Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Page 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Page 16
Bærinn Squamish í Bresku Kólumbíu við Kyrrahafsströnd Kanada er þekktur fyrir alls kyns útiveru; fiskveiðar og sigl- ingar, golf, fjallgöngur og skíðamennsku svo eitthvað sé nefnt. Ég hef búið hér í þrjú ár ásamt eiginkonunni, Carrie Chase, og strákunum mínum, Nico Andra Árnasyni sem er tvítugur og Anthony Loga Árnasyni sem er 16. Þetta er um 17.000 manna bær, svipaður og minn gamli heimabær, Akureyri. Við erum 45 mínútur að keyra suður til Vancouver og í 40 mín. til norðurs er Whistler, eitt besta skíðasvæði í heimi. Squamish er svefn- bær; flestir íbúarnir vinna í Vancouver eða Whistler og strák- arnir mínir eru t.d. báðir í skóla í Vancouver. Þetta er flottur staður – hingað þurfa allir að koma! Árni Þór Árnason. Skíðasvæðið Whistler, eitt það besta í heimi, skammt norðan við Squamish. Séð að Squamish utan af sjó. Útivistarparadís í Kanada Squamish-dalur er stór og fagur. PÓSTKORT F RÁ SQUAMIS H Það var augnabliksákvörðun um harðavetur, eftir að hafahorft á dönsku bíómyndina Den skaldede frisør, semvar tekin í Sorrento, og við sjáum ekki eftir því, segirGuðbrandur. Þau skipulögðu ferðina sjálf og ákváðu strax í upphafi að slá nokkrar flugur í einu höggi. Að eiga sex huggulega daga í Sorrento, en heimsækja í leiðinni þau börn Guðbrandar sem búa í útlandinu, son í Kaupmannahöfn og dótt- ur í Osló. Hjónin hættu sér út í fargjaldafrumskóginn á netinu með afbragðs árangri; fengu flug með Icelandair, EasyJet og Nor- wegian að heiman og heim með viðkomu í Kaupmannahöfn, Míl- anó, Napólí, London og Osló, fyrir um 120.000 kr. fyrir bæði. Þau bjuggu á litlu hóteli hátt uppi í hlíðunum ofan Sorrento. „Vegirnir eru svo þröngir þarna efst uppi að leigubílarnir komast ekki alla leið. Fyrsta kvöldið beið Pasquale, eigandi hótelsins Villa Monica, við fyrstu þrenginguna og keyrði okkur á leiðarenda. Við hugleiddum hvort fjallganga heim á hótel yrði daglegt brauð, en það voru óþarfar áhyggjur. Pasquale var með fastar ferðir nokkrum sinnum á dag fyrir gesti sína, sem voru reyndar ekki margir, því á Villa Monica eru bara fjögur herbergi. Hann keyrði okkur jafnvel á afskekkta veitingastaði og náði í okkur aftur; fór í eldhúsið að spjalla við kokkinn á meðan við kláruðum desert- inn. Á hverjum degi spurði hann hvað við vildum gera og hvert við vildum fara. Þetta er líklega eins og hafa einkaþjón. Kemur þegar á þarf að halda, en dregur sig í hlé þess á milli,“ segir Guðbrandur. Þau gengu um hæðirnar í kringum Sorrento, sigldu út í Capri, tóku rútuna til Amalfí eftir ævintýralegum vegum sem hanga ut- an í klettastálinu og syntu í sjónum. Nutu lífsins í hægum takti. Útsýnið af svölum hótelsins var glæsilegt, hús og sítrónulundir teygðu sig upp í fjallshlíðarnar allt í kring. Tár Krists kalla heima- menn rauðvínið úr hlíðum Vesúvíusar og eldfjallið hinum megin Napólíflóans minnir á sig. Undir því býr hálf fjórða milljón manna og ekki annað hægt en leiða hugann að því hvað gerist þegar næsta stórgos verður í þessu sögufræga eldfjalli. „Örlög Pompei árið 79 voru okkar ofarlega í huga eftir að hafa gengið upp á gígbarminn og síðan um steinlagðar götur Pompei.“ DEN SKALDEDE FRISØR HAFÐI ÁHRIF Einkaþjónn í Sorrento RAGNHEIÐUR ÝR GRÉTARSDÓTTIR OG GUÐBRANDUR MAGNÚSSON SKELLTU SÉR TIL SORRENTO Á ÍTALÍU Í VOR. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Guðbrandur Magnússon Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir*Ferðalög og flakkMeð Of Monsters and Men á goðsagnakenndan tónleikastað við rætur Klettafjalla »18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.