRI
STÖÐVAR 2 Á FÖSTUDAG OG LÆTUR ÞEGAR Í STAÐ
AF STÖRFUM. RÚM TUTTUGU ÁR ERU SÍÐAN PÁLMI,
SEM VERÐUR EKKI FERTUGUR FYRR EN Í SUMAR,
HÓF STÖRF HJÁ FYRIRTÆKINU SEM NÚ HEITIR 365 OG
LENGST AF HEFUR HANN UNNIÐ ÞAR SEM STJÓRNANDI.
HANN ER STOLTUR AF VERKUM SÍNUM EN HEFUR EKKI
ÁKVEÐIÐ HVAÐ HANN TEKUR SÉR NÆST FYRIR HENDUR.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is