Morgunblaðið - 12.07.2013, Qupperneq 15
SVIÐSLJÓS
Áslaug Arna Sigurbjörnsd.
aslaug@mbl.is
Það er ekkert lát á hátíðum um allt
land og munu margir gera sér glað-
an dag um helgina þó að það sé víða
rigning í kortunum.
Gert er ráð fyrir fjölda manns á
Neskaupstað þar sem haldin verður
hin árlega rokktónlistarhátíð
Eistnaflug.
„Hér verður gott veður og gríðar-
legt partí alla helgina,“ segir Stefán
Magnússon framkvæmdastjóri
Eistnaflugs og segist hann búast við
hátt í 1.500 manns á hátíðina, en hún
er nú haldin í níunda skiptið.
„Hátíðin hófst á miðvikudag, þá
voru krakkatónleikar þar sem var
fullt hús og plötusnúðurinn Töfri
tryllti lýðinn,“ segir Stefán en að
auki komu fram Skálmöld, Dimma
og Sólstafir. Hátíðin stendur yfir til
sunnudagsmorguns.
„Hljómsveit frá Portland sem
heitir Red Fang er kannski stærsta
númerið á hátíðinni,“ segir Stefán og
bætir við að um 35 hljómsveitir komi
fram á hátíðinni. „Við verðum í sól-
baði og hlustum á góða tónlist alla
helgina.“
Tónlist á allri eyjunni
Í Hrísey verður einnig mikið um
tónlist, en þar verður haldin Hrís-
eyjarhátíð um helgina þar sem
áhersla er lögð á trúbadora og alla
tónlist. „Markmiðið er að gestir
heyri tónlist hvar sem þeir eru á eyj-
unni. Það er t.d. lúðrasveit um borð í
ferjunni, fiðluleikur á höfninni og
plötusnúður í sundlauginni auk
trúbadora sem skemmta hér og þar
um bæinn,“ segir Jón Gunnar Th.
framkvæmdastjóri hátíðarinnar.
Hátíðin hefur verið haldin í 19 ár og
mun m.a. KK og Eyþór Ingi
skemmta gestum.
„Það er búist við mörgum og fólk
er farið að streyma í eyjuna með
tjöld og tjaldvagna,“ segir Jón
Gunnar.
Rokk og sól á Neskaupstað
„Markmiðið er að gestir heyri tónlist hvar sem þeir eru á eyjunni,“ segir
framkvæmdastjóri Hríseyjarhátíðar Vætusöm helgi framundan víða um land
Neskaupstaður Margir eru mættir á Eistnaflug og margir krakkar kældu sig í sjónum við upphaf hátíðarinnar.
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
Komið og upplifið nýja Natuzzi gallerýið okkar
100% made in Italy
www.natuzzi.com
Við bjóðum velkomna ítalska hönnun
Natuzzi endurspeglar fullkominn samhljóm og kjarna Ítalskrar hönnunar.
Það er æðislegt að upplifa hlýja og kósý stemningu í Natuzzi umhverfi.
Staður þar sem fólki líður vel.
Auk Hríseyjarhátíðar og Eistna-
flugs á Neskaupstað verður
haldin hátíð á Stokkseyri, það
er Bryggjuhátíðin „brú til brott-
fluttra“ þar sem verður fjöl-
breytt fjölskyldudagskrá og
m.a. varðeldur og brekku-
söngur.
Í Stöðvafirði verður haldin
Pólar Festival sem er lista- og
menningarhátíð. Hátíðinni er
ætlað að ná saman fólki úr ólík-
um áttum og margvíslegum
skapandi greinum til þess að
deila reynslu sinni og þekkingu.
Þá er sérstök áhersla lögð á að
vekja athygli á Stöðvarfirði og
þeim möguleikum sem eru þar
fyrir hendi til uppbyggingar og
nýsköpunar.
Þá verður haldin hátíðleg
Sumarhátíð Ungmenna- og
íþróttasambands Austurlands á
Egilsstöðum þar sem keppt
verður í ýmsum íþróttum t.d.
boccia, strandblaki og borð-
tennis. Þá verður bogfimisýning
á hátíðinni.
Fjöldi hátíða
um helgina
FJÖLBREYTT DAGSKRÁ
Rokk Tónlist af öllu tagi um helgina.
„Þetta verður frekar vætusöm helgi og það eru lítil hlýindi í kortunum,“
segir Þorsteinn V. Jónsson veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Veðrið
fer kólnandi á öllu landinu um helgina en besta veðrið verður á Austur-
landi og norðaustan til á landinu.
„Það verður hlýjast og úrkomuminnst á Austurlandi en gæti farið að
rigna seint á laugardag,“ segir Þorsteinn. En ekkert lát virðist vera á úr-
komu þetta sumarið og viðrar ekki vel til útilegu á Suður- og Vesturlandi.
Aðeins góðviðri á Austurlandi
EKKERT LÁT Á ÚRKOMUNNI