Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Side 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Side 24
… í stofuna „Þangað vantar mig verk eftir uppáhaldslistamanninn minn, Snorra Ásmundsson, sem er á leið á Feneyjatvíæringinn.“ … í eldhúsið „Wood wood wood-glösin frá Ihanna eru falleg, stílhrein og frábær undir morgunkaffið. Þau passa einhvern veginn við allt og allt.“ … í unglingaherbergið „Lampa í þægindahorn dóttur minnar þar sem hún lærir og horfir á bíómyndir með vinum sínum. Oslo-lampinn eftir norska hönnuðinn Ove Rogne væri tilval- inn.“ … í garðinn „Þangað vantar mig fallegt Bodum-borðgrill í skandinavíska bakgarðinn minn sem er troðfullur af skemmtilegu fólki á öllum aldri. Hér er grillað í gríð og erg eftir vinnu og nágrannarnir góðir vinir.“ … á baðherbergið „Mig langar í klassíska Vipp-ruslafötu. Holger Nielsen hannaði hana fyrir konuna sína Marie Axelsen árið 1939. Hún var hárgreiðslukona og langaði í fallega rusla- fötu fyrir stofuna sína.“ … í útópískri veröld „Í slíkri tilveru vil ég eiga þrjú heimili. Eitt fyrir fjölskylduna í New York, barnvænt með garði og góðum nágrönnum í Green Point með aukaíbúð fyrir elstu dóttur mína; risíbúð við sjóinn í Reykjavík þar sem er pláss fyrir gesti og hús úti í sveit nálægt alþjóðlegum flugvelli í Suður-Evrópu þar sem ég get bæði verið ein og hvílt mig en einnig tekið á móti gestum. Börn hlaup- andi um allt, dúklögð langborð undir trján- um þar sem allir geta borðað saman. Góð- ur kokkur og starfsfólk sem sér um allt heimilishald. Svolítill Woody Allen, svolítill Ingmar Bergman, svolítill Federico Fellini. Væri fínt að hlusta á Django Reinhardt, Blossom Dearie eða Dave Brubeck.“ Morgunblaðið/Sverrir Mig langar í … RUT HERMANNSDÓTTIR KVIKMYNDA- GERÐARKONA ER NÆGJUSÖM Á HEIMILINU EN VANTAR OFT ÝMISLEGT OG ÞÁ REYNIR HÚN AÐ FÁ SÉR HLUTI SEM ERU Í SENN PRAKTÍSKIR OG FAL- LEGIR. RUT Á TVÖ HEIMILI; Á ÍSLANDI OG Í NOREGI, EN HÚN ÁKVAÐ AÐ GERA SMÁTILRAUN, SKILDI ALLT EFTIR Á ÍSLANDI OG BJÓ TIL HEIMILI Í NOR- EGI Í BYRJUN ÁRS, BARA MEÐ HLUT- UM SEM HÚN FÉKK GEFINS. ÞAÐ ER NÓG AÐ GERAST HJÁ RUT ÞVÍ Í OKTÓBER MUN HÚN OPNA VERSLUN, KAFFIHÚS OG SÝNINGAR- RÝMI Í BROOKLYN Í NEW YORK. ÞAR VERÐA NORRÆNAR HÖNNUNARVÖRUR Í HÁVEGUM HAFÐAR, EKKI SÍST ÍSLENSKAR, EN VERSLUNIN MUN EINFALDLEGA KALLAST BÚÐIN. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is … í forstofuna „Ég er sérlega skotin í Finnlandi og öllu finnsku. Hvort heldur það er Síbelíus, arkitektúr eða keramik. Múmínálfarnir eða finnskur tangó. Mig vantar svona Alvar Aalto-bekk í forstofuna. Hann er bæði prakt- ískur og fallegur.“ … í svefnherbergið „Norski hönnuðurinn Andreas Engesvik var áður í hönnunarteyminu Norway Says. Ábreiðurnar eru af nokkrum gerðum og hönnuðurinn er undir áhrifum norskra þjóðbúninga sem eru margir og misjafnir. Engesvik er að mínu mati fremsti hönnuður Norð- manna í dag og er meðal annars með vörur í fram- leiðslu hjá Muuto.“ *Heimili og hönnunStyrkjum úr Hönnunarsjóði Auroru að andvirði 9,6 milljónir var úthlutað í vikunni »26

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.