Morgunblaðið - 12.07.2013, Síða 1

Morgunblaðið - 12.07.2013, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 1 2. J Ú L Í 2 0 1 3  Stofnað 1913  161. tölublað  101. árgangur  HEILBRIGT LUNGA DAFNAR VEL SÆKIR INNBLÁSTUR Í DYLAN FJÖLBREYTT VERK RÍSA UPP ÚR RAFINU UMMI GUÐJÓNSSON 38 RAFTÓNLIST 39 Skúli Hansen skulih@mbl.is Það liggur alveg ljóst fyrir að hlutverk hagræðing- arhóps, sem leggja á til aðgerðir til að hagræða, for- gangsraða og auka skilvirkni í rekstri ríkisstofnana, verður ekki að skera flatt niður. Þá verður að skera meira niður og hagræða á ákveðnum sviðum til að verja velferðarkerfið. Þetta segir Ásmundur Ein- arsson, þingmaður Framsóknarflokksins og for- maður hagræðingarhópsins. Að sögn Ásmundar Að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og varaformanns fjárlaga- nefndar Alþingis, er flatur niðurskurður sem meg- inregla versta leiðin sem hægt er að fara í heilbrigð- iskerfinu og sömuleiðis besta leiðin til að skerða þjónustuna. „Við eigum að forgangsraða í ríkisfjár- málunum og sömuleiðis eigum við ekki að fara í nýj- ar húsbyggingar, verkefni eða annað slíkt, nema það kalli fram sparnað í viðkomandi málaflokkum.“ MHægt að auka framleiðni »6 fundaði hópurinn í fyrsta skipti í fyrradag. „Það er búið að skera flatt niður núna á undanförnum árum í hagræðingarskyni og við höfum séð hvernig það hefur meðal annars farið með velferðarkerfið,“ seg- ir Ásmundur sem leggur áherslu á að hópurinn muni fara ofan í ákveðin verkefni og skoða hvort þau séu nauðsynleg, brýn og svo framvegis. Þá bendir hann á að allir þær stóru spurningar og vangaveltur sem Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra kastaði fram í pistli sínum í Morgunblaðinu í gær liggi undir í starfi hagræðingarhópsins. Hafna flötum niðurskurði  Formaður hagræðingarhóps segir að skera verði meira niður til að verja velferðarkerfið  Guðlaugur Þór segir flatan niðurskurð verstu leiðina Íslenska landsliðið gerði jafntefli við norska landsliðið, 1:1, í fyrsta leik sínum í lokakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu í Kalmar í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði mark Íslands úr vítaspyrnu á 86. mínútu og jafnaði metin eftir að brotið hafði verið á Söru Björk Gunnarsdóttur, innan vítateigs. Sara Björk er á fullri ferð á mynd- inni hér að ofan. Næst leikur íslenska liðið við það þýska síðdegis á sunnudag. » Íþróttir Ljósmynd/Guðmundur Svansson Margrét Lára jafnaði metin í Kalmar Íslenska landsliðið fékk sitt fyrsta stig í lokakeppni Evrópumóts  Komið er að endurnýjun sorp- bíla í borginni. Umhverfis- og skipulagsráð hef- ur samþykkt til- lögu umhverfis- og skipulagssviðs um að kaupa svo- kallaða tvískipta sorpbíla. „Nú erum við farin í aukna hirðu á flokkuðu sorpi og teljum hagkvæmara að hafa bílana tvískipta,“ segir Guðmundur B. Friðriksson, skrifstofustjóri skrif- stofu umhverfisgæða. Pappír verður hirtur í annað hólfið og blandað sorp í hitt, en hingað til hefur sorphirða farið fram á tveimur mismunandi bílum. Hann segir pappírsflokkun hafa gengið vel síðan Reykjavík- urborg fór í átakið „Pappír er ekki rusl“. „Það er komið það mikið af pappírstunnum að mér þykir líklegt að þriðjungur hólfsins verði fyrir pappír en tveir þriðju fyrir blandaða sorpið.“ Auka flokkun sorps í tvískipta sorpbíla LISTAHÁTÍÐ Á SEYÐISFIRÐI 10 Umfangsmikil leit var gerð að tveimur mönnum í Árnessýslu í gær í tengslum við lögreglurann- sókn í Reykjavík, meðal annars vegna líkams- árásarmáls. Í tilkynningu sem lögregla sendi frá sér seint í gærkvöldi kom fram að mannanna hafði verið leitað í nokkurn tíma en talið var að þeir héldu til í nágrenni Vaðness í Grímsnesi. Í tilkynningunni segir að tveir menn hafi verið handteknir við Laugarvatn og að þeir gisti nú fangageymslur. Þeir verði yfirheyrðir í dag. Fjöldi lögreglumanna leitaði mannanna í gær auk þess sem þyrla Landhelgisgæslunnar tók þátt í leitinni. Að sögn sjónarvotta voru þrír lög- reglubílar og sjúkrabíll, auk þyrlu Gæslunnar, við Laugarvatn í gær. Þar hafi lögreglumenn stöðvað bíla sem áttu leið þar um og leitað í þeim hátt og lágt. Þá herma heimildir að bílar hafi verið stöðv- aðir við Kerið þar sem mannanna var leitað um tíma. Lögregla leitaði hátt og lágt í bílum  Manna leitað í Árnessýslu vegna lögreglurann- sóknar  Þyrla Gæslunnar aðstoðaði við leitina Leit Landhelgisgæslan aðstoðaði við leitina og var þyrla hennar við Laugarvatn í gær.  Peter Altmeier, umhverfisráð- herra Þýskalands, hefur sent yfir- völdum hafna við Norðursjó bréf þar sem hann mælist til þess að þau leyfi „sjálf- viljug“ ekki flutn- ing hvalkjöts. „Þýskar hafnir ættu ekki að vera ákjósanlegur kostur til umskipunar hvalkjöts,“ sagði í bréfinu, sem Alt- meier sendi á þriðjudag. Flutningur íslensks hvalkjöts var stöðvaður í Hamborg á miðvikudag þar sem kom til mótmæla umhverf- isverndarsamtakanna Greenpeace. Haft var eftir Iris Menn, sérfræð- ingi samtakanna í málefnum hafsins, á vefsíðu blaðsins Die Welt að bréf ráðherrans væri fyrsta skrefið, en hygðist hann axla ábyrgðina til fulls þyrfti hann að beita sér fyrir því að flutningur hvalkjöts um þýskar hafnir yrði bannaður með lögum. Benti hún á að hafnaryfirvöld í Rott- erdam hefðu gengist undir svipuð tilmæli, en samt leyft flutning hval- kjötsins til Hamborgar. » 17 Tilmæli umhverf- isráðherra gegn flutningi hvalkjöts Hægt verður að byggja þrjú ný gisti- og þjónustuhús í Kerling- arfjöllum og stækka nokkur af þeim húsum sem fyrir eru sam- kvæmt tillögu að deiliskipulagi fyr- ir hálendismiðstöð sem skipulags- fulltrúi uppsveita Árnessýslu og Flóahrepps hefur auglýst. Allar 14 þjóðlendur Árnessýslu eru komnar með fasteignanúmer en það er forsenda þess að hægt sé að afmarka lóðir fyrir mannvirki á þeim. Sveitarfélög hafa samþykkt að 29 þjóðlendur verði stofnaðar sem fasteignir. »22 Fleiri byggingar í Kerlingarfjöllum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.