Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Page 61

Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.06.2013, Page 61
Ultimate Greens: Spirulina pakkað af næringaefnum sem gefa mikla orku. Barley Grass kemur á réttu pH gildi og gerir líkamann basískan. Chlorella hreinsar líkamann af auka– og eiturefnum, þungmálmum og geislunum. Bætir líkamslykt. Gott við streitu. www.celsus.is lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar Fáðu heilsuna og orkuna upp! Kraftmesta ofurfæði jarðar Fæst í Apótekum, Hagkaup og Nettó. Í þrautinni táknar hver tala ákveðinn bókstaf og einn eða fleiri gefnir. Allt ís- lenska stafrófið er notað. Þrautin er að finna hvaða tala stendur fyrir hvaða bókstaf og færa í viðeigandi hólf fyrir neðan gátuna. Hægt er að nota staf- rófið fyrir ofan gátuna til að krossa út fundna stafi. Lausnin sem birtist í dag er við gátunni frá 19. maí því vegna mistaka birt- ist lausn síðustu gátu í sama blaði. LYKILORÐAGÁTA 2.6. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 61 Leikmenn skipta um lið í röðumeins og venjulega á þessumárstíma, en óvenjumargir snjallir þjálfarar hefja einnig störf hjá nýjum vinnuveitanda fyrir næsta keppnistímabil í evrópska fótbolt- anum. Dágóður hópur stjörnuþjálfara er meira að segja á faraldsfæti að þessu sinni; mun fleiri en í venjulegu árferði. Áhugavert er að nýir menn verða í brúnni hjá nýbökuðum Evrópu- meisturum, Englandsmeisturum, ensku bikarmeisturunum, Evr- ópumeisturunum frá því í fyrra og Englandsmeisturum fyrra árs, hjá risaliðinu Real Madrid og líklega því nýríka París St. Germain. Sögusagnir um það hvers konar þjálf- arakapall yrði lagður í sumar fóru af stað strax í ársbyrjun þegar þau stórtíðindi spurðust út að meist- ari Pep Guardiola – maðurinn á bak við undraverðan árangur Barcelona síðustu ár – hefði ráðið sig til Bayern München frá og með sumrinu. Guardiola hætti með Barcelona fyrir síðasta tímabil og kvaðst myndu taka sér ársfrí. Flutti til New York til að skipta um umhverfi og hlaða batteríin. Mörg stórlið voru sögð sýna Guardiola áhuga; Manchester City, Chelsea, AC Milan og Bayern. Enskir miðlar fóru hamförum í umfjöll- un um hvort enska liðið nældi í hann, en mörgum á óvart tilkynnti Pep að hann hefði gengið að tilboði þýska risans. Og skyldi í raun engan undra því þar er stöðugleiki betur tryggður en hjá stóru ensku liðunum og þeir sem ekki fylgdust með gangi mála í Þýskalandi áttuðu sig a.m.k. þegar úrslitaleikur Meistaradeilarinnar fór fram á Wembley á dögunum; sú rimma Bayern og Dortmund var stórkostleg og besta hugsanlega auglýsing sem þýska knattspyrnan gat fengið. Sannarlega spennandi verkefni framundan hjá þjálfaranum en e.t.v. snúnara en gert var ráð fyr- ir. Eftir að tilkynnt var um þjálf- araskiptin lék Bayern nefnilega bet- ur en nokkru sinni, varð þýskur meistari með áður óþekktum yfir- burðum og síðan Evrópumeistari. Í dag, laugardag, getur liðið bætt þriðja titlinum í safnið þegar það leikur til úrslita um þýska bikarinn við VfB Stuttgart. Samningur Jupp Heynckes, hins magnaða 68 ára þjálfara Bayern, rennur út í sumarbyrjun og gert var ráð fyrir að hann settist í helgan stein. Hafði talað í þá veru sjálfur, en þegar leið á vorið kom annað hljóð í strokkinn. Nú er hann sterklega orðaður við Real Ma- drid og berist boð þaðan getur hann varla neitað. Heync- kes þjálfaði Real vet- urinn 1997-1998 og undir hans stjórn lauk 32 ára bið eftir Evrópumeistaratitl- inum. Félagið varð hins vegar aðeins í fjórða sæti í spænsku deildinni, 11 stigum á eftir Barcelona, og Heynckes var því látinn fara… Chile-búinn Manuel Pallegrini, sem nú er á leið til Manchester City, stjórnaði líka Real Madrid einn vetur. Liðið fékk þá 96 stig í spænsku deildinni, fleiri en nokkru sinni í sögu félagsins, en Barcelona fékk 99 og varð meistari. Pellegrini var því látinn taka pokann sinn. Fróðlegt verður að sjá hvort verk- fræðingurinn Pellegrini fær tíma til að hanna og byggja upp sigurlið hjá City. Þjálfaraveröldin er sérstök. Manuel Pellegrini hætti hjá Malaga og tekur við liði Man- chester City. AFP ÓVENJULANGUR ÞJÁLFARAKAPALL  Jupp Heynckes hættir hjá Evrópumeisturum Bayern München.  Pep Guardiola tekur við eftir árs frí frá þjálfun.  Alex Ferguson hættir hjá Englandsmeisturum Man- chester United.  David Moyes kemur í staðinn frá Everton.  Roberto Martinez fer lík- lega til Everton frá bik- armeisturum Wigan.  Rafa Benitez fer frá Evr- ópudeildarmeisturum Chelsea. Tekur við Napólí í stað Walters Mazzarri sem fer til Inter.  Jose Mourinho hættir hjá Real Madrid og fer aftur til Chelsea.  Real vill Carlo Ancelotti en PSG sleppir honum ekki.  Roberto Mancini rekinn frá Man. City, Englands- meisturum 2012.  Manuel Pellegrini frá Malaga til City.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.