Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð
Möguleiki á áletrun
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þeir sem eru með á nótunum, lenda
á mikilvægum fundum. Leyfðu þér að njóta
þess en gættu þess þó að ganga ekki of
nærri þér.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur lengi verið óánægð/ur með
sjálfan þig og ekki vitað hvað væri til ráða.
Láttu ekkert verða til að skyggja á gleði
þína.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það lítur út fyrir að samband sem
hefur skipt þig miklu máli sé að rofna.
Hugsaðu með gleði um það sem þú átt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er hætt við að fréttir sem tengj-
ast framhaldsmenntun, útgáfu eða ferðalög-
um dragi úr þér kjarkinn. Láttu ekkert
standa á milli þín og ástarinnar.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert ekki hrædd/ur við að fara hörð-
um höndum um sannleikann. Varðandi sér-
staka beiðni: Rétt tímasetning skiptir öllu,
bíddu með að biðja þar til skyggir.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Varastu að dæma hlutina af fyrstu
kynnum því oft ber yfirborðið ekki með sér
hvað undir býr. Þú býrð yfir því hugrekki
sem þarf til þess að verja hugsjónir þínar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Taktu við því sem aðrir eru svo góðir að
gefa þér. Leyfðu léttleikanum að vera með í
för og þá muntu komast létt í gegnum þetta
tímabil.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ef þú leitar svara við einhverju
ættirðu að reyna að fá einhvern til liðs við
þig. Þú nærð árangri, en færð ekki endilega
viðurkenningu, enda er það ekki takmarkið
núna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Nú er rétti tíminn til að finna sér
afdrep til þess að hvíla lúin bein og end-
urnýja krafta sína. Varastu alla áhættu í fjár-
málum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Viðkvæmt mál ber á góma og
þótt þér sé mikil raun að ræða álit þitt á því
verðurðu að gera það. Nýttu þér þennan
hæfileika núna. Farðu varlega í viðkvæmum
fjölskyldumálum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Tilfinningalega ertu opin bók.
Foreldrum er því ráðlagt að hafa augun opin
og gæta sérlega vel að börnum sínum.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Láttu það ekki koma þér á óvart þótt
orsakir deilu þinnar og vinar þíns séu aðrar
en fram kemur á yfirborðinu. Bjartsýnin
bætir allt.
Það kom fram í fréttum RÚVað mikið hafi verið skorið
niður hjá Reykjavíkurborg í
grasslætti. Sviðsstjóri umhverfis-
og skipulagssviðs sagði rign-
ingatíð með mikilli grassprettu
gera borgarstarfsmönnum erfitt
fyrir. Sigrún Haraldsdóttir orti
af því tilefni:
Þótt háin taki Huppu í kvið
og hylji meðal tík
er ekki slegið slöku við
slátt í Reykjavík.
Ágúst Ármannsson prjónaði
við það:
Slugs og leti á slætti þar
sleifarlag til afspurnar.
Bústnir líkt í búri tík
búskussar í Reykjavík.
Hjálmar Freysteinsson yrkir
að gefnu tilefni:
Væntingarnar vaxa á ný
víða leynist gróði,
þótt hans gæti ekkert í
Íbúðarlánasjóði.
Hallmundur Kristinsson fann
eldgamlan bréfmiða með vísu
sem hann orti er Hjálmar varð
66 ára, en hann hafði þá í langan
tíma talið sig 33 ára.
Hækkar aldur, vitið vex.
Vart má satt kyrrt liggja:
Nú er hann orðinn sextíu og sex,
segist þrjátíu og þriggja.
Eitthvað fór Ólafur Stefánsson
öfugu megin fram úr er hann orti:
Eftir svo og svo mörg ár
sokknir í skuldadíki,
okkar bíða álnir þrjár,
og ekkert Himnaríki.
Ármann Þorgrímsson var ekki
seinn til svars:
Ekki að gráta Óli minn
aldrei var það betri siður
vertu kátur vinur minn
þú veltur bara með mér niður.
Jóhann Gunnarsson kom nýver-
ið heim úr þriggja nátta vist í
sumarbústað hjá Knútsstöðum í
Aðaldal. „Okkur var fagnað með
rigningu og kvödd vorum við með
rigningu,“ skrifar hann. „Þetta er
dálítið ýkt limra um stemm-
inguna:
Í Aðaldalinn æða menn
ætla að sólin birtist senn
en regndropar detta
og rakastig metta.
Raunamóð þraukum við enn.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Íbúðalánasjóði, slugsi
og slætti í Reykjavík
Í klípu
„GOTT AÐ SJÁ AÐ ÞÚ GAST KOMIÐ. HONUM
LÍKAÐI ALLTAF VEL VIÐ ÞIG. VERÐIÐ ÞIÐ
MEÐ ÞEGAR ÞAÐ VERÐUR STURTAÐ?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MUNT ÞÚ EIGA NÓG FYRIR BÍL ÁÐUR EN
ÉG ÞARF AÐ FÁ HANN LÁNAÐAN?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar það ert þú sem
gerir kvöldið sérstakt.
ÖLL HJÓNABÖND
ÞURFA AÐLÖGUNAR-
TÍMA, SVENNI …
… SVO EKKI MISSA
KJARKINN …
… FYRR EÐA SÍÐAR MUN HÚN SPARKA
SJÁLFRI SÉR ÚT!
SKO, ÞAÐ VAR EKKI AUÐVELT
EN ÉG NÁÐI AÐ SETJA BÁÐA
SKÓNA Á SAMA FÓTINN!
ER ÞAÐ NOKKUR FURÐA AÐ ÉG
SOFI 18 KLUKKUTÍMA Á DAG?Víkverji hefur lagt það í vana sinnað borga alla reikninga ekki síð-
ar en þegar eindagur rennur upp og
vill helst aldrei skulda neinum neitt.
En ekki verður á allt kosið og í lið-
inni viku náði Víkverji ekki að borga
Skiptum (Símanum) reikninga, sem
voru á eindaga 2. júlí, fyrr en 6. júlí.
Þá voru eðlilega komnir dráttar-
vextir en líka kostnaður vegna inn-
heimtuviðvörunar. Já, segi og skrifa,
vegna innheimtuviðvörunar.
x x x
Annar reikningurinn var upp átæplega 13.000 krónur og hinn
upp á liðlega 1.200 krónur. Auk
vaxta var kostnaður vegna inn-
heimtuviðvörunar 690 kr. á reikning.
Víkverji þekkir forstjóra Skipta
bara að góðu einu saman og ef ein-
hver hjá Skiptum getur breytt til
hins betra er það hann. Það gengur
ekki að senda út innheimtuviðvörun
tveimur dögum eftir eindaga og
rukka sérstaklega fyrir hana.
x x x
Víkverji hefur fullan skilning ámikilvægi þess að reikningar
séu greiddir á réttum tíma. Dráttar-
vextir eru líka sjálfsagðir að því
loknu. En að beita innheimtu-
viðvörun til fastra viðskiptavina í
áratugi tveimur dögum eftir eindag
og rukka fyrir hana í ofanálag er
ekki bara ókurteisi heldur ósvífni.
x x x
Þegar Víkverji greiddi umræddareikninga í heimabankanum
voru þar einnig fyrir reikningar frá
Skiptum vegna næsta mánaðar, með
eindaga 6. ágúst. Já. 6. ágúst en ekki
2. ágúst. Víkverji hugsaði um að
greiða þá líka til þess að eiga ekki á
hættu að fá aftur innheimtuviðvörun
með tilheyrandi kostnaði. Hann hef-
ur oft borgað reikninga frá Skiptum
með góðum fyrirvara en minnist
þess ekki að hafa fengið innvexti og
lét því kyrrt liggja. Hann hefur ekki
lagt það í vana sinn að skulda þessu
fyrirtæki og hefur ekki hug á að láta
það eiga inni hjá sér. Víkverji er svo
hissa á þessum aðgerðum Skipta að
hann íhugar að skipta um símafélag.
Það er hægt að láta bjóða sér ým-
islegt en svona framkoma tekur út
yfir allan þjófabálk. víkverji@mbl.is
Víkverji
En nú varir trú, von og kærleikur,
þetta þrennt, en þeirra er kærleik-
urinn mestur.
(Fyrra Korintubréf 13:13)