Morgunblaðið - 12.07.2013, Síða 16
FRÉTTASKÝRING
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
Málefni Dróma hf. hafa talsvert verið
til umræðu undanfarin misseri og
þannig meðal annars bæði verið til
umfjöllunar í fjölmiðlum og á Alþingi.
Félagið hefur sætt mikilli gagnrýni
vegna starfsemi sinnar og þá ekki síst
af hálfu stjórnmálamanna bæði úr röð-
um núverandi stjórnarliða og þeirra
sem skipuðu fyrri stjórnarmeirihluta.
Meðal þess sem Drómi hefur verið
gagnrýndur fyrir er að ganga harðar
fram gegn lántakendum en aðrar
lánastofnanir hafa gert gagnvart sín-
um viðskiptavinum en félagið heldur
utan um eignir Spron og Frjálsa fjár-
festingarbankans sem eru í slitameð-
ferð og þar með taldar skuldir við-
skiptavina þeirra. Þá hafi Drómi
endurreiknað gengislán mun seinna
en aðrar fjármálastofnanir og enn-
fremur sett fyrirvara við þá endurút-
reikninga.
Röng framsetning í fjölmiðlum
Talsverð umfjöllum skapaðist fyrr á
þessu ári þegar greint var frá því í fjöl-
miðlum að Drómi ætlaði að ganga að
um 160 lántakendum vegna lána í er-
lendri mynt. Dróma var gert að end-
urreikna þau lán ásamt gengistrygg-
ðum lánum samkvæmt lögum nr.
151/2010, svonefndum Árna Páls-lög-
um, en félagið setti hins vegar fyrir-
vara við þá endurútreikninga þar sem
það taldi lánin í erlendri mynt vera
lögleg.
Drómi fór fram á það við fjármála-
ráðuneytið fyrr á þessu ári að ríkið
bætti félaginu þann skaða sem það
hefði orðið fyrir vegna endurútreikn-
inga á lánum í erlendri mynt í kjölfar
Hæstaréttardóma sem staðfestu að
lánin væru lögleg og að Árna Páls-lög-
in hefðu gengið gegn stjórnarskránni
vegna afturvirkni lagaákvæða. Þeirri
skaðabótakröfu hafnaði ráðuneytið
hins vegar í mars síðastliðnum.
Greint var frá því í fjölmiðlum að í
kjölfarið hafi Drómi ákveðið að beina
kröfum sínum að lántakendum sjálf-
um sem fyrr segir, sem ættu fyrir
vikið fljótlega von á kröfu samtals að
upphæð um 1,5 milljörðum króna.
Þessu hefur Drómi hins vegar hafn-
að. Hið rétta sé að lántaki hafi stefnt
félaginu fyrir dómstóla vegna láns í
erlendri mynt. Drómi hafi í vörn sinni
í málinu lagt fram fjárkröfu „í því
skyni að fá efnisdóm um málið. Málið
er nú rekið fyrir dómstólum og fæst
vonandi úr því skorið á næstu mán-
uðum hver réttarstaða lántaka og
lánveitanda er,“ eins og segir á
heimasíðu félagsins. Niðurstaða þess
gæti hins vegar haft áhrif á um 160
lán.
Málefni Dróma voru tekin fyrir í
umræðum á Alþingi 26. júní síðastlið-
inn. Katrín Júlíusdóttir, þingmaður
Samfylkingarinnar og fyrrverandi
fjármálaráðherra, hvatti af því tilefni
Frosta Sigurjónsson, þingmann
Framsóknarflokksins og formann
efnahags- og viðskiptanefndar Al-
þingis, til þess að taka málið upp á
vettvangi nefndarinnar sem síðan var
gert. Í kjölfarið sendi nefndin bréf til
Fjármálaeftirlitsins þar sem spurt
var hvort Drómi færi að lögum nr. 16/
2002 um fjármálafyrirtæki þar sem
meðal annars er kveðið á um eftirlit
stofnunarinnar með því að framganga
fjármálafyrirtækis í slitameðferð sé í
samræmi við það sem almennt tíðkist
hjá fjármálafyrirtækjum.
Hefur frest þar til í dag
Fjármálaeftirlitið hefur sent
Dróma bréf þar sem óskað er eftir
upplýsingum í þessum efnum og
sömuleiðis til annarra fjármálastofn-
ana, en um er að ræða sjálfstæða
rannsókn af hálfu stofnunarinnar.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur Drómi frest þar til í
dag til að svara bréfinu. Fjármálaeft-
irlitið leggur áherslu á að ljúka athug-
un sinni við fyrsta tækifæri að teknu
tilliti til fresta og yfirferðar gagna. Af
hálfu efnahags- og viðskiptanefndar
Alþingis er þess beðið að svör berist
frá Fjármálaeftirlitinu við fyrirspurn
nefndarinnar.
Fjárkrafan sett fram sem vörn
Drómi hefur sett fram fjárkröfu á einn lántakanda vegna endurútreiknings á láni í erlendri mynt sem
vörn í dómsmáli sem lántakandinn höfðaði gegn félaginu Niðurstaða málsins gæti haft áhrif á 160 lán
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skuldamál Drómi er eignarhaldsfélag sem stýrt er af slitastjórn og heldur utan um eignir Spron og Frjálsa fjár-
festingarbankans og þar með talið skuldir viðskiptavina félaganna gagnvart þeim.
Drómi
» Fullyrt var í fjölmiðlum fyrr á
þessu ári að Drómi ætlaði að
krefja 160 lántakendur um
endurgreiðslu samtals upp á
1,5 milljarða króna í kjölfar nið-
urstöðu Hæstaréttar um að
Árna Páls-lögin svonefnd færu
gegn stjórnarskránni.
» Drómi segir hið rétta vera
að lántakandi hafi höfðað
dómsmál gegn félaginu sem
hafi sett fram fjárkröfuna
gagnvart honum sem vörn í
málinu. Niðurstaða málsins
gæti haft áhrif á 160 lán.
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Laugarásvegi 1 • 104 Reykjavík
Sími: 553 1620 • laugaas.is
LAUGA-ÁS
SPECIAL
Steiktur fiskur gratín
m.a. á matseðli
Árin segja sitt
Ekki liggur fyrir hvernig stjórnvöld kunni að beita
sér varðandi málefni Dróma vegna þeirrar gagnrýni
sem komið hefur fram á stafsemi félagsins og
einkum framgöngu þess gagnvart lántakendum.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðis-
málaráðherra, sagði nýverið í samtali við Morg-
unblaðið að brýnt væri að fara yfir forsendur lána-
uppgjara hjá Dróma og öðrum lánveitendum.
Málefni Dróma heyra hins vegar undir fjármála- og
efnahagsráðuneytið en ekki hafa fengist svör það-
an hvort og þá með hvaða hætti stjórnvöld kunni
að beita sér í málinu.
Óljóst hvað stjórnvöld gera
MÁLEFNI EIGNARHALDSFÉLAGSINS DRÓMA
Eygló
Harðardóttir
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Makrílafli það sem af er árinu var
orðinn um 14 þúsund tonn í gær,
samkvæmt upplýsingum frá Fiski-
stofu. Fyrir réttu ári var búið að
veiða um 32 þúsund tonn af makríl.
Halldór Kristinsson, skipstjóri á
Sæhamri SH, byrjaði á makrílveið-
um á þriðjudaginn var og fékk þá tvö
tonn. Í fyrradag var veðrið ekki gott
en í gær var hann kominn með hátt í
tvö tonn þegar rætt var við hann um
þrjúleytið. Hann er með fimm rúllur
og 40 króka á hverri rúllu.
„Það er lítið að sjá hérna við land-
ið,“ sagði Halldór þar sem hann var
að veiðum 2-3 sjómílur undan Hellis-
sandi. Vaðandi makríll hefur sést á
Breiðafirði undanfarið. Þótt hann
vaði þá er það ekki endilega veið-
anlegt magn í byrjun vertíðar, að
sögn Halldórs. Hann sagði að sjórinn
sé kaldari nú en hann var á sama
tíma í fyrra og það skýri líklega
hvers vegna makrílvertíðin fer hæg-
ar af stað en þá.
„Þetta er bara að byrja. Ég held
að það verði ekkert fjör í þessu fyrr
en eftir þann tuttugasta,“ sagði Hall-
dór. Þetta er fjórða sumarið sem
hann stundar krókaveiðar á makríl.
Makríllinn hefur verið vænn að
sögn Halldórs. Honum er landað í
Sjávariðjuna á Rifi þar sem hann er
flakaður og frystur til manneldis.
Fjórir krókabátar voru byrjaðir á
makrílveiðum frá Rifi í gær, einir sex
frá Ólafsvík og fjórir frá Stykkis-
hólmi. Þá var verið að gera fleiri báta
tilbúna til veiða og talsvert komið af
aðkomubátum, að sögn Halldórs.
Makrílvertíðin er
rétt að byrja
Sæhamar SH er einn margra báta
sem veiða makríl á króka
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Makríll Krókabátar eru byrjaðir á
makrílveiðum í Breiðafirði.