Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 14

Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 14
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Það kerfi leyfisveitinga sem nú er not- að í sjókvíaeldi er ekki nothæft, að mati Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegsráðherra, sem vill finna lausn svo að atvinnugreinin geti vaxið áfram. Hann skoðar að uppbyggingin fari í gegnum skipulagsferli til fram- tíðar en jafnframt mun hann skipa starfshóp til að koma með tillögur að breytingum á núverandi leyfisveit- ingakerfi svo það virki betur þar til nýtt fyrirkomulag kemst á. Fulltrúar Landssambands fiskeld- isstöðva fóru á fund Sigurðar Inga Jó- hannssonar í atvinnuvegaráðuneyt- inu í gær. Guðbergur Rúnarsson framkvæmdastjóri segir að tilgang- urinn hafi verið að gera ráðherra grein fyrir möguleikum fiskeldis og þeim vandamálum sem núverandi leyfisveitingaferli skapi fyrirtækjun- um við uppbygginguna. Tvö mál eru einkum í umræðunni í þessu sambandi. Það er krafa um um- hverfismat fyrir uppbyggingu sjó- kvíaeldis Hraðfrystihússins – Gunn- varar í Ísafjarðardjúpi og stækkun stöðvar Fjarðalax í Fossfirði í Arn- arfirði. Vöxturinn stöðvast Guðbergur segir að uppbyggingin hafi almennt gengið vel. Stöðvar séu komnar vel af stað í sjókvíaeldi og mikil aukning framundan. „Við erum að tala um að framleiðslan geti aukist um 30 þúsund tonn á næstu árum og það skapar útflutningsverðmæti upp á 26-27 milljarða á ári, þegar allt er komið í gang,“ segir Guðbergur. Hann segir að leyfisveitingakerfið stöðvi þessa þróun. Það taki of langan tíma. Til dæmis ætli úrskurðarnefnd sér tvö ár til að kveða upp úrskurði um mál sem þangað er skotið. Upp- byggingin stöðvist í mörg ár. Sigurður Ingi segir að sér hafi lengi verið það ljóst að verulegra úrbóta sé þörf á leyfisveitingakerfi laxeldis. „Þetta er flókið kerfi og tímafrekt. Menn sjá hvorki fyrir sér upphaf né endi þess tíma. Þá geta komið óvænt- ar flækjur. Þetta tefur fyrir vexti en það sem verst er að fyrirkomulagið tryggir ekki heildstætt mat þar sem horft er til allra þátta umhverfis og nýtingar.“ Sigurður fer jafnframt með um- hverfismálin og hann hefur þegar fal- ið umhverfisráðuneytinu og Skipu- lagsstofnun að kortleggja stöðuna og skoða fyrirkomulagið til framtíðar. Sjálfur nefnir hann þann möguleika að fara með laxeldið í skipulagsferli þar sem fyrirfram verði skipulagt hvernig nýta eigi viðkomandi strand- lengju eða fjörð. Slík vinna sem nefnd er strandnýtingaráætlun hefur verið unnin í Arnarfirði en hefur ekki lög- formlegt gildi. Það mun taka tíma að búa til nýtt kerfi og koma því í framkvæmd. Sig- urður Ingi tók vel í tillögu Landssam- bands fiskeldisstöðva um að skipa starfshóp til að leysa úr þeim málum sem standa þeim fyrir þrifum í núver- andi kerfi. Guðbergur segir mikil- vægt að hópurinn skili niðurstöðum í haust. „Við erum búnir að missa af árinu 2014 en ef við ætlum að ná árinu 2015 þarf að skipuleggja hrognatöku í haust,“ segir Guðbergur. Hann telur óþarfi að fara í um- hverfismat þegar óskað er eftir stækkun sjókvíaeldis í 7 þúsund tonn eins og í Ísafjarðardjúpi eða 10 þús- und tonn hjá tveimur fyrirtækjum í Arnarfirði. Nefnir hann sem dæmi að norskir sérfræðingar á þessu sviði telji að Arnarfjörður beri 20 þúsund tonna framleiðslu. „Hvernig getur þá 10 þúsund tonna eldi verið skaðlegt, með þeim fyrirvörum sem við höfum verið að gera,“ segir Guðbergur og nefnir að hægt sé að fylgjast með lax- eldinu eftir að það er hafið og áhrif þess á umhverfið og grípa til nauðsyn- legra ráðstafana. Vill breyta leyfisveit- ingakerfi laxeldis  Sigurður Ingi Jóhannsson vill finna lausn svo laxeldið geti haldið áfram að vaxa  Hugmynd um strandnýtingaráætlun Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Slátrun Uppsveifla hefur verið á Vestfjörðum vegna uppbyggingar laxeldis Fjarðalax. Fyrirtækið fær ekki að vaxa eins og stjórnendur þess vilja. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 DÚKA KRINGLUNNI SÍMI: 533 1322 SMÁRALIND SÍMI: 564 2011 DUKA.IS Litríkar, hagnýtar, fíngerðar, óbrjótandi, fallegar, spennandi, endingargóðar, mjúkar, skemmtilegar... Alls konar gjafir á óskalistann ykkar. Kláraðu listann Brúðhjón sem gera óskalista fá 10% afslátt af öllum vörum hjá okkur í 6 mánuði eftir brúðkaupið. Viðhaldsfríar hurðir Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Viðhaldsfríir sólskálar og svalalokanir Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 29 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Garðbæingar eru nú orðnir fleiri en 14 þúsund. Talan náðist 13. júní sl. þegar lítill drengur sem býr á Álftanesi kom í heiminn. Dreng- urinn, sem skírður var Axel Hugi, er sonur hjónanna Höddu Hrundar Guðmundsdóttur og Þórðar Guð- steins Péturssonar. Hann á eldri bróður sem heitir Óðinn Sturla. Gunnar Einarsson bæjarstjóri og Áslaug Hulda Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar heimsóttu fjölskyld- una og færðu þeim góðar gjafir. Aðeins eru rúm tvö ár síðan fæð- ingu 11. þúsundasta Garðbæingsins var fagnað. Garðabær og Álftanes sameinuðust á árinu sem skýrir þessa hröðu fjölgun. Á myndinni eru frá vinstri: Gunn- ar Einarsson, Hadda Hrund Guð- mundsdóttir, Óðinn Sturla Þórð- arson, Þórður Guðsteinn Pétursson með Axel Huga í fanginu og Áslaug Hulda Jónsdóttir. Garðbæingar orðnir 14 þúsund talsins Björn Bjarndal Jónsson, skógar- verkfræðingur og framkvæmda- stjóri Suður- landsskóga, tók nýlega við sem umdæmisstjóri Rótarýumdæm- isins á Íslandi. Björn Bjarndal er félagi í Rót- arýklúbbi Selfoss frá 1997 og er kvæntur Jóhönnu Róbertsdóttur, verkefnisstjóra hjá Rauða kross- inum. Á Íslandi eru starfandi 30 rótarý- klúbbar og eru félagar um 1200 talsins. „Starfið er gróskumikið en klúbbfundir eru vikulega,“ segir í tilkynningu. Nýr umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi Björn Bjarndal Jónsson Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur vill- benda hesthúsaeigendum í Reykja- vík á að samkvæmt samþykkt um hesthús og hesthúsahverfi skal tæma taðþrær reglulega og áður en þær fyllast. Þrærnar skulu ávallt tæmdar þegar hross eru komin í haga, þó eigi síðar en 1. júlí ár hvert. Heilbrigðiseftirlitið hvetur því þá hesthúsaeigendur sem ekki hafa tæmt sínar þrær að gera það nú þegar. Leitast skal við að nýta hrossatað til jarðræktar eða ann- arra sambærilegra nota. Taðþrær tæmdar STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.