Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 28

Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013 ✝ HólmfríðurMagnúsdóttir fæddist á Syðra- Hóli, A-Hún. 1. apr- íl 1918. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð 6. júlí 2013. Foreldrar henn- ar voru: Magnús Björnsson bóndi og fræðimaður á Syðra-Hóli, f. 30.7. 1889, d. 20.7. 1963 og Jóhanna Albertsdóttir hús- freyja á Syðra-Hóli, f. 11.3. 1897, d. 3.3. 1996. Systkini Hólmfríðar: María, f. 1.5. 1919, Björn, f. 26.6. 1921, d. 13.11. 2010, Sveinbjörn Albert (Atli), f. 1.11. 1923, d. 13.11. 1987, Guð- rún Ragnheiður (Gígja), f. 17.5. 1925, d. 2.6. 1938 og Ásdís, f. 7.8. 1931. Hólmfríður giftist Rósberg G. Snædal skáldi og rit- höfundi, 25.5. 1945. Þau skildu 1971. Börn þeirra eru sex: 1) Húnn Snædal, f. 13.7. 1944. Dætur Húns og fyrri konu hans, Sólrúnar Sveinsdóttur, f. 29.8. 1942, eru: a) Þórný Snædal, f. 14.8. 1966. Hún er gift Svavari Sverrissyni og eiga þau fjögur börn. b) Katrín Snædal, f. 18.8. 1971. Maki hennar er Magnús Þór Magnússon, þau eiga tvö dóttir, f. 10.4. 1981, í sambúð með Birki Baldvinssyni. 4) Þór- gunnur Snædal, f. 14.12. 1948. Hún er gift Jöran Westberg. Sonur þeirra er: a) Magnus Olav, f. 7.5. 1985. Hann er giftur Chris Westberg; 5) Magnús Snædal, f. 17.4. 1952. Sonur hans og fyrrum sambýliskonu Auðar Guðjónsdóttur, f. 13.4. 1953, er: a) Kári, f. 10.11. 1978; 6) Bragi Snædal, f. 19.6. 1954. Hólmfríður ólst upp á Syðra- Hóli. Veturinn 1936-37 var hún á Kvennaskólanum á Blönduósi. Hún flutti til Akureyrar 1937. Næstu ár á eftir var hún í vist á veturna og í kaupavinnu á sumrin. Hún fór m.a. sem kaupakona til Flateyjar á Skjálfanda, að Ketilsstöðum á Völlum austur á Héraði og eitt sumar var hún í Lundabrekku í Bárðadal. Þetta var hennar að- ferð til að ferðast og sjá meira af landinu. Hún vann einnig á saumastofu Jórunnar Guð- mundsdóttur sem og á sauma- stofu Gefjunar. Á árunum 1944 til 1958 helgaði hún sig að mestu heimilinu, en fór eftir það að vinna á Heklu á Akureyri, við saumar. Hún vann þar í 30 ár, eða þar til hún fór á eftirlaun 1988. Árið 2006 flutti hún í rað- húsaíbúð við Dvalarheimilið Hlíð á Akureyri. Síðasta vet- urinn sem hún lifði bjó hún inni á Hlíð. Útför Hólmfríðar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 12. júlí 2013, kl. 13.30. börn. Núverandi eiginkona Húns er Guðrún Freysteins- dóttir, f. 12.9. 1952, hún á tvær dætur, Álfheiði og Frey- dísi Helgu Árna- dætur og sjö barna- börn. 2) Hólmsteinn Snædal, f. 2.9. 1945. Kona hans er Olga Loftsdóttir, f. 24.1. 1944. Synir þeirra eru: a) Björn Snædal, f. 16.9. 1965, b) Rósberg Rúnar Snædal, f. 27.6. 1967, c) Ólafur Snædal, f. 29.9. 1979. Kona Ólafs er Jakobína Dögg Ein- arsdóttir, þau eiga saman fjórar dætur. 3) Gígja Snædal, f. 9.7. 1947. Hún var gift Oddi Gunn- arssyni, f. 4.1. 1943, d. 2.12. 2008. Dætur þeirra eru: a) Fríða, f. 7.3. 1972. Hún var gift Indriða Þresti Gunnlaugssyni, þau eiga eina dóttur. b) Rann- veig, f. 15.12. 1973. Hún á þrjú börn með manni sínum Svan- laugi Jónassyni. c) Jóhanna María, f. 8.5. 1976. Hún á fjögur börn með fyrrverandi eig- inmanni sínum, Marteini Þór Magnþórssyni. Núverandi sam- býlismaður hennar er Hafþór Sævarsson. d) Þórgunnur Odds- Þegar sólin er hæst á lofti og næturnar svo bjartar að maður tímir ekki að fara að sofa leggur amma mín af stað í sína hinstu för. Það kemur ekki á óvart að hún kveðji okkur einmitt núna meðan sólin skín og gróðurinn angar, því Fríða amma var sumar og þegar ég hugsa um hana finn ég lykt af blóðbergi, berjalyngi og blómstrandi gömlum reyni- trjám í garðinum í Helgamagra- stræti. Amma var fædd að vori frosta- vetursins mikla árið 1918. Úr baðstofunni á Syðra Hóli, þar sem hún tók sín fyrstu skref, virðist óravegur til nútímans enda átti amma langt ferðlag fyr- ir höndum - 95 ára ævi. Ég var aðeins samferða henni síðasta spölinn. Þá var hún ekki lengur unga stúlkan sem réði sig í kaupavinnu hér og þar á sumrin til þess að sjá sem mest af land- inu. Og ekki var hún enn húsmóð- ir og frumbyggi í Rauðumýri með fullt hús af börnum. Þegar ég kom til sögunnar var hún Fríða amma í Helgamagrastræti sem vann á saumastofunni Heklu og fór í sund flesta morgna sér til heilsubótar. Það var alltaf gaman að heim- sækja ömmu. Mér fannst hún búa á besta stað í bænum, rétt hjá sundlauginni og stóra leikvellin- um. Þaðan var líka örstutt að fara fótgangandi í leiðangra í lysti- garðinn og á minjasafnið. Að minnsta kosti fyrir ömmu sem hafði gaman af að ganga og var kvikari í hreyfingum en flestir og átti ekki til leti. Best var samt að sitja bara heima í rólegheitum, og spjalla um allt milli himins og jarðar. Fríða amma var smávaxin og grönn. En þó hún væri lítil var hún sterk. Hún var ákveðin og sjálfstæð og vildi ekki vera upp á aðra komin. Amma var laus við allan hégóma og yfirborðs- mennsku, hún var góður mann- þekkjari, hrein og bein og auðvit- að svolítið sérvitur eins og allir sem eitthvað er spunnið í. Það var svo ótalmargt í fari hennar sem við afkomendurnir gátum tekið okkur til fyrirmyndar. Hún reyndi þó ekki að innræta okkur sína hætti því amma hafði skiln- ing á því að maður er bara eins og maður er og á ekki að reyna að vera neitt annað. Þegar ég leitaði til hennar í „ég veit ekki hvað ég á að verða þegar ég verð stór- krísunni“, voru ráðleggingarnar ekki flóknar: „Ætli þú verðir ekki bara alltaf þú sjálf, þú þarft bara að finna eitthvað sem þú getur hugsað þér að starfa við.“ Útsýnið var fallegt úr her- berginu á Hlíð þar sem amma dvaldi síðustu mánuðina. Við sát- um þar saman eitt kvöld nú í júní og horfðum á sólina gylla Vaðla- heiðina. Amma hafði reyndar orð á því að henni þættu fjöllin í Eyjafirði alltaf þrengja óþarflega að sér, annað en víðáttan heima á Syðra Hóli. Við vorum hins vegar sammála um að varla væri nokk- uð í veröldinni eins fagurt og ís- lenskt sumarkvöld og amma fór með vísu eftir Þorstein Erlings- son: Ekki er margt sem foldar frið fegur skarta lætur eða hjartað unir við eins og bjartar nætur. Nokkrum dögum síðar hélt Fríða amma af stað út í kyrra sumarnóttina. Hún skilur ekki eftir mikla veraldlega minnis- varða en nóg af því sem meira máli skiptir - góðar og fallegar minningar í hjörtum afkomenda sinna. Góða ferð, elsku amma og þökk fyrir allt. Þórgunnur Oddsdóttir. Amma mín hefur lokið sinni lífsgöngu, ég veit hún var hvíld- inni fegin. Sjálfri finnst mér erfitt að kveðja hana. Hún hefur verið stór hluti af mínu lífi í tæp 47 ár. Frá því ég var 3 mánaða og þar til 5 ára aldri var náð, var ég í pöss- un hjá henni á meðan mamma og pabbi unnu úti. Seinna meir fékk ég líka oft að gista. Þá var dív- aninum úr stofunni komið fyrir við hliðina á rúmi ömmu í borð- stofunni. Saman lágum við svo hlið við hlið og hún sagði mér sög- ur frá sínum uppvexti. Ég hlust- aði af athygli á þegar hún sagði mér frá því er kviknaði í eldhús- inu hjá langömmu, sem tókst sjálfri að slökkva eldinn. Ég man eftir frásögn hennar af því þegar hún og Maja fengu brúður með postulínshausa. Og þegar höfuð annarrar brúðunnar brotnaði. Hún talaði um Blesa, hestinn sinn, um systur sína sem dó af slysförum 13 ára, gróðurreitinn fallega sem langamma kom upp og hve hlýr og góður pabbi henn- ar var. Ég sá þetta allt fyrir mér í svart/hvítu að sjálfsögðu, þetta var jú í gamla daga. Á morgnana vaknaði ég svo við söng hennar úr eldhúsinu, mikið sem það var notalegt. Áður en ég kom til sög- unnar var hún heldur betur búin að standa í ströngu. Hún og afi eignuðust 6 börn á tæpum 10 ár- um. Eins og nærri má geta var aldrei dauð stund. Amma saum- aði og prjónaði allt á börnin, gjarnan upp úr gömlum flíkum. Hún var einstaklega útsjónar- söm, vandvirk, nýtin og hafði reglu á börnunum. Það var ábyggilega ekki auðvelt að vera með stóran barnahóp á þessum árum, þegar skortur var á ýms- um nauðsynjum sem við í dag gætum ekki hugsað okkur lífið án. En amma var nægjusöm og börnin hennar upplifðu engan skort. Þvert á móti áttu þau ham- ingjusama æsku. Amma átti góða að hér í bænum, en það voru föð- ursystkini hennar, Jóhanna, Lár- us (sem Lárusarhús er kennt við), Ólafur og Ragna. Eftir að hún og afi skildu og börnin voru flest farin að heiman, fór hún að ferðast meira. Í mörg ár fór hún í ferðir á vegum Verkalýðsfélags- ins Iðju á Akureyri. Hún fór yf- irleitt ein í þessar ferðir og ef haft var á orði við hana hve dugleg hún væri að drífa sig svona ein, svaraði hún því til að hún væri ekkert ein, hún væri í hópferð. Rúmlega sextug skellti hún sér í ferð til Portoroz í 2 vikur, aftur ein, en í hópferð. Áttræð endur- tók hún leikinn og fór til Lju- bliana í fyrrum Júgóslavíu. Fannst það ekkert tiltökumál. Hún hafði unun af því að ferðast og sjá heiminn. Einnig fannst henni dásamlegt að fljúga. Fór í fyrsta flugtúrinn með pabba mín- um árið 1963 og vildi helst fara fljúgandi allra sinna ferða eftir það. Hún var alla tíð sjálfstæð og vildi ekki vera neinum háð. Það var því erfitt fyrir hana að eldast og þurfa að þiggja aðstoð. En það er þakkarvert hve heilsuhraust hún var mest allt sitt líf. Ég og Svavar, maðurinn minn, kveðjum ömmu með söknuði og fullvissu um að við hittumst aftur síðar. Hann kallaði hana alltaf ömmu og það þótti henni vænt um. Hafi hún hjartans þakkir fyrir hve góð hún var mér og mínum. Pabba- stelpan er komin heim og ég get unnt henni þess. Þórný Snædal Húnsdóttir. Nú hefur langamma fengið hvíldina. Á fyrstu árum okkar var það fastur liður að fara í „grautinn“ til hennar þegar við fórum norð- ur. Á hverjum laugardegi, í mörg ár, eldaði hún heilmikinn grjóna- graut. Heimili hennar í Helga- magrastrætinu varð þannig að samkomustað stórfjölskyldunn- ar. Þar hittum við afasystkini okkar og fleira frændfólk. Stund- um voru fáir mættir og aðra daga var þröngt setið við borðstofu- borðið. Langömmu þótti vænt um að fá fólkið sitt í grautinn. Þegar við vorum lítil kom hún oft suður til okkar og dvaldist hjá okkur um tíma. Þannig náðum við góðum tengslum við hana. Henni fannst gaman að horfa á okkur í leik og fylgjast með fram- förum okkar. Mamma hafði stundum áhyggjur af því að há- vaðinn og lætin í okkur væru of mikil. Þá hló amma bara og sagð- ist vera í svo mikilli þögn heima hjá sér flesta daga. Eftir að amma treysti sér ekki lengur í ferðalög hingað suður til okkar, fylgdist hún með okkur í gegnum símtölin við mömmu. Hún vissi hvað við hefðum fyrir stafni, hver áhugamál okkar voru og hvar styrkleikar okkar lágu. Alltaf fagnaði hún okkur þegar við komum norður í heimsókn. Það var notalegt að fá hlýtt faðmlag og finna væntumþykjuna í okkar garð. Langamma var á sínum yngri árum létt og kvik á fæti. Þegar hún var lítil stelpa að alast upp á Syðra-Hóli, hljóp hún svo hratt að pabbi hennar sagði að það væri betra að hafa hana með sér í smölun heldur en hundinn! Hún lærði að synda á Akureyri þegar hún var 19 ára. Ekki gafst mikill tími til sundiðkunar á meðan hún var með stórt heimili. En um sex- tugt fór langamma aftur á sund- námskeið og til 86 ára aldurs synti hún nokkra morgna í viku. Sundið gerði henni gott, hélt lík- amanum vel við. Hún var ekki með bílpróf og fór allra sinna ferða fótgangandi. Naut þess líka að fara í langa göngutúra og lengi vel gerði hún léttar teygjuæfing- ar daglega. Allt þetta átti sjálf- sagt stóran þátt í því hversu lengi hún var rólfær. Hún var nú farin að hægja á gönguhraðanum frá því við munum fyrst eftir henni, aðallega vegna sjónarinnar sem farin var að daprast. Hún var allt tíð mikið fyrir lestur góðra bóka og það var því mikið frá henni tekið þegar hún gat ekki lengur stytt sér stundir við lestur vegna sjónleysis. Í dag getum við glaðst yfir því að hún er komin á góðan stað, búin að hitta sitt fólk og sjálfsagt komin með bók í hönd. Guð geymi langömmu okkar. Bjarki Húnn, Sverrir Gauti, Sólrún og Þorsteinn Birkir. Hólmfríður Magnúsdóttir Elsku besta amma mín. Um leið og ég er ótrúlega sorg- mædd yfir að þú sért farin þá er ég líka mjög þakklát fyrir að þú þurftir ekki að þjást lengi. Þú varst alltaf hress, brosandi og til í spjall. Þú náðir háum aldri og varst svo hraust, enda hugsaðir þú vel um sjálfa þig allt þitt líf, reglusöm, nægju- söm og með svo stórt hjarta að það var notalegt að vera í kringum þig. Ég gat komið með vinkonur í heimsókn og þú tókst vel á móti öllum. Þeir sem þekktu þig vita hvað þú varst frábær. Þú hafðir áhrif á líf allra sem fengu að kynnast þér og breyttir þeim. Þú áttir marga góða að. Dætur þínar, Anna og amma Unnur sem hugsuðu svo vel um þig ásamt fjölskyldum. Pabbi, sem var þér svo tryggur að það leið varla dagur að hann heimsótti þig ekki. Ég ætla að rifja upp örfáar minningar um þig sem fá mig til að brosa. Ég hló svo mikið þegar ég fór í gegnum sokka- skúffuna mína einn daginn þar sem flestallir sokkar sem ég átti voru frá þér. Þá hafði ég komið til þín sokkalaus í skón- um en þú náðir í hreina sokka og krafðist þess að ég færi í þá og væri í þeim þegar ég færi. Ég fór aldrei tómhent heim frá þér, ýmist með krydd í poka, múslí, skorna ávexti sem ég átti að gefa Aldísi, gjafir, græðandi krem og svona mætti lengi telja. Það fór heldur enginn svangur út frá þér. Þegar ég var yngri og pabbi bjó í kjall- aranum man ég eftir því að hafa komið upp á morgnana og þú gafst mér alltaf eitthvað gott að borða meðan pabbi svaf lengur. Ég man líka að þú sótt- Þuríður Hilda Hinriks ✝ Þuríður HildaHinriks, kölluð Syja, fæddist í Reykjavík 23. nóv- ember 1921. Hún lést á Dvalarheim- ilinu Grund 23. júní 2013. Þuríður Hilda (Syja) var jarð- sungin frá Háteigs- kirkju 2. júlí 2013. ir mig svo oft á gæsluvöllinn í Meðalholtinu, fórst með mig heim og gafst mér kakó- malt sem minnir mig alltaf á þig, enda fékk ég alltaf svoleiðis hjá þér ásamt bestu pönnukökum í heimi. Það var ekki nóg að gefa mér pönnukökur heldur gafstu mér pönnuna og vildir að ég myndi fara heim að æfa mig. Með þig í símanum gerði ég svo mínar fyrstu pönnukökur. Ég er svo glöð að Aldís mín fékk að kynnast þér í rúmlega 6 ár og situr uppi með minn- ingar um þig og auðvitað fullt hús gjafa frá þér. Hún sagði sérstaklega við mig um daginn að hún ætlaði að passa sér- staklega vel upp á gjafirnar frá þér. Hún fór inn í herbergi að tína saman allt sem þú hafðir gefið henni og vildi stilla því upp á ákveðna staði. Það var svo krúttlegt. Síðasta skiptið okkar saman ætla ég að geyma vel í minningunni, en þá varstu svo glöð þegar ég kom á Grund, hafðir lítið farið niður. Veðrið var gott svo þú vildir endilega kíkja með mér út í sólina. Svo sátum við saman og fengum okkur kaffi og kex. Þú varst svo ánægð með að hafa kíkt út í sólina. Ég kvaddi þig svo, alveg grunlaus um að þetta yrði síð- asta skiptið sem ég myndi hitta þig. Það sem gleður mig er að síðasta minningin um þig er hvað þú varst glöð, spjallaðir helling við Kristján sem brosti svo mikið til þín á móti. Ég á eftir að sakna þín mjög mikið, sakna þess að koma í Stór- holtið, sakna hlátursins og gleðinnar sem var alltaf til staðar. Það var svo auðvelt að gleðja þig, þú varst svo nægju- söm. Nú ertu komin til afa Ing- ólfs og þið getið loksins verið saman á ný. Elsku amma, guð geymi þig, minningin um þig mun alltaf lifa. Þín Unnur Margrét. Meira: mbl.is/minningar ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR ÓSKARSSON, Seljalandi 7, Reykjavík, lést á Landakotsspítala fimmtudaginn 4. júlí. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 15. júlí kl. 13.00. Þórgunnur Þorgrímsdóttir, Örn Berg Guðmundsson, Ragnhildur Gröndal, Margrét Guðmundsdóttir, Steinunn Ósk Guðmundsdóttir Guðrún Gríma Guðmundsdóttir, Sigmundur Guðmundsson, Guðmundur Ingi Guðmundsson, Danuta Mamczura, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN SAMÚELSSON, Tjarnarstíg 3, Seltjarnarnesi, lést að kvöldi föstudagsins 28. júní. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu. Sigríður Sveinsdóttir, Jóhann Jóhannsson, Bryndís Sveinsdóttir, Ásmundur Jónsson, Jóhann Sveinsson, Birna Guðmundsdóttir, Björn Sveinsson, Hulda Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNDÍS MAGNÚSDÓTTIR, Lækjasmára 6, Kópavogi, lést á Landspítalanum sunnudaginn 7. júlí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 19. júlí kl. 13.00. Geir Magnússon, Áslaug S. Svavarsdóttir, Unnur Magnúsdóttir, Daníel Helgason, Guðlaugur Hilmarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.