Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 6

Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 6
BAKSVIÐ Skúli Hansen skulih@mbl.is Áætlaður hallarekstur sjúkrahúsa og heilbrigðistofnana á árinu er um 1,1 milljarður króna. Halli frá fyrri árum er um 3,8 milljarðar. Þá nema veikleikar í fjárlögum þessa árs, á borð við t.d. sjúkratryggingar og jafnlaunaátakið, um 3,6 milljörðum. Þetta segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Í Morgun- blaðinu í gær birtist pistill eftir Kristján þar sem hann sagði 8,6 milljarða vanta á þessu ári, að öllu óbreyttu, til að leysa fjárhagsvanda heilbrigðiskerfisins. Að sögn Kristjáns sér hann það fyrir sér að hægt sé að ná fram auk- inni framleiðni í heilbrigðiskerfinu, þ.e. að landsmenn fái meiri þjónustu fyrir sama fé. „Það þarf tíma til að gera slíkar breytingar og ef við eig- um hinsvegar að hagræða um stórar og miklar fjárhæðir þá er alveg hægt að hugsa sér að það sé gert en það þýðir þá líka að við erum þá ekki að horfa upp á sömu þjónustu á næsta ári innan íslenska heilbrigð- iskerfisins eins og við erum að horfa upp á í dag,“ segir Kristján. Þá leggur hann áherslu á að ekki verði skorið meira niður með flötum niðurskurði heldur verði forgangs- raðað á hinum mismunandi sviðum. „Það er alveg hægt að kroppa í heil- brigðisþjónustuna alla en þar er um að ræða hundrað milljarða rekstur og stærstu atriðin í þeim rekstri er Landspítalinn og sjúkratryggingar, eitthvað um 70 milljarða útgjöld og þá eru þrjátíu milljarðar eftir,“ seg- ir Kristján. Ekki má ganga lengra „Ég get tekið undir það með Kristjáni Þór að ekki megi ganga lengra í niðurskurði í heilbrigðis- kerfinu. Ríkisstjórn Jóhönnu Sig- urðardóttur var byrjuð að gefa til baka fyrri aðhaldsaðgerðir með auknum framlögum til tækjakaupa, sem og til S-merktu lyfjanna og til jafnlaunaátaks,“ segir Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylk- ingarinnar og 2. varaformaður fjár- laganefndar Alþingis. Hún segist ekki vita nákvæmlega hvað Kristján Þór eigi við með þeim orðum sínum að 8,6 milljarða vanti inn í kerfið. „Rekstur heilbrigðis- stofnanna hefur verið aðlagaður því rekstrarumhverfi sem stofnanirnar hafa því miður þurft að búa við eftir efnahagshrunið og starfsfólk og stjórnendur unnið þrekvirki við að halda uppi góðri þjónustu við þær aðstæður,“ segir Oddný sem bendir á að sá uppsafnaði halli sem Krist- ján Þór nefnir sé halli sem heil- brigðiskerfið hafi komið með úr góðærinu inn í hrunið. „Það gerði aðhaldsaðgerðir á síðasta kjörtíma- bili enn erfiðari en ef heilbrigðis- kerfið hefði notið forgangs þegar peningar voru fyrir hendi til upp- byggingar,“ segir Oddný og gagn- rýnir jafnframt ummæli Kristjáns um Hús íslenskra fræða og fangels- ið á Hólmsheiði. „Hann nefnir Hús íslenskra fræða og fangelsi sem eru fjárfestingar sem ráðast átti í bæði vegna vanda í fangelsismálum en einnig til að auka opinbera fjárfest- ingu og skapa atvinnu. Ætlar rík- isstjórnin að hætta við þær fjárfest- ingar?“ segir Oddný. „Hálf hjákátlegt hjá ráðherra“ Að sögn Bjarkeyjar Olsen Gunn- arsdóttur, þingmanns Vinstri- grænna og fulltrúa í fjárlaganefnd, töluðu flestir flokkar um í kosninga- baráttunni að efla þyrfti heilbrigð- isþjónustuna og að það yrði eitt helsta forgangsmál næstu ríkis- stjórnar. „Því er það hálf hjákátlegt hjá heilbrigðisráðherra Sjálfstæðis- flokksins að tala um forgangsröðun og sátt í þessum málaflokki þegar hans eigin flokkur skilaði Landspít- alanum nánast gjaldþrota til þjóð- arinnar haustið 2008 sem átti ekki fyrir launum og lyfjum. Á sama tíma og Sjálfstæðisflokkurinn lagði á það ofuráherslu á sumarþinginu að minnka tekjur ríkissjóðs um marga milljarða í formi lækkunar á veiði- gjöldum og skatti á gistiþjónustu,“ segir Bjarkey. Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Í pistli sínum í Morgunblaðinu í gær sagði Kristján Þór að 8,6 milljarða vantaði upp á til að leysa fjárhagsvanda heilbrigðiskerfisins. Hægt að auka framleiðni  Heilbrigðisráðherra leggur áherslu á að ekki verði skorið meira niður með flötum niðurskurði  Stjórnarandstöðuþingmenn furða sig á pistli ráðherrans 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? GÓÐAR GRÆJUR Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Akureyri Vestmannaeyjum 1400W, 360 lítr./klst. Þolir 50°C heitt vatn 5 metra barki, sápubox Black&Decker háþrýstidæla max bar 110 14.990,- 1700W, 370 lítr./klst. Þolir 50°C heitt vatn 5,5 metra barki, sápubox háþrýstidæla max bar 130 28.990,- 2100W, 420 lítr./klst. Þolir 50°C heitt vatn, 8 metra málmbarki, sápubox, með bursta Black&Decker háþrýstidæla max bar 150 51.990,- Black&Decker Arges HKV-100GS30 1000W, 30 lítrar 27.900,- Menntaskóli Borgarfjarðar fór ótroðnar slóðir fyrir sex árum síðan þegar skól- inn var stofnaður og bauð strax upp á þriggja ára nám til stúdentsprófs og hefur nú út- skrifað yfir 100 nemendur eftir þriggja ára nám. Skólinn er einka- hlutafélag. „Þetta var mikil nýjung þá en hef- ur gengið afskaplega vel,“ segir Kol- finna Jóhannesdóttir skólameistari. „Skólaárið hjá okkur er lengra, en við kennum út prófatímann svo nem- endur eru í kennslu alveg fram í byrjun júní og fá í staðinn fleiri ein- ingar á hverju skólaári.“ Í skólanum er lögð rík áhersla á símat og leiðsagnarmat, ásamt jafn- ara álagi yfir allt skólaárið. „Ég gerði viðhorfskönnun meðal útskrifaðra nemenda og þau telja sig mjög vel undirbúin undir háskóla- nám. Við erum færa okkur nær því sem gerist erlendis með því að hafa styttra nám til stúdentsprófs,“ segir Kolfinna, en nemendur hafa þann möguleika að fara hægar í náminu ef þörf þykir. „Nemendum úr skólanum hefur gengið afskaplega vel í há- skólanámi.“ aslaug@mbl.is Vel undir- búin undir háskólanám  Þriggja ára nám í boði frá stofnun Kolfinna Jóhannesdóttir Veltan af greiðslukortum erlendra ferðamanna á fyrstu fimm mánuðum ársins var 26.451 milljón, borið sam- an við 20.304 milljónir 2012. Jafn- gildir það 30,3% aukningu milli ára. Til samanburðar var veltan af inn- lendum greiðslukortum 28.656 millj- ónir erlendis á tímabilinu frá janúar til maí en 27.537 milljónir í fyrra. Nemur aukningin um 4% sem er svipað og þróun verðbólgunnar á tímabilinu. Loks jókst veltan af inn- lendum debetkortum innanlands á sama tímabili úr 99.501 milljón í 102.945 milljónir, eða um 3,46%. Ferðamenn eyddu 30% meira en 2012 Starfsfólk Hafrannsóknastofnunarinnar ásamt sérfræð- ingum frá Hvalrannsóknarsetrinu á Húsavík héldu út á Skjálfandaflóa við Húsavík í gærkvöld til að freista þess að ná húðsýni af svokölluðum „hvalablendingi“ sem hefur verið að svamla í flóanum síðustu daga. „Það er erfitt að vera innan um hvalaskoðunarbátana þegar við tökum húðsýni af dýrinu og það á að lægja með kvöldinu,“ segir Gísli Víkingsson, hvalasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun. Starfsfólkið ætlaði að skjóta litlum skutli með lásboga í dýrið til að ná í húðsýni. Út frá sýninu verður væntanlega hægt að greina erfðamengi og kyn dýrsins. Gísli reiknaði með því að starfsfólkið verði að þessu eitthvað fram á nótt- ina og hann staðfesti að dýrið væri ennþá á svæðinu í gær. „Við ætlum að nýta okkur veðurgluggann í nótt og reyna að hafa hraðar hendur því slík dýr staldra oft stutt við. Það er ekki erfitt að athafna sig að næturlagi þar sem íslenskar sumarnætur eru bjartar,“ segir Gísli. Hvalurinn hefur vakið athygli gesta og fræðimanna á svæðinu fyrir sérkennilegt útlit sitt, en dýrið er með ugga langreyðar og litarhaft steypireyðar. Sérfræðingar telja hugsanlegt að dýrið sé blendingur þessara tveggja stærstu dýra jarðar, en slík dýr eru afar sjaldgæf í nátt- úrunni. Ísak Aðalsteinsson, vaktstjóri hjá hvalaskoðunarfyrir- tækinu Norðursiglingu, segir dýrið vera skemmtilega við- bót við þá miklu flóru hvala sem er til staðar í flóanum. „Margir hoppa upp af kæti þegar þeir sjá þessu stærstu dýr jarðar og sumir eru búnir að ferðast um hálfan hnött- inn til að upplifa þetta,“ segir Ísak. jonheidar@mbl.is Sýnataka blendings úr bát á bjartri sumarnótt  Óhagstæð veðurskilyrði og umferð hvalaskoðunarbáta Ljósmyndari/Christian Schmidt Húðsýni Hópurinn vill fá sýni af stærsta dýri jarðar. „Það verður að gera tvennt. Annars vegar að forgangsraða í ríkisfjármálunum og það sem ég tel vera í fremstu röð eru heilbrigðismálin því ef við glutrum þeim niður þá verður gríðarlega dýrt að byggja þau upp aftur. Síðan er hitt að það vantar stefnumótun í mála- flokkinn, menn hafa frestað vandanum og gengið fram, í þessu eins og annars staðar, fyrst og fremst með flötum niðurskurði og það er versta leið sem hægt er að fara,“ segir Guðlaugur Þór Þórðar- son, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins og 2. varaformaður fjárlaganefndar. Versta leiðin FLATUR NIÐURSKURÐUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.