Morgunblaðið - 12.07.2013, Page 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 2013
Á
R
N
A
S
Y
N
IR
Langtímaleiga
– langsniðugust!
Reiknaðu dæmið til enda.
Frá
49.900 kr.á mánuði!
591-4000 | www.avis.is
Frábær lausn fyrir hallandi
og óreglulega glugga
PLÍ-SÓL
GARDÍNUR
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu
Hringdu og bókaðu tíma í máltöku
Meira úrval • Meiri gæði
Íslensk framleiðsla
eftir máli
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Upp rís úr rafinu“ nefnast tónleikar
sem helgaðir eru akústískri raftónlist
og fram fara í Kaldalóni Hörpu í
kvöld kl. 20. Samkvæmt tilkynningu
frá skipuleggjendum munu sex ung
tónskáld, þ.e. Árni Guðjónsson,
Bergrún Snæ-
björnsdóttir,
Finnur Karlsson,
Gunnar Gunn-
steinsson, Halldór
Smárason og
Haukur Þór
Harðarson, temja
skepnur rafsins
hver á sinn hátt
svo þær leiki um
skyn áheyrandans
ýmist í samhljómi
með akústískum hljóðfærum eða
syngjandi einar síns liðs.
„Við kynntumst öll í námi við
Listaháskóla Íslands og stofnuðum
þá hljómsveit sem heitir Orphic
Oxtra,“ segir Bergrún Snæbjörns-
dóttir sem lýkur námi sínu við LHÍ
næsta vor, en aðrir í hópnum eru út-
skrifaðir og flestir komnir í fram-
haldsnám í tónsmíðum. „Okkur lang-
aði til að nýta sumarið til að halda
tónleika, enda getur verið erfitt að
koma hópnum saman á veturna þegar
meira er að gera í náminu,“ segir
Bergrún. Hópurinn sótti um og fékk
styrk úr Ýli tónlistarsjóði Hörpu fyrir
ungt fólk og Tónlistarsjóði. Segir
Bergrún það skipta miklu fyrir hóp-
inn að fá slíkan stuðning og tekur
fram að sérlega spennandi sé að fá
tækifæri til að halda tónleika í Hörpu.
Aðspurð nánar um verkin sem
hljóma munu á tónleikunum segir
Bergrún þau býsna fjölbreytt. „Sem
dæmi verð ég með verk fyrir tvo raf-
magnsgítara, Finnur með verk fyrir
rafmagnstrommusett, Haukur með
verk fyrir strengjakvintett, Halldór
með verk fyrir akústískan gítar og
rafhljóð auk þess sem Árni og Gunn-
ar verða með rafgjörninga,“ segir
Bergrún og tekur fram að hægt sé að
gera hvað sem er með raftónlist. Þess
má geta að hópurinn mun halda tón-
leika undir merkjum Orphic Oxtra á
Faktorý 23. júlí nk. „Enda um að
gera að nota tækifærið þegar allir eru
loks á landinu,“ segir Bergrún að lok-
um.
Hefur mikla þýðingu
„Það hefur gríðarlega mikla þýð-
ingu fyrir okkur að geta komið að
tónlistarstarfi ungs fólks og tónlistar-
uppeldi almennt. Við reynum að nýta
hvert tækifæri sem gefst til þess,“
segir Steinunn Birna Ragnarsdóttir,
tónlistarstjóri Hörpu, og bætir við:
„Ýlir tónlistarsjóður Hörpu fyrir
ungt fólk og Styrktarsjóður samtaka
um tónlistarhús gegna þar mjög
miklu hlutverki. Þeir hafa báðir það
að markmiði að styðja sérstaklega
ungt tónlistarfólk og veita því tæki-
færi til að koma fram í Hörpu. Það er
að skila okkur mjög fjölbreyttum við-
burðum, s.s. þessum,“ segir Steinunn
Birna og vísar þar til tónleikanna í
Kaldalóni í kvöld. „Þetta tengist því
beint að tryggja það að hér verði
bæði notendur og njótendur í tónlist-
arhúsinu um aldur og ævi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Upp rís úr rafinu Tónskáldið Bergrún Snæbjörnsdóttir (fyrir miðju) með
gítarleikurunum Alberti Finnbogasyni og Kjartani Holm.
Fjölbreytt verk
rísa upp úr rafinu
Akústísk raftónlist ungra tónskálda
hljómar í Kaldalóni Hörpu í kvöld
Steinunn Birna
Ragnarsdóttir
Háskólinn í Reading bauð hæst í
handrit írska rithöfundarins Samu-
els Beckett að skáldsögunni
Murphy. Beckett, sem hlaut Nób-
elsverðlaunin árið 1969, byrjaði að
skrifa söguna 1935. Handritið hafði
verið sagt eitt hið mikilvægasta frá
20. öld sem enn væri í einkaeigu og
var metið á allt að 1,2 milljónir
punda, vel yfir 200 milljónir króna.
Svo fór að háskólinn í Reading
hreppti hnossið, fyrir 962.000 pund.
Handrit Becketts er í sex minnis-
bókum og sagt miklum mun ýtar-
legra en endanleg útgáfa skáldsög-
unnar. Mikið er um útskrikanir og
endurritanir, auk þess sem fjölda
teikninga gefur að líta á síðunum,
meðal annars af kollega höfund-
arins, James Joyce.
The Guardian hefur eftir sérfræð-
ingi í fágætum bókum að handritið
gefi afar merka innsýn í sköp-
unarferli Becketts.
Höfundurinn gaf vini sínum hand-
ritið árið 1938, í þakklætisskyni fyrir
stuðning eftir að hann hafði orðið
fyrir ástæðulausri árás hórmangara
í París og hlotið stungusár. Hand-
ritið var fyrst selt árið 1968 og hefur
síðan verið læst niður og hafa fræði-
menn ekki getað skoðað það. „Nú er
mjög spennandi fyrir fræðimenn að
hafa loks aðgang að handritinu,“
segir einn fulltrúi kaupendanna.
Milljón pund fyrir handrit
Photograph: Sotheby’s/PA
Teikningar Handrit Becketts að skáldsögunni Murphy er í sex minnis-
bókum. Ýmiskonar teikningar eru á síðunum og setningar margskrifaðar.
Verðmætt handrit
Becketts að skáldsög-
unni Murphy selt
Þorri Hringsson
sýnir verk sín í
Bergi menning-
arhúsi á Dalvík.
Samtals eru 17
verk á sýning-
unni, 11 olíu-
myndir og sex
vaxlitamyndir,
sem Þorri hefur
unnið að síðasta
árið.
„Myndirnar eru landslagsmyndir
og spilar umhverfið í Aðaldal þar
stórt hlutverk. Vatn er ríkjandi þátt-
ur í verkunum og nær Þorri á tæran
og hófstilltan hátt að sýna marg-
breytileika þess. Lygnan straum við
árbakkann, þokuslæðing, lítinn
hólma, botngróður. Verkin sýna á
draumkenndan hátt blæbrigði lit-
anna og ná þannig að skapa hreyf-
ingu í stilltu vatni. Þannig eru verkin
einföld við fyrstu sýn en afhjúpa
margbreytileika sinn við nánari
kynni,“ segir m.a. í tilkynningu.
Sýningin stendur til 5. ágúst.
Draumkennd
verk í Bergi
Þorri
Hringsson