Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2013 Matur og drykkir L árus Halldórsson var ekki lengi að bregðast við beiðni Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins um uppskriftir og hafði þær að sjálfsögðu ferskar og sumarlegar enda „sumarið vonandi að bresta á“, eins og hann orðar það. Lárus var aðgerðastjóri hjá föður sínum hjá Iceland Safari um árabil og þar kveiknaði áhugi hans á matargerð. Hann fór með hóp franskra göngumanna um öræfi Íslands og eldaði úr því sem náttúran gaf. Uppáhalds uppskrift hans frá þessum ferðum var bleikja með krækiberjalyngi. Honum líður alltaf vel í eldhúsinu, ekki síst þegar hann er að prófa eitthvað nýtt. „Ég er með menntaða kokka með mér í Mat englanna og mottóið hjá okkur er að taka það besta frá mörgum eldhúsum, því ítalska, japanska, franska og spænska, og vera óhræddir við að blanda þessu saman. Okkur er ekkert hráefni óviðkomandi, svo lengi sem það er skemmtilegt að vinna úr því.“ Matur englanna er alhliða veislu- og viðburðaþjónusta. „Í gegn- um árin höfum við tileinkað okkur að þjóna viðskiptamönnum okkar vel. Hlustum og sérhönnum síðan veisluna eða viðburðinn að þörfum hvers og eins. Góð samskipti, metnaður og virðing eru okkar aðall,“ segir á heimasíðu fyrirtækisins, maturenglanna.is. Lárus upplýsir að þjónustan sé mjög sveigjanleg. Minnst hafi ver- ið eldað fyrir tvær manneskjur en mest fyrir tvö þúsund á árshá- tíð hjá stóru fyrirtæki. Þriggja rétta dýrindismáltíð. Matur englanna hefur mikið sinnt erlendum ferðamönnum, mest þúsund manna hópi frá Spáni. Allt er opið í þeim efnum og hafa leikar borist víða, úti sem inni, meðal annars upp á jökla. „Það er töluvert vinsælt hjá útlendingum sem hingað koma að snæða úti í náttúrunni – í framandi umhverfi.“ Matur englanna leggur ekki bara upp úr bragðinu, öll fram- setning á matnum skiptir máli. Gjarnan er búið til þema. „Matur á að vera fyrir öll skynfæri,“ segir Lárus. Hann segir sumarið spennandi tíma enda sé þá meira gert á staðnum, ekki síst grillað fyrir hina og þessa hópa. Á dögunum var slegið upp átta hundruð manna grillveislu á Grundartanga. Matur englanna hefur verið töluvert í vöruþróun upp á síðkast- ið. Ber þar hæst sultu sem Lárus hefur verið að gera og gefa við- skiptavinum sínum. „Þetta er meðal annars rabarbarasulta með chili og engifer og bláberjasulta með engifer. Við erum búnir að búa til einar þrjú þúsund krukkur. Enn sem komið er höfum við bara verið að gefa viðskiptavinum þetta en til stendur að selja vöruna líka.“ Framtíðarplönin eru líka á hreinu; að opna veitingastað undir merkjum Matar englanna. VEISLU- OG VIÐBURÐAÞJÓNUSTAN MATUR ENGLANNA Matur fyrir öll skynfæri SUMARIÐ LEGGST VEL Í LÁRUS HALLDÓRSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRA VEISLU- OG VIÐBURÐAÞJÓN- USTUNNAR MATAR ENGLANNA, ENDA BERAST VEISL- URNAR ÞÁ UM VÍÐAN VÖLL, JAFNVEL UPP Á JÖKLA. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Lárus Halldórsson leggur áherslu á bragð og framsetningu. Morgunblaðið/Kristinn RAUÐRÓFUSALAT ENGLANNA 4 rauðrófur 1 sítróna 100 ml ólífuolía salt og pipar Aðferð: Skerið rauðrófurnar í 2 cm bita og veltið upp úr olíunni. Bakið í 25 mín. við 170°C. Rífið sítrónubörk yfir, kreistið safa úr hálfri sítr- ónu yfir og kælið. Að lokum er gott er að skvetta smá sítrónu ólífuolíu yfir. 2 bréf parmaskinka 50 g svartar ólífur 50 g geitaostur 1 poki klettasalat 50 g ferskar döðlur 3 msk graskersfræ ½ rauðlaukur Aðferð: Laukurinn er skorinn fínt niður, döðlurnar í fjóra parta. Hráefninu blandað sam- an í skál og geitaosturinn mulinn yfir – njótið. Fyrir þá sem eru viðkvæmir fyrir geitaosti mæli ég með að kaupa hann rjómakenndan eða nota Camembert. Einnig eru sumir ekki alltof hrifnir af döðlum. Ekki vera hrædd við að nota þær í salat. Sætan í þeim er æði á móti saltinu í parmaskinkunni og geitaosturinn snilld. GRILLAÐAR TÚNFISKSTEIKUR MEÐ BANKABYGGSSALATI OG SESAM- SÓSU Fyrir 4 Bankabyggssalat: 200 g bankabygg 600 ml vatn 1 teningur grænmetiskraftur 50 g gúrka 2 tómatar ½ rauðlaukur 1 búnt kóríander börkur og safi af 1 lime salt og pipar Aðferð: Sjóðið byggið í grænmetissoði þangað til vatnið hefur gufað upp eða ca 20 mínútur og kælið. Skerið grænmetið í teninga og blandið saman. Síðan limebörk og -safa, smávegis salt og pipar og ferskt kóríander. SESAMSÓSA MEÐ TÚNFISKINUM: 3 msk sojasósa 1 msk hunang 1 tsk dijonsinep 1 msk balsamedik 100 ml olía 1 msk sesamolia 1 msk sesamfræ Aðferð: Öllu nema olíu blandað saman í mat- vinnsluvél. Olían sett út í lokin í mjórri bunu. 700 g túnfiskur, 1,5-2 cm þykkar steikur. Penslið þær, saltið og piprið. Þær eru síðan grill- aðar í 2 mín. á hvorri hlið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.