Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Blaðsíða 39
2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
H
jörtu sjómannsdætra slá á réttum stöð-
um fyrstu helgina í júní. Sjómannadagurinn er jafnheil-
agur og 17. júní og þá fara sjómanns-
dætur í bæinn í vönduðum
háhæluðum skóm, með lekkera slöngulokka í
hárinu, leðurhanska og rauðan varalit …
Sjómannsdætur anda ekki að sér helíumi
þennan dag og ekki klína þær kandíflosi í hár-
ið á sér. Nei, sjómannsdætur eru vandaðar.
Þær haga sér eftir bókinni og smeygja sér í
fínustu fötin. Og af því þær eru svo vand-
aðar gæta þær þess vel að mæta til leiks
vel undirbúnar. Vikuna fyrir Sjó-
mannadaginn fara þær í háttinn tveimur
tímum fyrir miðnætti,
njóta þess að hreyfa sig
daglega (þó ekki of
harkalega), sofa með
djúpnæringu í hárinu og
bera laxerolíu á andlitið
því hún dregur úr bólg-
um og ýkir innri og ytri
fegurð. Þær allra hörð-
ustu taka olíuna inn en
passa sig á því að segja
ekki nokkrum lifandi
manni frá því (því það er
pínu sjoppulegt).
Fataskápar sjó-
mannsdætranna eru
fullir af gersemum
líkt og gullkistan
sem umlykur
Ísland. Þar
er að finna
aragrúa af
vönduðum
dökkbláum
fötum og ef
þær hafa val taka þær
gulltölur alltaf framyfir hefðbundnar. Þær
kjósa röndótt framyfir doppótt og eiga flest-
allar beigelitaða rykfrakka sem þær nota
óspart.
Sjómannsdætur eru aldar upp við það að
þeir fiski sem róa. Þennan góða frasa er
hægt að heimfæra upp á nánast hvað
sem er í tilverunni. Þess vegna er gott að
minna sig á að gera ekkert á morgun sem
hægt er að framkvæma í dag. Með þetta
að vopni verður lífið svo miklu litríkara og
ennþá skemmtilegra. Til hamingju með dag-
inn, pabbi!
martamaria@mbl.is
Þeir fiska sem róa
Röndótt
dragt frá
Zöru.
Dökkblár blaser-jakki með
gulltölum er eitthvað sem allar
sjómannsdætur verða að eiga.
Röndótt peysa
frá GK.
Hvern ætlar þú að
gleðja í dag
Allt
á einum stað!
Lágmarks
biðtími www.bilaattan.is
Bílaverkstæði
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Varahlutir