Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Qupperneq 60
L
angt er síðan Neymar da
Silva Santos Júnior var á
allra vörum og er þó enn
aðeins 21 árs. Þegar
efnilegir knatt-
spyrnumenn koma fram á sjón-
arsviðið í Suður-Ameríku fer það
yfirleitt ekki leynt og sjaldnast
líður á löngu þar til fréttir
berast af boðum og yfirboð-
um ríkustu félaga Evrópu.
Þar eru bestu deildirnar
og mest hægt að bera
úr býtum.
Neymar hlaut
knattspyrnulegt
uppeldi hjá Santos,
félaginu sem goð-
sögnin Pele lék með
á sínum tíma, og ein-
staka sinnum eru þeir
nefndir í sömu andrá
og jafnvel bornir sam-
an. Allir efnilegustu leikmenn landsins hafa reyndar þurft að
þola það síðustu áratugi án þess að vitræn niðurstaða fáist.
Neymar hefur verið hjá Santos frá 10 ára aldri og tímabært
að söðla um. Barcelona og Real Madrid hafa leynt og ljóst slegist
um drenginn misserum saman, talsmenn beggja voru vongóðir
en nú segir Neymar það ætíð hafa verið draum sinn að leika fyr-
ir Barca; tækifæri til að spila með besta leikmanni heims, Arg-
entínumanninum Lionel Messi, og spænsku snillingunum Xavi og
Iniesta sé ekki hægt að láta sér úr greipum ganga. Sagan segir
að Florentino Perez, forseti Real, hafi fyrir löngu áttað sig á að
hann nældi ekki í þennan feita bita, en samt haldið áfram barátt-
unni til að hækka verðið og gera Barca óleik með þeim hætti.
Enginn veit hvort sannleikskorn er í því.
Neymar getur leikið fremstur á vellinum eða rétt fyrir aftan
miðherjann en margir telja hann hættulegastan sem vinstri kant-
mann. Hann er mjög fljótur og leikinn og á auðvelt með að herja
á varnir andstæðinganna af vængnum og bæði skorar mörg
mörk og leggur upp fyrir aðra. Haft hefur verið á orði að Barca
verði ekki árennilegur mótherji þegar Neymar bætist í flokk
þeirra miklu snillinga sem fyrir eru, en ekki eru allir sann-
færðir. Hollendingurinn Johan Cruyff, einn besti leikmaður í
sögu Barcelona og síðar sigursæll þjálfari þar á bæ, er
nokkuð efins. „Við skulum bíða og sjá,“ sagði Cruyff.
„Eitt er að kaupa góða leikmenn, annað að byggja upp
góða liðsheild.“ Haft var eftir Cruyff í vikunni að
ekki væri skynsamlegt að hafa tvo skipstjóra á sama
fleyinu og átti þar augljóslega við Messi og Neymar.
Hafa ber í huga að köldu hefur andað á milli Cru-
yff og núverandi forseta Barcelona, Sandro Rosell.
Hollendingurinn vann náið með Joan Laporta meðan
sá gegndi forsetembætti Barca og var gerður að heið-
ursforseta í mars 2010. Eftir að Rosell var kjörinn í embætti
nokkrum vikum síðar var Cruyff heiðursforseti ei meir. Rosell
var sagður hafa svipt hann titlinum en einnig hermt að Cruyff
hefði afsalað sér nafnbótinni.
Hvað sem öðru líður verður spennandi að sjá hvernig Neym-
ar vegnar. Hann gerði 54 mörk í 103 leikjum með Santos og
hefur skorað 20 sinnum í 32 leikjum með landsliði Brasilíu.
Enn einn
gæða-Brassi
til Barca
FÉLAGASKIPTI VIKUNNAR Í BOLTAHEIMUM
VORU ÁN EFA KAUP BARCELONA Á
BRASILÍSKA UNDRAMANNINUM NEYM-
AR. VISTASKIPTIN HAFA REYNDAR
LEGIÐ Í LOFTINU NOKKUÐ LENGI.
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2.6. 2013
*Til að Messi geti talist besti knattspyrnumaður sögunnar verður hann að minnsta kosti fyrst að verða betri enNeymar. Eins og er hefur Messi bara reynsluna fram yfir hann.
Brasilíumaðurinn Pele, af mörgum talinn besti fótboltamaður
sögunnar, og er einmitt sjálfur á þeirri skoðun.
Boltinn
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Framherjinn Evaristo var fyrsti Brasilíumaðurinn sem
skrýddist búningi Barcelona. Hann lék með félaginu frá
1957 til 1962, tók þátt í öllum 114 leikjunum á því tímabili
og gerði 78 mörk. Það eftirminnilegasta í Evrópuleik gegn
Real Madrid 23. nóvember 1960; sigurmarkið á 82. mín. og
gerði það að verkum að Real féll úr Evrópukeppni meist-
araliða í fyrsta skipti; risinn úr spænsku höfuðborginni hafði
unnið keppnina fyrstu fimm árin. Tveimur árum síðar fóru
forráðamenn Barcelona fram á það við Evaristo að hann
gerðist spænskur ríkisborgari til þess að geta leikið með
landsliðinu en hann neitaði. Yfirgaf félagið í framhaldi af því
– og gekk til liðs við Real Madrid!
Juan de Maceda Filho, Evaristo, með mynd af markinu gegn Real.
Sögulegt mark
Brasilískum framherjum á mála hjá
Barcelona hefur hlotnast margvíslegur
heiður meðan á dvölinni stóð.
Romario (1993-1995) Leikmaður
ársins hjá Alþjóða knattspyrnu-
sambandinu, FIFA, 1994.
Ronaldo (1996-1997) Leikmaður árs-
ins í Evrópu – Ballon d’Or – 1996. Leik-
maður ársins hjá FIFA 1996 og 1997.
Rivaldo (1997-2002) Leikmaður ársins í Evr-
ópu og hjá FIFA 1999.
Ronaldinho (2003-2008) FIFA-leikmaður árs-
ins 2004 og 2005, og leikmaður ársins í Evrópu
2005.
Brasilíski hægri bakvörðurinn sókndjarfi, Dani
Alves, er nú einn lykilmanna í liði Barcelona.
Ronaldinho
Romario Dani Alves
Rivaldo
Bestur? Ronaldo Luís Nazário de Lima
Gulldrengir
AFP