Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Síða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Síða 19
skötuhjúin létum ofan í okkur á Larimer var kengúrukjöt og pitsa með önd, geitaosti, epl- um og chili ásamt hráum túnfiski með dí- sætu bræddu amerísku sælgæti. Það borgar sig að vera í samfloti við ævintýragjarnan matgæðing. Náttúrufegurð í bland við innri frið Magnaða náttúrufegurð er að finna í Colo- rado-ríki en einungis tekur um 30 mínútur að keyra frá miðborg Denver upp í Kletta- fjöllin en skemmtilegast er að keyra sveita- vegina frekar en að hlýða alvitru Garmin- tæki og þjóta beint út á hraðbrautina. Marg- ir bæir eru staðsettir við rætur fjallanna og af þeim er gaman að koma við í Boulder þar sem enn eimir af andrúmslofti innri friðar og andlegra óvissuferða en bærinn varð frægur á sjöunda áratugnum þegar hipparnir tóku við hann ástfóstri. Boulder hefur margsinnis verið ofarlega á hvers kyns listum um staði í Bandaríkjunum með mestu lífsgæðum og lít- ur út fyrir að vera vinsæll sem áfangastaður þeirra sem hafa dottið í lukkupottinn og setjast í helgan stein snemma. Frá Boulder er svo stutt upp í Rocky Mountain National Park þar sem er að finna ótrúlega náttúrufegurð, fjölbreytt dýralíf og vinsælar gönguleiðir. Estes Park er skemmtilegur lítill bær við mynni þjóðgarðs- ins en þar er, auk dádýra á stangli, að finna Stanley Hotel þar sem Stephen King dvaldi í herbergi nr. 127 þegar hann fékk hugmynd- ina að The Shining eða Duld upp á okkar yl- hýra. Margir gætu einnig kannast við hótelið úr myndinni Dumb and Dumber þar sem þeir Lloyd Christmas og Harry Dunne áttu ljúfar stundir en yfir 400 kvikmyndir hafa verið teknar upp í Colorado. Rokksagan sköpuð í Red Rocks Markmið ferðarinnar var að fylgjast með tónleikum Of Monsters and Men og Vampire Weekend á útitónleikum í Red Rocks Ampi- theatre, goðsagnakenndum tónleikastað og útileikhúsi við rætur Klettafjallanna. Varla er hægt að hugsa sér skemmtilegri tónleika- stað, rauðleitar klettamyndanir á alla kanta með útsýni yfir Denver í baksýn. Talið er að indjánar hafi notað staðinn við samkomur áður fyrr og snemma á síðustu öld var byrj- að að halda þar tónleika. Frægastir eru tónleikar U2 frá árinu 1983 sem rokksnepillinn Rolling Stone hefur lýst yfir að sé einn af 50 merkilegustu atburðum rokksögunnar. Skemmst er frá því að segja að OMAM kom sá og sigraði í Colorado þennan daginn. Spilagleðin, öryggið og krafturinn í hljómsveitinni ásamt gæðum tónlistarinnar smituðu að því er virtist hvern og einn þeirra 9.500 áhorfenda sem voru mættir. Sérstaklega var gaman að sjá fólk syngja og dansa með lögunum og af fagn- aðarlátunum að dæma komust tónleikarnir á lista fjölmargra yfir 50 merkilegustu rokk- viðburði í þeirra bókum. * Mögnuð náttúru-fegurð er í Colorado-ríki en einungis tekur um 30 mínútur að keyra frá miðborg Denver upp í Klettafjöllin Of Monsters and Men fóru á kostum í Red Rocks og fengu frábærar viðtökur um 10 þúsund gesta. Í Estes Park í fjöllunum er mikið dýralíf og dádýrin kipptu sér ekkert upp við myndatöku. Gott úrval af bjór er að finna í Colorado enda um 150 brugg- verksmiðjur í ríkinu. 2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 A81 Hönnuðir: Atli Jensen og Kristinn Guðmundsson Verð frá: 27.800,- Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.